Lífið

Segir ekki nei við Jón

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Helga Vala var við tökur á Borgarstjóranum síðastliðinn mánudag.
Helga Vala var við tökur á Borgarstjóranum síðastliðinn mánudag. Vísir/Hanna
Jón bað mig um þetta og maður segir ekki nei við Jón,“ segir leikkonan og lögmaðurinn Helga Vala Helgadóttir en Jóninn sem um er rætt er Jón Gnarr og já-ið vilyrði fyrir því að taka að sér hlutverk í grínþáttaröðinni Borgarstjóranum.

Helgu Völu kannast flestir við sem lögmann enda hefur það verið hennar aðalstarf undanfarin ár. Hún er hins vegar líka menntuð leikkona og lauk prófi frá Leiklistarskólanum vorið 1998 og lék hér á landi og í Bretlandi í tvö ár. Eftir það lá leið hennar í lögfræðina en þetta er ekki í fyrsta sinn sem hún hefur tekið upp þráðinn fyrir framan tökuvélarnar en hún lék einnig lítið hlutverk í kvikmyndinni Eiðnum eftir Baltasar Kormák, sem skartar þeim Heru Hilmarsdóttur, Gísla Erni Garðarssyni og Baltasar sjálfum í aðalhlutverki.

Helga Vala segir leiklistina blandast vel við lögfræðina og koma að góðum notum. „Þetta er nátengt, ég held að ég græði mjög mikið á leiklistarmenntuninni í lögmennskunni. Bæði það að koma fram en svo líka það að geta sett sig í spor fólks og skoðað hlutina út frá fleira en einu sjónarhorni,“ segir hún og bætir við: „Svo fæ ég að fara í búning öðru hvoru og standa fyrir frama áhorfendur í dómsal. Þeir eru tveir eða þrír eftir því hve dómurinn er fjölskipaður.“

Helga Vala segir það gaman að hafa tök á því að stíga út úr hinum daglega amstri en hún leikur fréttastjóra í þáttaröðinni. Hún er ekki alls kostar ókunn störfum fjölmiðla þar sem hún starfaði á fjölmiðlavettvangi áður en hún hóf nám í lögfræði. „Ég er að leika fréttastjóra sem saumar aðeins að borgarstjóranum. Hann virðist ekki alveg vera með alla hluti á hreinu, blessaður kúturinn,“ segir Helga Vala og heldur áfram að lýsa karakter sínum: „Ætli hún sé ekki bara nokkuð beinskeytt, eins og fréttastjórar eru.“

Helga Vala segir það gaman að eiga kost á að taka að sér hlutverk sem þetta, það auðgi lífið og geri það enn skemmtilegra. „Það er svo gaman að smakka fleiri rétti en bara einn og fá að gera alls konar óvænt.“

Í hlutverki borgarstjórans er Jón Gnarr, en líkt og flestir ættu að vita er Jón fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur. Hann var borgarstjóri fyrir hönd Besta flokksins á árunum 2010-2014.

Tökum á þáttaröðinni lýkur í dag en þær hafa meðal annars farið að miklu leyti fram í Ráðhúsinu.

Í öðrum aðalhlutverkum eru Pétur Jóhann Sigfússon og Helga Braga Jónsdóttir. Borgarstjórinn er tíu þátta þátta röð sem sýnd verður á Stöð 2 nú í haust.


Tengdar fréttir

Prímusmótor-kona í tveimur hlutverkum

Jóga Jóhannsdóttir er ein aðalmanneskjan bak við tjöldin í Borgarstjóranum en hún hljóp í skarðið þegar vantaði í eitt hlutverk nýlega. Henni líður best þegar hún er ekki fyrir framan myndavélarnar en þetta voru þó alls ekki hennar fyrstu spor í leiklistinni.

Fyrrverandi borgarstjóri leikur borgarstjórann

Í Borgarstjóranum leikur fyrrverandi borgarstjórinn Jón Gnarr borgarstjórann. Jón sagði okkur aðeins frá þættinum, leikurunum og hvort að þarna mætti finna fyrrverandi samstarfsfólk úr borgarstjórninni meðal persóna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×