Innlent

Segir deiluna ekki við sig heldur fagfólk SÁÁ

Gunnar Smári
Gunnar Smári
Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, segir það ekki rétt að hann eigi sérstaklega í samstarfsörðugleikum við Kvenfélag SÁÁ, en félagið hefur boðað að þær hyggist leggja það niður í núverandi mynd og stofna nýtt félag fyrir utan SÁÁ. Ástæðan sem þær gefa upp í tilkynningu eru samstarfsörðugleikar við formann SÁÁ, Gunnar Smára.

"Þetta er í sjálfu sér ekki ég. Það eina sem ég gerði var að færa þeim skilaboð frá stjórninni og samtökunum og þær virðast hafa tekið það upp persónulega við mig," segir Gunnar Smári. Hann segir að kvenfélagið hafi verið með ályktanir um fíkn og meðferðarúrræði. "Þetta var nokkuð sem féll ekki að stefnu SÁÁ og fagfólki okkar þótti rangt," segir Gunnar Smári. Hann segir rót samstarfsörðugleikanna faglegan og ekki hafa neitt með sig eða sýna persónu að gera.

Hann bendir á að hér hafi verið kynjaskipt meðferð í átján ár. Það hafi verið ein af fyrstu kynjaskiptu meðferðarúrræðunum sem voru í boði í heiminum. Þess má þó geta að afeitrunin á Vogi, sem tekur tíu daga, er ekki kynjaskipt eins og Ilmur Kristjánsdóttir leikkona gagnrýndi í viðtali við Vísi í dag.

Gunnar Smári segir ágreininginn að hluta til vera sá að kvenfélagið leit á sig sem sjálfstætt félag. Hann segir SÁÁ eitt félag og undir því séu ekki sjálfstæðar undirdeildir sem vinni út frá eigin hugmyndum. Spurður hvort það sé ekki bagalegt að missa konurnar út úr SÁÁ svarar Gunnar Smári því til að honum finnist það ekki endilega vera svo. Hann segir þær hafa ákveðnar hugmyndir um það hvernig úrræðin eiga að vera, það séu úrræði sem fagfólk innan SÁÁ sé ekki sammála, að sögn Gunnars Smára. Hann segir þeim frjálst að reyna fyrir sér á nýjum vettvangi, og slíkt gæti aukið á fjölbreytni meðferðarúrræða, en félagið, sem verður stofnað 8. mars næstkomandi, stefnir að því að starfrækja slíka meðferð í framtíðinni.

"Aðalbaráttumál okkar er að meðferðin sé góð og að réttindi þeirra sem þangað leita séu varin," segir Gunnar Smári að lokum.


Tengdar fréttir

Segir ekkert pláss fyrir kvenfélagið innan SÁÁ

Það er dálítið djúpt á þessu, við erum ekki alveg búnar að átta okkur á andstöðunni,“ segir Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, sem ásamt sjö öðrum konum vinna að stofnun nýs félags, sem hefur fengið nafnið Rótin – félag um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda. Þarna vísar Ilmur í átök kvennanna við formann SÁÁ. Félagið, sem til stendur að stofna fyrir utan SÁÁ, hét áður kvenfélag SÁÁ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×