Innlent

Segir brot MS vera efnahagsbrot gegn öllu samfélaginu

Gunnar Atli Gunnarsson skrifar
Vísir/Stefán/GVA
Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir brot Mjólkursamsölunnar á samkeppnislögum vera efnahagsbrot gegn öllu samfélaginu. Fyrirtækið þurfi að læra að hegða sér en koma ekki með hótanir þegar þeim er kennd hegðun.

Samkeppniseftirlitið lagði í fyrradag 480 milljón króna stjórnvaldssekt á Mjólkursamsöluna vegna alvarlegrar misnotkunar á markaðsráðandi stöðu. Forsvarsmenn MS hafa sagt að fyrirtækið eigi enga varasjóði til að greiða sektina og því lendi hún á neytendum. Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir það fjandi hart ef neytendur komi til með að greiða fyrir brot stjórnenda Mjólkursamsölunnar.

„Þetta lendir alltaf á samfélaginu með einhverjum hætti. Þetta endurspeglar í raun efnahagsbrot gegn heilu samfélagi þar sem brotaþolinn er heilt samfélag sem verður fyrir tjóni,” segir Vilhjálmur.

MS ekki lært að vera einokunarfyrirtæki

Þessi ákvörðun endurspegli þá vondu stöðu sem Mjólkursamsalan sé komin í.

„Og hefur ekki getað höndlað það að vera einokunarfyrirtæki, því það er vandasamt að vera einokunarfyrirtæki. Það er þá ekki heimilt að viðhafa hvaða hegðun sem er.”

Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið við völd í ríkisstjórn í rúm þrjú ár, og auðvitað lengi þar á undan. Eru vonbrigði að hafa ekki náð fram breytingum á þessu kerfi?

„Jú, það eru vonbrigði að hafa ekki náð því fram að stórt fyrirtæki eins og Mjólkursamsalan hafi ekki lært rétta hegðun. Mjólkursamsalan hefur ekki lært. Hvorki af fyrri ábendingum né af þeirri lagasetningu sem hefur farið fram á undanförnum árum,” segir Vilhjálmur.


Tengdar fréttir

Mjólkursamsalan sektuð og skaðabótamál er yfirvofandi

Mjólkursamsalan var í gær sektuð um 480 milljónir króna vegna alvarlegrar misnotkunar á markaðsráðandi stöðu. MS seldi hrámjólk til samkeppnisaðilanna Mjólku og síðar Kú á mun hærra verði en til MS og tengdir aðilar, þá sérstaklega Kaupfélag Skagfirðinga, greiddu fyrir vöruna samkvæmt niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins.

MS þyrfti að hækka vöruverð um tvö prósent

"Öll svona áföll þýða það náttúrulega að höggið lendir fyrr eða síðar á annað hvort bændum eða neytendum. Fyrirtækið er núllstillt þar á milli,” segir Egill.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×