Innlent

Segir aukið upplýsingaflæði geta valdið ruglingi hjá farþegum

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Margrét Helgadóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Heimsferða, segir að bilanir geti komið upp hjá hvaða flugfélagi sem er.
Margrét Helgadóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Heimsferða, segir að bilanir geti komið upp hjá hvaða flugfélagi sem er. Vísir
Margrét Helgadóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Heimsferða, segir í samtali við Vísi að fyrirtækið sé ekki að endurskoða samstarf sitt með flugfélaginu Primera Air eftir að allt að 21 klukkutíma seinkun var á ferðum flugfélagsins um helgina.

Flugi seinkaði frá Tenerif um 18 klukkustundir, frá Alicante um 21 klukkustund og til Malaga um rúmar sex klukkustundir. 

„Þetta getur gerst fyrir hvaða flugfélag sem er og við höfum oft lent í þessum hjá öðrum flugfélögum, eða það hefur komið fyrir,“ segir Margrét. Þá segir Margrét jafnframt að þau harmi það að slíkar seinkanir hafi átt sér stað.

Gagnrýndu upplýsingagjöf

Farþegar vélanna sem seinkuðu frá Tenerif, Alicante og Malaga, hafa gagnrýnt lélega upplýsingagjöf og segja að misvísandi upplýsingar hafi borist þeim frá ferðaskrifstofum Heimsferða og Úrval Útsýns.

„Ég held að það sé nú tilkomið vegna þess að í rauninni eru upplýsingarnar sem við erum að gefa að koma frá flugfélögum, eftir bestu vitund hverju sinni. Þannig að það er verið að reyna að upplýsa farþega hverju sinni eftir bestu vitund en það er enginn að leika sér að því að gefa misvísandi upplýsingar,“ segir Margrét.

Margrét segir að verið sé að endurskoða ferla hvað varðar upplýsingagjöf og nefnir að það sé spurning um hvort best sé að upplýsa farþega um allar breytingar þar sem það geti valdið ruglingi.

„Það er þannig að það eru kannski margir boltar á lofti hvert sinn. Það er kannski verið að reyna að finna vél og á sama tíma er verið að reyna að lagfæra þá sem er að, þannig að það er spurning hvort það eigi að upplýsa farþega um alla bolta sem eru á lofti eða ekki. Það getur stundum valdið ruglingi eða misskilningi,“ segir Margrét.

Keðjuverkandi áhrif

Ástæða seinkananna um helgina voru meðal annars bilanir í vélum. Margrét segir þetta hafa keðjuverkandi áhrif.

„Þetta er keðjuverkandi. Þegar vélin bilar í Alicante þá hefur það áhrif á næsta flug á eftir en það var kölluð inn önnur vél fyrir Malaga flugið og hún var staðsett í Evrópu og þurfti að fljúga hingað, það er ástæðan fyrir þeirri seinkun,“ segir Margrét.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×