Segir almenning mega verja sig fyrir lögreglu Atli Steinn Guðmundsson skrifar 27. nóvember 2009 07:18 OMON-deildin í góðum gír.
Innanríkisráðherra Rússlands segir að almenningi ætti að vera heimilt að berja frá sér ráðist lögregla á það að tilefnislausu. Rashid Nurgaliyev, innanríkisráðherra Rússlands, segir í viðtali við Interfax-fréttastofuna í gær að sé viðkomandi ekki glæpamaður og sé auk þess ekki að brjóta af sér á nokkurn hátt sé það forsvaranlegt að hann svari í sömu mynt veitist lögregla að honum. Ummælin lét Nurgaliyev falla í tilefni máls sem kom upp fyrir nokkrum dögum þegar þrír ölvaðir lögreglumenn í Moskvu börðu mann til bana af litlu tilefni. Þremenningarnir gista nú fangageymslur og bíða ákæru. Rússnesk lög banna ofbeldi gegn lögreglu en Nurgaliyev segir tilvik á borð við þetta einfaldlega víkja lagabókstafnum til hliðar enda sé lögregla komin langt út fyrir eðlilega hegðun í starfi í tilfellum á borð við það sem hér segir frá. Evrópusambandið hefur gagnrýnt starfshætti sérsveitar rússnesku lögreglunnar, hinnar svonefndu OMON-deildar, en það stendur fyrir Otryad Militsii Osobogo Naznacheniya, eða sérverkefnadeild, og segir hana oftar en ekki fara offari og stunda það að níðast á innflytjendum sem koma til Rússlands í atvinnuleit. Lögreglustjórinn í Moskvu var rekinn í apríl eftir að lögregluþjónn hélt upp á afmælið sitt með því að drekka sig ofurölvi og skjóta tvær manneskjur til bana í stórmarkaði.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Sjá meira