Golf

Segir að Tiger hafi fallið á lyfjaprófi

Sögusagnir eru um að Tiger Woods hafi fallið á lyfjaprófi og hafi verið settur í keppnisbann.

PGA-kylfingurinn Dan Olsen sagði í útvarpsviðtali að hann vissi ekki betur en Tiger væri í keppnisbanni.

„Ég heyrði að hann væri í keppnisbanni. Að hann væri í mánaðarbanni," sagði Olsen í útvarpsviðtalinu og bætir við að hann eigi eftir að slá sjálfum Lance Armstrong við þegar allt verði gert upp.

PGA hefur ekkert gefið út um málið enn sem komið er en nú er beðið eftir að heyra frá þeim enda sögurnar orðnar háværar.

Olsen virðist reyndar ekki vera sérstaklega vel við Tiger ef marka má viðtalið. Hann gefur meðal annars í skyn að Tiger sé að spila með bolta sem hafi ekki verið rannsakað hvort sé löglegur.

Hlusta má á viðtalið hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×