Innlent

Segir að Sigurður hafi verið hræddur við Annþór og Börk þegar hann kom í fangelsið

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Annþór (annar frá hægri) og Börkur (annar frá vinstri) yfirgefa Héraðsdóm Suðurlands í morgun.
Annþór (annar frá hægri) og Börkur (annar frá vinstri) yfirgefa Héraðsdóm Suðurlands í morgun. Vísir

Nokkrir menn sem voru fangar á Litla-Hrauni í maí 2012 þegar Sigurður Hólm Sigurðsson lést inni á klefa sínum báru vitni fyrir Héraðsdómi Suðurlands í dag í máli ríkissaksóknara gegn þeim Annþóri Kristjáni Karlssyni og Berki Birgissyni. Þeir eru ákærðir fyrir að hafa veist að Sigurði í klefa hans í fangelsinu með þeim afleiðingum að hann lést. Báðir neita sök.

Einn þeirra manna sem sat inni á Litla-Hrauni á þessum tíma og bar vitni í morgun er Elís Helgi Ævarsson. Aðspurður kvaðst hann hafa þekkt Sigurð nokkuð vel og að hann hefði verið sá fyrsti sem tók á móti honum þegar hann kom á Litla-Hraun 16. maí 2012. Sigurður dó daginn eftir.

Annþór og Börkur lýsa yfir sakleysi sínu í málinu.

Hræddur út af skemmdri hurð

Elís lýsti því þegar Sigurður hafi komið inn á klefa til hans og viðurkenndi að hafa gefið honum línu af morfínskyldu lyfi sem fyrir dómi hefur verið kallað „súbbi.“ Þá sagði Elís að Sigurður hafi sagt sér að hann væri hræddur við Annþór og Börk vegna skuldar út af skemmdri hurð á gistiheimili.



„Ég talaði því við Anna og spurði hvort þeir myndu ekki láta hann í friði. Siggi myndi borga það sem hann skuldaði þeim og Anni tók í höndina á mér og sagðist ætla að láta hann í friði,” sagði Elís.



Þegar Sigurður veiktist svo og lést skömmu síðar sagði Elís að hann hefði fyrst hugsað hvort hann hefði mögulega getað veikst út af efninu sem hann hefði látið hann fá. Elís sagði að honum hefðu þó virst þetta heldur óvenjusterk viðbrögð við efninu sem Sigurður hafði fengið hjá honum.

Annþór og Börkur afplána þunga ofbeldisdóma á Litla-Hrauni.vísir/e.ól.

„Heyrðirðu ekki óhljóðin í honum“

„En síðan þegar þeir [Annþór og Börkur] fara í gæsluvarðhald þá erum við nokkrir saman inni á klefa og ég segi svona „Ætli þeir hafi gert honum eitthvað?“ Og þá segja strákarnir við mig: „Ertu ekki að grínast? Heyrðirðu ekki óhljóðin í honum?“ [...] En ég heyrði ekki neitt. Ég var bara inni í klefa að hlusta á þungarokk,“ sagði Elís.



Hólmgeir Elías Flosason, verjandi Annþórs, spurði Elís út í ósamræmi í framburði hans varðandi það hvort að Sigurður ætti sér einhverja óvildarmenn. Benti Hólmgeir honum á að við skýrslutöku hjá lögreglu hefði hann sagt að Sigurður ætti sér enga óvildarmenn en nú segði hann að hann hefði verið hræddur við Annþór og Börk.



Elís sagði þá að þetta hlyti að vera misskilningur. Hann myndi vel eftir því að Sigurður hefði sagt sér að hann væri hræddur við Annþór og Börk og hann hefði rætt það við Annþór. 

Lögreglan hefur haft í ýmsu að snúast í dag.Vísir/GVA

Segja Elís hafa boðið greiðslu fyrir ljúgvitni

Verjandi Barkar, Sveinn Guðmundsson, sagðist þá ekki sjá það í tímalínu úr öryggismyndavélum á gangi og úr eldhúsi Litla-Hrauns að Elís og Annþór hefðu talað saman og spurði hvernig staðið gæti á því. Elís kunni ekki skýringar á því en ítrekaði að hann hefði rætt við Annþór.



Þrír aðrir menn sem voru á Litla-Hrauni á þessum tíma sögðu fyrir dómi í morgun að Elís hefði boðið þeim fíkniefni gegn því að þeir myndu bera ljúgvitni um að Annþór og Börkur hefðu gert Sigurði mein.

Elís þvertók fyrir að hafa boðið mönnum greiðslu fyrir að bera ljúgvitni. Hann hefði þvert á móti hvatt menn til þess að segja satt.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×