Erlent

Segir að Sepp Blatter verði að fara

Samúel Karl Ólason skrifar
Graig Dyke, framkvæmdastjóri Enska fótboltasambandsins, eða FA, segir að Sepp Blatter, forstjóri FIFA, verði að yfirgefa samtökin. Hann segist ekki sannfærður eftir tilkynningu Blatter um að FIFA myndi vinna sér aftur inn traust aðdáenda fótbolta með því að auka baráttuna gegn spillingu.

Dyke gengur töluvert lengra en Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, sem segir að fresta eigi kosningunum um næsta forseta FIFA um hálft ár. Að óbreyttu verða þær á föstudaginn og býður Blatter til fimmta fjögurra ára kjörtímabilsins sem forstjóri FIFA. Gegn honum er Ali, prins Jórdaníu.

„Blatter hefur sent frá sér tilkynningu um að nú sé rétti tíminn til að endurbyggja traust FIFA,“ sagði Dyke í kvöld. „það er ómögulegt endurbyggja það traust á meðan Sepp Blatter er enn þar. Hann verður að fara. Annaðhvort þarf hann að segja af sér, eða það þarf að kjósa hann burt, eða við þurfum að finna þriðja möguleikann.“

„Ég tel skaðinn sem þetta hafi valdið FIFA sé svo mikill að það sé ómögulegt að endurbyggja samtökin á meðan hann er þarna. UEFA þarf að reyna að bola honum í burtu.“

Sjö starfsmenn FIFA voru handteknir í Sviss eftir að þeir voru ákærðir í Bandaríkjunum fyrir meðal annars spillingu og mútur. Tveir aðrir starfsmenn samtakanna voru einnig ákærðir sem og fimm aðrir. Tilkynningu Blatter vegna málsins má sjá hér.

Sjá einnig: Þáðu meira en tuttugu milljarða króna í mútur

Samkvæmt AP fréttaveitunni gaf Jack Warner, fyrrverandi varaforseti FIFA, sig fram til lögreglu í Trinidad and Tobago vegna ákærunnar í Bandaríkjunum. Dómsmálaráðherra landsins segir að þeir hafi unnið með Bandaríkjunum að rannsókn málsins í eitt ár. Honum var bolað frá FIFA árið 2011, eftir mútuhneyksli.


Tengdar fréttir

Geir um handtökurnar: Mikið áfall fyrir knattspyrnuhreyfinguna

„Á þessari stundu veit ég ekkert meira en það sem hefur komið fram í fjölmiðlum,“ sagði Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, í samtali við Guðjón Guðmundsson, aðspurður um handtökur á sjö hátt settum stjórnarmönnum FIFA í nótt. Mennirnir sem um ræðir voru ákærðir í Bandaríkjunum en þeir eru sakaðir um spillingu; peningaþvætti og mútustarfsemi.

Forsetakjör FIFA fer fram

Walter De Gregorio, fjölmiðlafulltrúi FIFA, segir líklegt að kosningarnar til forseta sambandsins fari fram á föstudaginn þrátt fyrir aðgerðir svissnesku lögreglunnar í nótt, þar sem sex háttsettir stjórnarmenn FIFA voru handteknir í Zürich.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×