Innlent

Segir að sakfelling hefði neikvæð áhrif

Snærós Sindradóttir skrifar
Snorri telur að sakfelling í málinu myndi hafa neikvæð áhrif á rannsóknir lögreglunnar til frambúðar.
Snorri telur að sakfelling í málinu myndi hafa neikvæð áhrif á rannsóknir lögreglunnar til frambúðar. Fréttablaðið/Hari
„Lögreglumenn þurfa á hverjum einasta degi að leita upplýsinga í LÖKE. Það er hætt við því að ef farið yrði í að láta einstaka lögreglumenn gera grein fyrir uppflettingum sínum allt að sjö ár aftur í tímann yrði fátt um svör,“ segir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna.

Lögreglumaður sem nú sætir ákæru fyrir óeðlilegar uppflettingar í LÖKE-kerfinu er fyrsti lögreglumaðurinn sem ákærður er fyrir slíkt athæfi hér á landi. Hann er grunaður um að hafa flett upp nöfnum 45 kvenna í kerfinu. Málið gegn honum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni, þar sem hann neitaði sök.

Snorri Magnússon formaður Landssambands lögreglumanna
Snorri segir að LÖKE-málið hafi valdið talsverðum urg á meðal lögreglumanna. 

„Það er ljóst að ef málatilbúnaður ríkissaksóknara leiðir til sakfellingar þá mun það hafa talsverð áhrif á það hvernig lögreglumenn nýta sér LÖKE. Áhrif sem jafnvel gætu haft afar neikvæð áhrif á það hvort, hvernig og hve mörg mál lögregla nær að upplýsa í framtíðinni,“ segir hann.

Snorri gerir jafnframt athugasemdir við þann ákærulið sem snýr að deilingu upplýsinga um þrettán ára pilt sem lögreglumaðurinn hafði afskipti af. 

„Dreifing upplýsinganna fólst í því, eftir því sem ég best veit, að hann sagði vinum sínum frá því hvað fyrir hann kom í vinnunni. Það er nokkuð undarlegt að það skuli teljast saknæmt að fórnarlamb líkamsárásar skuli ákært fyrir það að segja vinum sínum frá því hver réðst á hann.“ 


Tengdar fréttir

Vita ekki að þeim var flett upp

Konurnar 45 sem lögreglumaður er ákærður fyrir að hafa flett upp í LÖKE kerfinu hafa ekki verið látnar vita af tengslum sínum við málið.

Endurskoða innra eftirlit vegna njósna

Í gær var þingfest ákæra á hendur lögreglumanni sem sakaður er um að hafa flett upp upplýsingum um 45 konur. Ekkert eftirlit er með notkun LÖKE-kerfis lögreglu.

Segir umfjöllun fjölmiðla byggja á ósannindum

Ríkissaksóknari hefur birt lögreglumanninum í LÖKE-málinu svokallaða, Gunnari Scheving Thorsteinssyni, ákæru fyrir tvö meint brot í opinberu starfi. Hann er sakaður um að hafa flett upp nöfnum 45 kvenna í upplýsingakerfi lögregunnar, ásamt því að hafa sent félaga sínum upplýsingar um þrettán ára gamlan dreng sem hann hafði afskipti af í starfi sínu sem lögreglumaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×