Innlent

Segir að orð forsetans um fátækt skýrist á gamlársdagsmorgun

Bjarki Ármannsson skrifar
Þorsteinn Pálsson spáir í það hvort Ólafur Ragnar muni skrifa undir fjárlagafrumvarpið í ár.
Þorsteinn Pálsson spáir í það hvort Ólafur Ragnar muni skrifa undir fjárlagafrumvarpið í ár. Vísir
Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, bendir á það í grein sinni á fréttasíðunni Hringbraut að forseti Íslands getur ekki verið bæði með og á móti eigin fjárlögum. Hann segir að orð forsetans um nýtt fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar muni skýrast á gamlársdag, þegar forsetinn annað hvort skrifar undir frumvarpið eða ekki.

Þorsteinn vísar þarna til orða Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, í kvöldfréttum RÚV stuttu fyrir jól þar sem hann var spurður út í ákvörðun stjórnarmeirihlutans að hafna breytingatillögu minnihlutans við fjáraukalög sem hefði hækkað bætur aldraðra og öryrkja afturvirkt.

Sagði Ólafur Ragnar að aldraðir og öryrkjar ættu ekki að þurfa að reiða sig á matargjafir og aðra aðstoð – það væri merki um að við hefðum ekki staðið okkur sem þjóð.

Sjá einnig: Gísli Marteinn segir að Ólafur Ragnar ætti að þurrka kavíarinn úr munnvikunum

Einhverjir tóku þessum ummælum sem gagnrýni á stjórnarmeirihlutann og það að hann hafi fellt breytingartillöguna. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra var einn þeirra en hann svaraði forsetanum fullum hálsi á Twitter-síðu sinni:

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.Vísir/GVA
Þorsteinn bendir á það að fjárlagafrumvarpið verði ekki að lögum nema með undirskrift forsetans á gamlársdagsmorgun. Það hljóti að koma í ljós þá hvort forsetinn hafi ætlað orðum sínum að vera hvöss gagnrýni á ríkisstjórnina eða ekki.

„Stríði efni frumvarpsins gegn skoðunum eða samvisku forsetans eða hann telur að gjá sé milli þings og þjóðar um efni þess neitar hann að fallast á tillöguna og undirritar ekki frumvarpið,“ skrifar Þorsteinn. „Hafni forsetinn tillögu fjármálaráðherra fer ekki milli mála að svarið í sjónvarpinu var hvöss gagnrýni og stuðningur við tillögu stjórnarandstöðunnar eins og spurt var um.

Fari mál aftur á móti svo á gamlaársdagsmorgun að forseti fallist á tillöguna og undirriti lögin hefur svarið af hans hálfu annað hvort ekki verið hugsað sem gagnrýni og stuðningur við tillögu stjórnarandstöðunnar eða hann hefur beinlínis dregið í land með þau orð sem féllu.“


Tengdar fréttir

Bjarni skýtur föstum skotum á Ólaf Ragnar

„Hvað með að hætta að úthluta forsetanum milljónum fyrir stórveislur þar sem veisluborðin svigna,“ spyr Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×