Innlent

Segir að Costco fái ekki undanþágur umfram aðra

ingvar haraldsson skrifar
Ragnheiður Elín segir það ekki standa til að Costco fái sérmeðferð.
Ragnheiður Elín segir það ekki standa til að Costco fái sérmeðferð. vísir/stefán
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sagði í viðtali við Bítið í morgun að ekki standi til að veit fyrirhugaðri verslun Costco á Íslandi undanþágur umfram aðra verslunaraðila. „Það hefur aldrei staðið til að breyta reglum og veita undanþágur til eins fyrirtækis.“

Ragnheiður Elín segir það ætti að vera forræða annarra aðila en ráðherra að ákveða hvort Costco komi hingað til lands. „Ég sem iðanaðar- og viðskiptaráðherra vil helst ekki taka ákvörðun um hvaða búð eða verslun kemur hingað.“

Iðnaðarráðherra fagnar þó áhuga verslunarinnar á Íslandi og segir að koma hennar gæti aukið samkeppni, verslunarfrelsi og vöruframboð auk þess að lækka vöruverð.  

Áður hefur komið fram að Costco vill fá að selja lyf og áfengi í verslunum sínum auk þess að flytja inn ferskt kjöti frá Bandaríkjunum, sem er bannað miðað við núverandi lög. Ragnheiður segir stefnu ríkisstjórnarinnar vera skýra: „Stefnan er að heimila ekki innflutning á hráu kjöt. Það eru málaefnaleg rök fyrir því, við erum eyja og heimilum ekki innflutning á lifandi dýrum. Nú þurfum við að athuga hvort sé vilji að breyta þessu og sjá hvort einhver breyting verði.“

Ragnheiður Elín segir vinnu standa yfir við að skoða merkingar á innflutningi frá Bandaríkjunum sem sé óþarflega flókinn. „Það eru duldar og ekki svo duldar viðskiptahindranir er varða verslun og viðskipti við Bandaríkin. Það þarf að líma kringlóttan límmiða á hverja einustu vöru sem flutt er inn frá Bandaríkjunum. Við erum að skoða hvort það sé eitthvað sem við erum skuldbundin af vegna EES samningsins. Ef það er ekki viljum við skoða hvort hægt sé að merkja vörur með einfaldari hætti.“

Ragnheiður bætir svo við að auka þurfi frelsi sé bann á innfluttningi á fersku kjöti tekið út fyrir sviga: „Ef við tökum kjötið út og tökum áfengið og lyfin og allt þetta, verðum við að skoða það alvarlega hvort ekki sé kominn tími á að færa okkur í frelsisátt?“


Tengdar fréttir

Tilboð um heilbrigða samkeppni

Bandaríski smásölurisinn Costco hefur áhuga á að opna verzlun hér á landi, eins og fjölmiðlar hafa sagt frá undanfarna daga. Sögunni fylgir að Costco vilji líka fá að byggja fjölorkustöð og biðji um undanþágur frá ýmsum íslenzkum lögum og reglum.

Costco skrefinu nær með orkusöluleyfi

Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir orkusölu Costco með skilyrðum. Samtök verslunar og þjónustu fagna því ef frjálsræði eykst í verslun með innflutningi á kjöti og áfengissölu í verslunum.

Allir skulu sitja við sama borð

Formaður Samtaka Iðnaðarins furðar sig á skyndilegum áhuga íslenskra stjórnvalda á umturnun íslensks rekstrarumhverfis.

Fagna grundvallabreytingu stjórnvalda

Hagar fagna yfirlýsingu iðnaðar- og viðskiptaráðherra um breytingu á stefnu stjórnvalda í málum sem snúa að viðskiptafrelsi með sjálfsagðar neysluvörur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×