Viðskipti innlent

Segir að Bandaríkjamenn ættu að læra af Íslendingum hvernig reka eigi banka

ingvar haraldsson skrifar
Gunnar Smári Egilsson bendir á að hagnaður íslenska bankakerfisins sé 4% af landsframleiðslu samanborið við 0,88% prósent hjá bandaríska bankakerfinu.
Gunnar Smári Egilsson bendir á að hagnaður íslenska bankakerfisins sé 4% af landsframleiðslu samanborið við 0,88% prósent hjá bandaríska bankakerfinu. vísir/vilhelm
Gunnar Smári Egilsson, fyrrverandi ritstjóri, segir að miðað við hagnað bandarískra og íslenskra banka á síðasta ári ættu bandarískir bankamenn að fara á námskeið hjá íslenskum kollegum sínum í bankarekstri. Þetta kemur fram í færslu sem hann ritar á Facebook.



Sjá einnig: „Ég tel að bankarnir séu að taka til sín alltof mikið“


Gunnar Smári bendir á að samanlagður hagnaður bandaríska bankakerfisins hafi numið 152,7 milljörðum dollara á síðasta ári sem jafngildi 20.155 milljörðum íslenskra króna. „Hagnaður er ekki nema 0,88% af þjóðarframleiðslu Bandaríkjanna, sem var um 17.415 milljarðar dollara í fyrra eða nálægt 2.300.000 milljörðum króna,“ segir Gunnar Smári.



Sjá einnig: 80 milljarðar í samanlagðan hagnað


Hagnaður þriggja stærstu íslensku bankanna hafi hins vegar numið 80 milljörðum á síðasta ári sem jafngildi 4% af landsframleiðslu Íslands. „Ef bandarískir bankamenn færu íslensku leiðina og næðu jafn miklum hagnaði út úr sínu efnahagskerfi gætu þeir því aukið hagnað sinna fyrirtækja um næstum 560 milljarða Bandaríkjadala (næstum 74.000 milljarða íslenskra króna) sjálfum sér, hluthöfunum og samfélaginu öllu til hagsbóta,“ segir Gunnar Smári og lýkur færslunni á að „þá gætu Bandaríkin orðið eins og Ísland; vel lukkað samfélag.“

Færslu Gunnars Smára má lesa í heild sinni hér að neðan.


Tengdar fréttir

Eigendur bankanna fá ekki arðinn úr landi vegna hafta

Miðað við arðgreiðslustefnu Íslandsbanka hefði bankinn átt að greiða eigendum rúma níu milljarða króna í arð á síðasta ári. Vegna gjaldeyrishafta greiddi bankinn einungis fjóra. Arion banki greiddi mu

80 milljarðar í samanlagðan hagnað

Samanlagður hagnaður Íslandsbanka, Arion banka og Landsbankans nam 81 milljarði króna á síðasta ári. Hagnaður Landsbankans var mestur eða 29,7 milljarðar króna. Hagnaður Arion banka var 28,6 milljarðar og hagnaður Íslandsbanka 22,8.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×