Innlent

Segir 40 prósent tíundu bekkinga hafa veipað

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Fjögur af hverjum tíu ungmennum í tíunda bekk hafa prófað að veipa og tóbaksreykingar hafa aukist lítillega samkvæmt nýrri könnun Rannsókna og greiningu. Sérfræðingur hjá stofnuninni segir mikilvægt að stjórnvöld stígi varlega til jarðar þegar kemur að löggjöf um rafrettur.

Við sögðum frá því í fréttum okkar í gær að skoskur prófessor hafi fjallað um rannsóknir sínar á veipi hjá velferðarnefnd Alþingis í gær, í tengslum við frumvarp heilbrigðisráðherra um rafrettur. Hún vitnaði í rannsókn sem hún gerði á sextíuþúsund ungmennum þar sem fram hafi komið að ekki séu tengsli milli þess að veipa og leiðast út í reykingar síðar meir. Sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu hjá Háskólanum í Reykjavík segir að þetta sé á skjön við þær rannsóknir sem hann hafi séð um málið.

„Krakkar sem hafa ekki reykt neitt og byrja svo að veipa, ef þeim er fylgt eftir í eitt ár eru þau fjórum sinnum líklegri en krakkar sem ekki reykja til þess að taka upp tóbak,“ sagði Álfgeir L. Kristjánsson í símaviðtali í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Rannsóknir og greining gerir árlega rannsóknir á vímuefnaneyslu ungmenna hér á landi og í nýjustu rannsókninni kemur fram að ríflega fjögur af hverjum tíu ungmennum hafa einhvern tíma prófað að veipa. Hann segir reykingar hafa aukist lítillega milli ára. Álfgeir segir um afar mikla aukningu að ræða hér á landi. Álfgeir segir að mikilvægt að stjórnvöld stígi varlega til jarðar þegar kemur að löggjöf um rafrettur.

Viðtalið við Ásgeir má hlusta á í heild sinni í spilaranum að ofan. 


Tengdar fréttir

Prófessor telur rafrettur góða tóbaksvörn

Vinda þarf ofan af frumvarpi heilbrigðisráðherra um rafsígarettur að mati Halldóru Mogensen formanns velferðarnefndar Alþingis. Linda Bauld prófessor við Stirling háskóla í Bretlandi kom fyrir nefndina í morgun og ráðlagði nefndarfólki að grípa tækifærið og nýta rafrettur til tóbaksvarna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×