Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Armenar horfa á­fram til vesturs eftir kosningar

Sitjandi ríkisstjórn Armeníu hefur unnið hreinan meirihluta á þingi. Kosningar voru haldnar þar í landi á sunnudaginn og fékk flokkur Nikols Pashinyan, forsætisráðherra, 49,8 prósent atkvæða. Dugar það til meirihluta á þingi samkvæmt kosningakerfi ríkisins.

Erlent
Fréttamynd

Skutu niður dróna yfir Lett­landi í fyrsta sinn

Franskur flugmaður herþotu skaut í morgun niður dróna yfir Lettlandi. Úkraínskir sjálfsprengidrónar hafa nokkrum sinnum ratað inn í lofthelgi Eystrasaltsríkjanna og Finnlands á undanförnum mánuðum vegna rafrænna truflana sem eru hluti af loftvörnum Rússa gegn árásum Úkraínumanna.

Erlent
Fréttamynd

Íranir skjóta á Ísrael

Íranir gerðu í kvöld loftárás á Ísrael í kjölfar þess að Ísraelsmenn gerðu árásir í höfuðborg Líbanon fyrr í dag þrátt fyrir að vopnahlé eigi að vera í gildi þar. Þetta er fyrsta árás Írana á Ísrael í tæpan mánuð. Ísraelsmenn heita hefndum.

Erlent
Fréttamynd

Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug

Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur birt myndband af frumútgáfu ES-30 rafmagnsflugvélar sinnar í reynsluakstri á flugvellinum í Plattsburgh í norðurhluta New York-ríkis. Slíkar prófanir á jörðu niðri eru þýðingarmikill þáttur í undirbúningi fyrir fyrsta flugið.

Erlent
Fréttamynd

Bregðast við skammarbréfi Þor­gerðar og fé­laga

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins heitir því að ráðast í aðgerðir eftir að ellefu Schengen-ríki, þar á meðal Ísland, kröfðust þess að Evrópusambandsríki hertu á útgáfu vegabréfsáritana til rússneskra ríkisborgara. Þar gagnrýndu þau óbeint Frakka, Ítali og Spánverja sem enn taka á móti hundruðum þúsunda rússneskra ferðamanna á ári.

Erlent
Fréttamynd

Fær fangelsisfrí til að heim­sækja móður sína

Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit krónprinsessu Noregs, hefur hvorki fengið að heimsækja móður sína né vera viðstaddur mikilvæga læknisfundi er varða heilsufar hennar. Þetta gagnrýna verjendur hans en hann situr nú í gæsluvarðhaldi á meðan beðið er þess að dómur verði kveðinn upp í máli hans. Móðir hans veiktist alvarlega í vikunni en hún þjáist af lungnatrefjun.

Erlent
Fréttamynd

Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti

Heilsu krónprinsessu Noregs hefur hrakað verulega undanfarna mánuði vegna lungnasjúkdóms og í gær var greint frá því að hún væri á biðlista fyrir ígrætt lunga. Lungnalæknir segir þó ekki hlaupið að því að fá grætt í sig lunga.

Erlent
Fréttamynd

Pútín hafnar fundi með Selenskí og í­trekar kröfur Rússa

Vladimir Pútín Rússlandsforseti segist ekki sjá tilgang í því að funda með Vólódimír Selenskí Úkraínuforseta. Hann sagði opið bréf frá Selenskí þess efnis „dónalegt“ og ítrekaði að Rússar héldu fast við að ná fram öllum sínum markmiðum, það er að segja innlimun Donbas.

Erlent
Fréttamynd

Vill fá Ís­land inn og tólf í við­bót

Finnlandsforseti vill stækka Evrópusambandið allverulega og vill helst fjölga aðildarríkjum úr 27 í 40. Sambandið verði að „hugsa stórt“ og nefnir hann Ísland, Noreg og jafnvel Kanada í því samhengi.

Erlent
Fréttamynd

Nýr leki á rúss­neskum hluta geimstöðvarinnar

Rússneskir geimfarar ætla sér að framkvæma viðgerðir á rússneskum hluta Alþjóðlegu geimstöðvarinnar sem hefur lekið um árabil. Nýir lekar hafa greinst en geimfarar NASA áttu að leita sér skjóls um borð í geimfari sem er við geimstöðina á meðan viðgerðirnar yrðu framkvæmdar en hætt var við að gera þær í dag.

Erlent
Fréttamynd

Danska lög­reglan komin með nóg af drukknum börnum

Dönsk lögregluyfirvöld eru komin með nóg af hegðun drukkinna ungmenna í Árósum, þá sérstaklega í tívolíi borgarinnar á föstudagskvöldum. Framkvæmdastjóri tívolísins segist taka undir með áhyggjum lögregluyfirvalda en segir ekki á dagskránni að hækka aldur þeirra sem hleypt er inn í tívolíið.

Erlent
Fréttamynd

Hafði leigu­tekjur af hús­næði krúnunnar

Andrew Mountbatten-Windsor hafði þrjá bústaði í eigu bresku krúnunnar í útleigu þar til í apríl síðastliðnum og hafði af þeim leigutekjur sem runnu til hans en ekki krúnunnar. Þetta leiðir skýrsla bresku ríkisendurskoðunarinnar í ljós, sem ráðist var í vegna hneykslismálsins sem tengist vináttu Andrew við milljarðamæringinn og barnaníðinginn Jeffrey Epstein.

Erlent
Fréttamynd

Breyttu fóstur­vísum af meiri ná­kvæmni en áður

Vísindamönnum við Columbia-háskólann í Bandaríkjunum hefur tekist að breyta erfðamengi fósturvísa af fordæmalausri nákvæmni. Afrekið þykir geta leitt til þess að hægt verði að gefa börnum ákveðin einkenni og getu eftir pöntunum en tilhugsunin um slíkt hefur verið verulega umdeild um árabil.

Erlent
Fréttamynd

Segir Kúbu næsta á eftir Íran

Bandaríkin beittu í gær Miguel Díaz-Canel, forseta Kúbu, refsiaðgerðum. Auk hans voru eiginkona hans og þrír aðrir einnig beittir refsiaðgerðum en Bandaríkjamenn hafa sett verulegan þrýsting á nágranna sína og hefur Donald Trump hótað hernaðaraðgerðum gegn eyríkinu.

Erlent
Fréttamynd

Repúblikanar unnu kjör­dæma­stríðið

Útlit er fyrir að Repúblikanar geti grætt um tíu þingsæti í fulltrúadeildinni vegna breytinga á kjördæmum fyrir þingkosningarnar vestanhafs í nóvember. Það er að segja, ef allt fer eftir væntingum þeirra. Demókratar þurfa einungis nokkur sæti til að ná meirihluta í fulltrúadeildinni og bæði kannanir og sagan gefa Demókrötum byr undir báða vængi.

Erlent