Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Lögregla á höfuðborgarsvæðinu greip til rafvarnarvopns í gærkvöldi eða nótt en þurfti á endanum ekki að nota það. Tilkynning barst um yfirstandandi innbrot en sá sem tilkynnti var handtekinn. Innlent 9.6.2026 06:30
Vaxtaplanið sé tímaskekkja Rithöfundasamband Íslands telur vaxtarplan ríkisstjórnarinnar vera tímaskekkju þar ofuráhersla er lögð á störf sem tæknin er komin næst því að gera óþörf. Á sama tíma sé sneitt fram hjá verðmætustu vaxtatækifærum atvinnulífs. Innlent 8.6.2026 23:35
Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Vottorð frá kírópraktor varð til þess að maður var sýknaður af ákæru um ölvunarakstur. Meiðsli eftir bílbeltið gáfu til kynna að hann hefði setið í farþegasætinu. Innlent 8.6.2026 23:15
Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Hópur fólks sem samanstendur af tólf félögum í Sósíalistaflokki Íslands andmælir fundarboðun og þeim ákvörðunum sem teknar voru á aðalfundi flokksins sem fór fram um helgina, 6.–7. júní, og segir hann hafa verið skipulagðan í leynd. Innlent 8.6.2026 17:48
Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Börn í brottfararstöð verða í brennidepli í kvöldfréttum Sýnar. Umræða um frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð hefur ekki verið í átakafarvegi í þinginu en utan þings hafa ýmsir gagnrýnt harðlega að börn verði vistuð í stöðinni. Í kvöldfréttum mætast þau Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, og Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, sem munu eiga opið og hreinskiptið samtal um málið. Innlent 8.6.2026 17:44
Séra Guðni Már kveður Ísland Séra Guðni Már Harðarson hefur verið ráðinn sendiráðsprestur í Danmörku og prestur við íslenska söfnuðinn þar í landi. Hann hefur verið áberandi innan kirkjunnar og jarðsöng til að mynda tónlistarmanninn Björgvin Halldórsson og Bryndísi Klöru Birgisdóttur sem lést af sárum sínum eftir hnífstunguárás á Menningarnótt árið 2024. Innlent 8.6.2026 16:53
Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Margrét Friðriksdóttir leitar til almennings eftir styrkjum en hún hlaut að sögn þungt högg í héraðsdómi þegar hún var dæmd til að greiða sekt í ríkissjóð vegna ummæla um Barböru Björnsdóttur dómara þess efnis að hún væri lauslát mella. Innlent 8.6.2026 16:49
„Svaraðu spurningunni“ Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sakaði utanríkisráðherra um Evrópumet í mótsögn þegar til umræðu var þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB. Forseti Alþingis þurfti að biðja þingmenn að halda ró sinni í umræðum Innlent 8.6.2026 16:24
Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Sérsveitarmenn voru að störfum á Eskifirði í dag. Götu í bænum var lokað í dag og sáust sérsveitarmenn fara inn í hús þar. Þá var Lögreglan á Austurlandi einnig með dróna á lofti yfir bænum um tíma. Innlent 8.6.2026 15:15
Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Tjónið af völdum eldsins sem upp kom í Sorpu á Álfsnesi nemur um hundrað milljónum króna. Eldurinn kviknaði í timburhakkaravél sem skemmdist. Innlent 8.6.2026 14:55
Nær tvöföldun umsókna um meistaranám Umsóknum um nám við Háskólann á Akureyri fjölgaði um 8,5% milli ára. Innlent 8.6.2026 14:49
„Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Guðni Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, telur fráleitt að menn setji sig upp á móti tónleikahaldi á Þingvöllum en að sama skapi er honum mjög í nöp við að fólk sé að atast í jarðneskum leifum Jónasar Hallgrímssonar. Innlent 8.6.2026 13:48
Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Ungir Evrópusinnar hlutu verðlaun ungliðahreyfingar Viðreisnar á landsþingi hennar um helgina fyrir að sporna gegn upplýsingaóreiðu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Formaður hreyfingarinnar var endurkjörinn á þinginu. Innlent 8.6.2026 13:11
Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hefur verið auglýst til umsóknar. Þekktum nöfnum hefur verið kastað fram nú þegar leit er hafin að arftaka Höllu Bergþóru Björnsdóttur. Innlent 8.6.2026 12:45
Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Eldur hefur komið upp í vinnuvél í Álfsnesi á Kjalarnesi. Reykjarmökkur sést víða að og lögregla og slökkvilið eru á vettvangi. Innlent 8.6.2026 12:45
Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Utanríkisráðherra fullyrðir að möguleg innganga Íslands í Evrópusambandið hefði engin áhrif á varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna. Ísland væri skilgreint sem hluti af heimavarnasvæði Bandaríkjanna og væri grunnurinn að varnarsamstarfi ríkjanna tveggja. Innlent 8.6.2026 12:09
Enn í lífshættulegu ástandi Karlmaðurinn sem var fluttur til Noregs með brunasár eftir lögregluaðgerð í Reykjanesbæ er enn í lífshættu og enn á gjörgæslu að sögn lögmanns mannsins. Innlent 8.6.2026 12:09
Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart Kalla þurfti til lögreglu að Konukoti í síðustu viku og stendur til að bæta lýsingu og fjölga myndavélum vegna atviks sem þar kom upp, að sögn sviðsstjóra velferðarsviðs hjá Reykjavíkurborg, sem segir lýsingar fyrirtækjaeigenda um ófremdarástand í götunni þó koma á óvart þar sem reksturinn hafi heilt yfir gengið vel að hennar mati. Innlent 8.6.2026 12:03
ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Í hádegisfréttum fjöllum við um umræðurnar á þingi frá því í morgun. Þar var utanríkisráðherra meðal annars spurð út í hvort möguleg innganga Íslands í ESB hefði áhrif á varnarsamninginn við Bandaríkjamenn. Hún segir svo ekki vera. Innlent 8.6.2026 11:42
Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað Samkomulag hefur verið undirritað um samstarf vegna hagsmunagæslu landaheitisins Ísland eða Iceland. Markmið samstarfsins er að vernda ímynd Íslands og gæta hagsmuna íslenskra útflutningsgreina þegar landaheitið er notað við markaðssetningu á erlendum markaði. Innlent 8.6.2026 11:04
„Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ „Það segir sig sjálft að þú rekur ekki hótel í Flatey ef það eru ekki ferjusiglingar,“ segir einn eigenda Hótels Flateyjar. Innlent 8.6.2026 11:03
Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók einstakling í nótt í tengslum við líkamsárás, þjófnað og brot á lögum um útlendinga. Viðkomandi hrækti í andlitið á starfsmanni skemmtistaðar og einnig í andlit lögreglumanns við handtöku. Á lögreglustöð kom í ljós að hann var eftirlýstur. Innlent 8.6.2026 06:58
Drengurinn fannst heill á húfi Drengurinn sem lögregla lýsti eftir í kvöld er fundinn heill á húfi. Innlent 7.6.2026 21:27
„Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Rússneska njósnaskipið sem siglir nú í efnahagslögsögu Íslands hefur verið kallað „ofurnjósnaskip Pútíns“ en það er hluti af norðurflota rússneska sjóhersins. Íslensk varnarmálayfirvöld hafa engar sérstakar áhyggjur af skipinu enda stafar lítil sem engin hætta af sjálfu sjófarinu. Algengt er orðið að rússnesk sjó- og loftför sveimi um á norðurslóðum. Innlent 7.6.2026 23:12