Viðskipti erlent

Fréttamynd

OpenAI setur einnig stefnuna á hluta­fjár­út­boð

Forsvarsmenn gervigreindarfyrirtækisins OpenAI hófu í gær formlega ferli hlutafjárútboðs, sem gæti átt sér stað í haust. Þá gæti reynt á það hve mikið fjárfestar eru sólgnir í að fjárfesta í gervigreindarfyrirtækjum en forsvarsmenn fyrirtækisins Anthropic, sem rekur gervigreindina Claude, stefna einnig að hlutafjárútboði um þetta leyti. Það sama má segja um SpaceX, sem rekur meðal annars gervigreindina Grok.

Viðskipti erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot

Norska raftækjaverslunarkeðjan Elkjøp hefur verið sektuð í Noregi fyrir persónuverndarlagabrot á viðskiptavinum í svokölluðum kúnnaklúbbi. Brotið er sagt varða tæplega 6,7 milljónir viðskiptavina félagsins vítt og breitt um Norðurlöndin. Íslendingar þekkja verslanir vörumerkisins sem Elko. Persónuvernd á Íslandi kveðst ekki hafa haft aðkomu að málinu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Verð­mætasta fyrir­tæki heims slær enn eitt metið

Sölutekjur Nvidia, verðmætasta fyrirtækis heims, jukust um 85 prósent á síðasta uppgjörsfjórðungi, borið saman við sama tímabil í fyrra. Tekjurnar voru meiri en greinendur gerðu ráð, eða um 3,4 prósentum meiri. Hagnaðurinn var þó 36,5 prósentum meiri en búið var að spá og er það vegna gífurlegrar eftirspurnar eftir tölvuflögum fyrir gervigreind.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað

Kröfum Elons Musk, auðugasta manns heims, á hendur Sam Altman og gervigreindarfélaginu OpenAI, sem Musk og Altman komu að því að stofna á sínum tíma, hefur verið hafnað. Níu kviðdómendur komust einróma að þeirri niðurstöðu eftir þriggja vikna réttarhöld og vitnisburði beggja auðjöfranna.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Hefur „nær engar á­hyggjur“ af eldsneytisskorti

Michael O'Leary forstjóri írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair segist hafa „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti félagsins í sumar þrátt fyrir viðvarandi eldsneytisskort margra flugfélaga vegna Íransstríðsins. Hann varar þó við því að flugfargjöld geti hækkað síðar á árinu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

GameStop vill kaupa eBay

Ryan Cohen, forstjóri GameStop, hefur gert 56 milljarða dala boð í fyrirtækið eBay, sem hann segist vilja byggja upp og gera samkeppnishæft við Amazon, risann á sviði netsölu. Bæði fyrirtækin mega muna sinn fífil fegurri en reksturinn hefur ekki gengið vel á undanförnum árum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri

Bandaríska lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hefur hætt allri starfsemi og fellt öll skipulögð flug niður frá og með í dag, laugardaginn 2. maí. Í tilkynningu frá félaginu segir að hækkun olíuverðs og misheppnuð tilraun fyrirtækisins til að endurskipuleggja reksturinn hafi spilað inn í niðurlagninguna.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Fursta­dæmin yfir­gefa OPEC

Ráðamenn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum lýstu því yfir í dag að ríkið ætlaði að yfirgefa samtök olíuútflutningsríkja eða OPEC-ríkin svokölluðu. Furstadæmin hafa lengi tilheyrt hópnum og er útlit fyrir að um þungt högg fyrir hann sé um að ræða, á sama tíma og olíuverð hefur hækkað verulega og markaðurinn er í mikilli óvissu vegna átakanna í Mið-Austurlöndum og lokunar Hormússunds.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Tim Cook stígur til hliðar

Tim Cook, forstjóri tæknirisans Apple, mun stíga til hliðar úr starfi sínu seinna á þessu ári og þess í stað verða stjórnarformaður. Cook hefur stjórnað Apple frá því hann tók við starfinu af Steve Jobs, skömmu fyrir andlát hans, árið 2011. 

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Sementsrisi dæmdur fyrir að fjár­magna Ríki íslams

Franskur dómstóll dæmdi sementsframleiðandann Lafarge til þess að greiða sekt og stjórnendur þess í fangelsi fyrir að fjármagna hryðjuverkasamtök í Sýrlandi. Fyrirtækið greiddi samtökunum svokallað verndargjald til þess að halda starfsemi sinni í landinu stríðshrjáða gangandi.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf

Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði í dag forsetatilskipun sem felur í sér hundrað prósenta toll á innflutt lyf sem framleidd eru undir einkaleyfi. Framleiðendur geta komið sér hjá tollinum með því að semja við Bandaríkjastjórn um lægra verðlag eða skuldbinda sig til að framleiða lyfin innan Bandaríkjanna.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Fylgja for­dæmi Ís­lands og fara gegn vísindunum

Evrópu­sam­bandið fylgir for­dæmi Ís­lands og hefur heimilað of­veiði á makríl í Norður-Atlantshafi, þvert á ráð­leggingar vísinda­manna og Alþjóða­haf­rannsóknarráðsins. Fram­kvæmda­stjóri Icelandic Susta­ina­ble Fisheries lýsir áhyggjum af framtíð makríl­stofnsins og segir ljóst að með þessu áfram­haldi geti stofninn ekki endur­nýjað sig.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Apple hættir fram­leiðslu Mac Pro-borðtölvunnar

Apple hefur hætt framleiðslu á Mac Pro-borðtölvu sinni og hefur fjarlægt tölvuna af vef sínum samkvæmt erlendum miðlum. Í fréttum 9to5 og Macrumours segir að Apple hafi greint frá því að ekki standi til að hanna nýja týpu af tölvunni eða nýtt módel.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Tímamótadómur: Fyrir­tækin sjálf á­byrg en ekki not­endur

Tímamótadómur var kveðinn upp í Los Angeles í Bandaríkjunum í gær í máli þar sem andleg veikindi ungrar konu voru rakin til notkunar á samfélagsmiðlunum Instagram og Youtube. Fyrirtækin Meta og Google voru dæmd til þess að greiða fjölskyldu konunnar sex milljónir Bandaríkjadala í miskabætur, eða um 840 milljónir íslenskra króna. Tiktok og Snapchat gerðu dómsátt í málinu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

OpenAI kippir Sora úr sam­bandi

Sam Altman, forstjóri OpenAI, tilkynnti starfsmönnum í dag að fyrirtækið væri að hætta með Sora-myndbandaþjónustuna. Það er þjónusta sem hefur gert notendum kleift að búa til nokkuð raunveruleg en stutt myndbönd með aðstoð gervigreindar. Ákvörðunin er liður í nokkuð umfangsmiklum breytingum á rekstri gervigreindarfyrirtækisins.

Viðskipti erlent