Viðskipti erlent
Sam­runi Paramount og Warner Bros sam­þykktur
      <description>Kaup Paramount á Warner Bros hafa verið samþykkt af dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna en salan hefur verið umdeild, meðal annars vegna tengsla forstjóra Paramount og Donalds Trump forseta. Þrátt fyrir samþykkið eru kaupin ekki frágengin og enn er mögulegt að ríki höfði mál til að stöðva söluna.</description>
Heimsins fyrsti billjónamæringur
      <description>Auðkýfingurinn Elon Musk varð í dag heimsins fyrsti billjónamæringur eftir að hlutabréf í fyrirtæki hans SpaceX ruku upp við stærstu útgáfu hlutabréfa í sögunni.</description>
Sögu­legri skráningu SpaceX lokið
      <description>SpaceX, geimferða- og tæknifyrirtæki Elons Musk, hefur verið skráð á markað vestanhafs eftir 75 milljarða dala hlutafjárútboð, sem var það stærsta í sögunni. Útboðið og skráning SpaceX gæti gert Musk, sem er fyrir auðugasti maður jarðarinnar og vel það, að fyrsta billjónamæringi heims (í dölum talið).</description>
Hefja rann­sókn á Ryanair
      <description>Samkeppnis- og markaðseftirlit Bretlands hefur hafið rannsókn á breska lággjaldaflugfélaginu Ryanair vegna gjalda sem farþegar þurfa að greiða svo foreldrar og börnin þeirra geti setið saman í flugferð.</description>
Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023
      <description>Seðlabanki Evrópu (ECB) hefur nú hækkað stýrivexti í fyrsta sinn í nærri þrjú ár í von um að sporna gegn verðbólgu. Bankinn er sá fyrsti af mörgum stærstu seðlabönkum heims til að bregðast við hinu svokallaða orkuáfalli en eldsneytisverð hefur rokið upp undanfarna mánuði vegna stríðsins í Íran. Hagfræðingar hafa undanfarið deilt um hvort ákvörðunin sé réttlætanleg.</description>
Rann­saka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka for­eldra fyrir að sitja með börnum sínum
      <description>Breska samkeppniseftirlitið (CMA) hefur hafið rannsókn á gjaldtöku Ryanair. Málið varðar reglu flugfélagsins sem skyldar foreldra til að bóka sæti við hlið barns eða barna sinna á aldrinum tveggja til ellefu ára og rukkar fyrir sætið.</description>
OpenAI setur einnig stefnuna á hluta­fjár­út­boð
      <description>Forsvarsmenn gervigreindarfyrirtækisins OpenAI hófu í gær formlega ferli hlutafjárútboðs, sem gæti átt sér stað í haust. Þá gæti reynt á það hve mikið fjárfestar eru sólgnir í að fjárfesta í gervigreindarfyrirtækjum en forsvarsmenn fyrirtækisins Anthropic, sem rekur gervigreindina Claude, stefna einnig að hlutafjárútboði um þetta leyti. Það sama má segja um SpaceX, sem rekur meðal annars gervigreindina Grok.</description>
Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot
      <description>Norska raftækjaverslunarkeðjan Elkjøp hefur verið sektuð í Noregi fyrir persónuverndarlagabrot á viðskiptavinum í svokölluðum kúnnaklúbbi. Brotið er sagt varða tæplega 6,7 milljónir viðskiptavina félagsins vítt og breitt um Norðurlöndin. Íslendingar þekkja verslanir vörumerkisins sem Elko. Persónuvernd á Íslandi kveðst ekki hafa haft aðkomu að málinu.</description>
Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu
      <description>Jack Clark, einn af stofnendum Anthropic, segir nauðsynlegt að geta hægt á þróun gervigreindar ef illa fer. „Þú vilt geta tekið fótinn af bensíngjöfinni og sett hann á bremsuna. Gervigreindariðnaðurinn er með bensíngjöf en er án bremsu,“ sagði hann í viðtali við BBC Newsnight.</description>
Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár
      <description>Forsvarsmenn geimferða- og tæknifyrirtækisins SpaceX ætla að verðleggja hvern hlut í félaginu, þegar hlutafjárútboð verður haldið, á 135 dali. Stefnt er að því að selja 555,6 milljónir hluta fyrir alls 75 milljarða dala. Það samsvarar um 9,3 billjónum króna.</description>
Anthropic nær for­skoti í kapp­hlaupinu gegn OpenAI
      <description>Forsvarsmenn gervigreindarfyrirtækisins Anthropic hófu í gær formlega undirbúning fyrir hlutafjárútboð. Fyrirtækið gæti verið komið á hlutabréfamarkað fyrir haustið en eigendur þess og eigendur OpenAI eru í keppni um hverjir verða fyrstir.</description>
Ný flaga færir gervi­greindina af skýinu
      <description>Jensen Huang, forstjóri Nvidia, opinberaði í morgun nýja tölvuflögu sem á að gera fólki kleift að nýta sér gervigreind án þess að þurfa að treysta á skýjaþjónustu. Búist er við því að flagan muni geta leitt til grundvallarbreytinga þegar kemur að því hvernig fólk notar gervigreind.</description>
Bora eftir jarð­hita á Tenerife
      <description>Reykjavík Geothermal, í samstarfi við stjórnvöld og orkufyrirtæki á Tenerife, hefur hafið jarðhitaboranir til raforkuframleiðslu á Kanaríeyjum. Verkefnið er sagt marka stór tímamót í vegferð eyjanna í átt að hreinni, öruggari og staðbundinni orkuframleiðslu.</description>
ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna
      <description>Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði tvö hundruð milljóna evra sekt á kínversku netverslunina Temu fyrir að selja ólöglegan varning í Evrópu í dag. Sektin er sú stærsta frá því að lög um stafræna þjónustu tóku gildi í álfunni.</description>
Meiri­háttar truflanir á greiðslu­miðlun á Norður­löndum
      <description>Meiriháttar truflanir eru á greiðslumiðlun í Danmörku, Svíþjóð og í Noregi. Ástæðan er bilun í tölvukerfi hjá greiðslumiðluninni Nets, sem er ein sú stærsta á Norðurlöndum.</description>
Verð­mætasta fyrir­tæki heims slær enn eitt metið
      <description>Sölutekjur Nvidia, verðmætasta fyrirtækis heims, jukust um 85 prósent á síðasta uppgjörsfjórðungi, borið saman við sama tímabil í fyrra. Tekjurnar voru meiri en greinendur gerðu ráð, eða um 3,4 prósentum meiri. Hagnaðurinn var þó 36,5 prósentum meiri en búið var að spá og er það vegna gífurlegrar eftirspurnar eftir tölvuflögum fyrir gervigreind.</description>
Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað
      <description>Kröfum Elons Musk, auðugasta manns heims, á hendur Sam Altman og gervigreindarfélaginu OpenAI, sem Musk og Altman komu að því að stofna á sínum tíma, hefur verið hafnað. Níu kviðdómendur komust einróma að þeirri niðurstöðu eftir þriggja vikna réttarhöld og vitnisburði beggja auðjöfranna.</description>
Hefur „nær engar á­hyggjur“ af eldsneytisskorti
      <description>Michael O'Leary forstjóri írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair segist hafa „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti félagsins í sumar þrátt fyrir viðvarandi eldsneytisskort margra flugfélaga vegna Íransstríðsins. Hann varar þó við því að flugfargjöld geti hækkað síðar á árinu.</description>
Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp
      <description>Á sama tíma og evrópsk flugfélög tilkynntu um samdrátt í flugáætlunum þeirra vegna stórhækkaðs eldsneytisverðs fjölgaði einkaþotuferðum í síðasta mánuði. Einaþotuútgerðir láta gagnrýni sér sem vind um eyru þjóta.</description>
GameStop vill kaupa eBay
      <description>Ryan Cohen, forstjóri GameStop, hefur gert 56 milljarða dala boð í fyrirtækið eBay, sem hann segist vilja byggja upp og gera samkeppnishæft við Amazon, risann á sviði netsölu. Bæði fyrirtækin mega muna sinn fífil fegurri en reksturinn hefur ekki gengið vel á undanförnum árum.</description>
Einn ríkasti maður Noregs látinn
      <description>Stein Erik Hagen, stjórnarformaður norska verslunarrisans Orkla og einn ríkasti maður Noregs, er látinn. Hann varð 69 ára gamall.</description>
Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri
      <description>Bandaríska lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hefur hætt allri starfsemi og fellt öll skipulögð flug niður frá og með í dag, laugardaginn 2. maí. Í tilkynningu frá félaginu segir að hækkun olíuverðs og misheppnuð tilraun fyrirtækisins til að endurskipuleggja reksturinn hafi spilað inn í niðurlagninguna.</description>
Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent
      <description>Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti í gær að hann ætlaði að hækka tolla á evrópska bíla í 25 prósent. Hann sakaði á sama tíma Evrópusambandið um að standa ekki við viðskiptasamninga sína við Bandaríkin en útskýrði það þó ekki nánar.</description>