Viðskipti

Slökkva á ofni vegna verndar­ráð­stafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“

Forsvarsmenn Elkem á Íslandi hafa ákveðið að slökkva á einum þriggja ofna járnblendisverksmiðju félagsins á Grundatanga í sumar. Þetta er gert vegna verndarráðstafana Evrópusambandsins vegna kísilmálma. Með því að draga úr framleiðslunni yfir sumartímann getur félagið haldið öllu fastráðnu starfsfólki í vinnu en lítið sem ekkert verður ráðið í sumarstörf.

Viðskipti innlent

Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga raf­virkja

Starfsmannaleigu hefur verið gert að endurgreiða starfsmanni sínum 15 þúsund krónur sem dregnar voru af launum hans vegna meints brots á húsreglum, en starfsmaðurinn leigði herbergi af starfsmannaleigunni. Þá var starfsmannaleigunni einnig gert að endurgreiða starfsmanninum ofgreidda leigu.

Viðskipti innlent

Flug­menn og Icelandair funda á morgun

Fundað verður í kjaradeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair klukkan 16 á morgun. Í samtali við fréttastofu segir Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari, að ekki sé vitað hvort deiluaðilar færist nær hvor öðrum. Skýrari mynd fáist á það á fundinum.

Viðskipti innlent

Öl­gerðin hækkar verðin

Ölgerðin hefur tilkynnt viðskiptavinum að hún ætli að hækka verð á framleiðsluvörum sínum. Vörur í dós hækka um 2,1 prósent í verði, að undanskildum Collab sem hækkar um 1,1 prósent. Vörur í plasti hækka einnig um 1,1 prósent en aðrar framleiðsluvörur um 0,8 prósent.

Neytendur

Segir sjaldan hafa verið auð­veldara að vera fyrsti kaupandi

Þvert á það sem margir halda fram hefur sjaldan verið auðveldara fyrir ungt fólk að kaupa sér húsnæði, að sögn fasteignasala. Hann bendir á að fyrstu kaupendur geti fengið allt að 90% fjármögnun, tekið hlutdeildarlán, nýtt séreignasparnað í fyrstu kaup og nýtt ýmsar aðrar sérlausnir sem ekki voru til staðar áður fyrr.

Neytendur

Hættu við sam­runann vegna af­skipta Samkeppniseftirlitsins

Lyfja og Einar Birgir Haraldsson, eigandi Borgar apóteks, hafa komist að samkomulagi um að falla frá fyrirhuguðum kaupum Lyfju á Borgar apóteki í Borgartúni. Samrunatilkynning sem var til meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu hefur því verið afturkölluð. Ástæðan er sögð frummat Samkeppniseftirlitsins á samrunanum.

Viðskipti innlent

Kvika sendi starfs­mönnum kalda kveðju

Formaður Samtaka starfsmanna í fjármálaþjónustu segir skilaboð Kviku banka til starfsfólks skýr eftir að félagið greiddi milljarða í arð sama dag og ellefu var sagt upp. Botnlaus gróðafýsn stjórni ansi miklu í samfélaginu í dag. Forstjóri Kviku segir engin tengsl milli uppsagna og arðgreiðslu.

Viðskipti innlent

Hreyfing í við­ræðum Icelandair og flug­manna

Hreyfing er í kjaraviðræðum Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA), að sögn ríkissáttasemjara. Icelandair hafi í kvöld kynnt heildstæðari nálgun á kjaramál flugmanna sem fulltrúar þeirra hafi nú til skoðunar. Fundi samningsaðila lauk um klukkan 21:35 í Karphúsinu og hafði staðið yfir frá 19:00.

Viðskipti innlent