The Artist

Kvikmyndin The Artist hefur farið sigurför um heiminn. Hún var sigurvegarinn á Golden Globe hátíðinni þar sem hún hlaut alls þrenn verðlaun, meðal annars sem besta gamanmyndin. Aðalleikari myndarinnar, Jean Dujardin, var einnig valinn besti leikarinn í aðalhlutverki á Kvikmyndahátíðinni í Cannes, svo fátt eitt sé nefnt. Myndin fjallar um George Valentin og Peppy Miller. Valentin var ein af stjörnum þöglu kvikmyndanna í Hollywood á þriðja áratugnum. Stjarna hans hrapar þegar talmyndir koma til sögunnar en á sama tíma rís stjarna Miller í talmyndum.

7925
02:30

Næst í spilun: Erlendar kvikmyndir

Vinsælt í flokknum Erlendar kvikmyndir