Luka Karabatic: Urðum að spila okkar besta leik til að vinna
Luka Karabatic er yngri bróðir hins frábæra leikmanns, Nikola Karabatic. Hlutverk hans er að standa vaktina í vörninni. Það gerði hann í úrslitaleiknum í kvöld með sóma líkt og í öðrum leikjum Frakka.