Safna hjólum fyrir efnaminni börn

Hjól sem standa óhreyfð inni í bílskúr geta nú öðlast nýtt líf. Barnaheill og hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon standa fyrir hjólasöfnun á landsvísu sem stendur til 11. júní næstkomandi. Hjólum verður safnað á endurvinnslustöðvum Gámaþjónustunnar og Hringrásar um landið allt og hjá Sorpu á höfuðborgarsvæðinu. Hjólin eru ætluð börnum sem ekki hafa kost á því að kaupa sér reiðhjól. Hjólin sem safnast verða gerð upp af sjálfboðaliðum undir styrkri stjórn sérfræðinga í reiðhjólaviðgerðum og afhent af mæðrastyrksnefndum að lokinni hjólreiðakeppninni, WOW Cyclothon, 22. júní næstkomandi. Þann 16. júní geta allir sem vilja lagt hönd á plóg við að koma hjólunum í stand áður en þau fara í dreifingu. Þá koma saman sérfræðingar í reiðhjólaviðgerðum, liðin sem taka þátt í WOW Cyclothon, sjálfboðaliðar og fleira fólk sem vill leggja söfnuninni lið.

5070
04:08

Vinsælt í flokknum Ísland í dag