Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag „Ég hélt bara að árið 2026 væri fólk búið að sjá meira og minna allt og að þetta myndi kannski ekki alveg kveikja á þessum viðbrögðum,“ segir listakonan og dansarinn Lísandra Týra Jónsdóttir sem setti upp gjörninginn „The Urinal“ í sýningarrými á Ingólfsstræti síðastliðna helgi. Gjörningurinn var óhefðbundinn eins og gengur og gerist í slíku listformi en hann snerist um að pissa í klósett í sjö klukkustundir á dag í sex daga í röð. Menning 9.6.2026 20:02
Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Myndlistarkonan Kristín Morthens opnaði nýverið sýninguna Að teygja tvílýsið í Þulu gallerý í Marshall-húsinu. Sýningin fjallar um það að staldra við í óvissu og stendur yfir til 28. júní. Fjöldi góðra gesta mætti á sýningaropnunina, þar með talið verkalýðsleiðtogi og utanríkisráðherra. Menning 9.6.2026 12:26
Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Breski glæpasagnahöfundurinn Ann Cleeves birtist fyrirvaralaust í bókaverslun Pennans Eymundssonar á Ísafirði og bauðst til að árita bækur. Cleeves, sem hefur verið þýdd 21 sinni á íslensku, var á ferðalagi með skemmtiferðaskipi sem stoppaði í bænum. Menning 5.6.2026 13:41
Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Leikhúsgagnrýnandi Vísis segir stóra skandalinn á Grímunni vera að Benedict Andrews hafi ekki verið valinn leikstjóri ársins þegar Óresteia var valin bæði sýning og leikrit ársins. Ótvíræðu tapliðin í ár séu aðstandendur Ormstungu og Borgarleikhúsið meðan óvæntur sigurvegari sé óperan Sæmundur fróði. Menning 27.5.2026 12:06
Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Harmleikurinn Óresteia og barnasýningin Lína langsokkur hlutu flest verðlaun á Grímunni í ár eða fjögur verðlaun hvor. Óresteia var valin sýning og leikrit ársins og Agnes Wild var valin leikstjóri ársins fyrir Línu Langsokk. Söngleikurinn Ormstunga sem var tilnefndur til tólf verðlauna hlaut engin. Menning 26.5.2026 22:19
Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes Norsk-rúmenska kvikmyndin Fjörður í leikstjórn Cristian Mungiu hlaut Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi í gær. Þá fékk Minotaur eftir Andreï Zviaguintsev Grand Prix-verðlaunin. Þetta er í 79. skipti sem hátíðin fer fram. Menning 24.5.2026 18:25
„Þetta parísarhjól sökkar“ Fréttir af því að parísarhjól á Miðbakka muni líklega rísa á ný hafa fallið í grýttan jarðveg. Margir undra sig á ákvörðun borgarinnar um að ganga til viðræðna við rekstraraðila hjólsins og syrgja körfuboltavöllinn og hjólabrettasvæðið sem var þar áður. Formaður borgarráðs segir að ekki hafi fundist tími til að finna eitthvað annað fyrir svæðið og að tilvonandi meirihluti hafi ekki sett sig upp á móti framlengingunni. Menning 22.5.2026 16:31
Tónlistariðnaðurinn mikið til „klám og rúnk“ Bubbi Morthens syngur á nýrri plötu um nándarleysi sem hann burðaðist með lengi síðan hann varð fyrir misnotkun. Þá þurfti hann að horfast í augu við eigin dauðleika fyrir nokkrum árum þegar slagæð rifnaði í hálsi hans. Bubbi mætti í Menningarvaktina til Símonar Birgissonar leikhúsgagnrýnanda til að ræða plötuna og grófu þeir í leiðinni stríðsöxina. Menning 20.5.2026 07:03
Lætur Parkinson ekki lengur stöðva sig Eftir um þrjátíu ára ljósmyndaferil neyddist ljósmyndarinn Geir Ólafsson til að leggja myndavélina á hilluna í kjölfar Parkinson-greiningar. Ástríðan fyrir ljósmyndun var þó enn til staðar og í fyrra tók hann myndavélina upp á ný. Á morgun sýnir Geir afrakstur síðasta árs með ljósmyndasýningunni Skjálfta í húsnæði Parkinsonsamtakanna í Sankti Jósefsspítala. Menning 15.5.2026 13:24
Borgin vill breyta Ingólfstorgi í sumarmarkað: „Eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Hjólabrettakappar eru æfir yfir áformum Reykjavíkurborgar um að leggja Ingólfstorg undir sölubása og götumarkað í allt sumar. Torgið hefur verið allra helgasti reitur hjólabrettaiðkenda á Íslandi síðustu ár en fregnirnar koma þeim í galopna skjöldu. Menning 14.5.2026 13:53
Tíminn stóð í stað í bílveltunni „Þetta hafði engin sérstök áhrif á líf mitt önnur en þau að ég lifði af,“ segir listamaðurinn Tolli Morthens sem lenti eitt sinn í bílveltu í Kollafirði og segist hafa upplifað tímann löturhægt á meðan. Hann er viðmælandi í þættinum Litlu hlutirnir þar sem hann ræðir meðal annars um æskuna, fíkn og sjálfsvinnu, listina og lífið sjálft. Menning 12.5.2026 07:03
Sjóðheitir listamenn í eina litríka sæng Við strendur Skerjafjarðar hefur nýtt hönnunarstúdíó litið dagsins ljós. Það ber heitið ÓRAR og er hugarfóstur og samstarfsverkefni listamannanna Elsu Jónsdóttur og Júlíönnu Ósk Hafberg. Þær fögnuðu með glæsilegri opnun á Parliament hótelinu um helgina. Menning 11.5.2026 16:01
Benedict snýr aftur í Þjóðleikhúsið og Óresteia í útrás Harmleikurinn Óresteia eftir ástralska verðlaunaleikstjórann Benedict Andrews, sem sló í gegn í Þjóðleikhúsinu í vetur, er á leið á erlendar leiklistarhátíðar. Andrews mun sömuleiðis snúa aftur í Þjóðleikhúsið með nýja sýningu haustið 2027. Menning 11.5.2026 09:32
Heiðra Sigrúnu Eldjárn með sérstöku brunnloki í Lækjargötu Sérstök bókmenntamerking til heiðurs barnabókahöfundinum Sigrúnu Eldjárn var afhjúpað með viðhöfn við Lækjargötu 14 í dag. Menning 8.5.2026 14:31
Myndlistarkonan Rúna er látin Myndlistarkonan Sigrún Guðjónsdóttir, betur þekkt sem Rúna, er látin, 99 ára að aldri. Listaferill Rúnu spannaði átta áratugi og starfaði hún þvert á ólíka miðla málaralistar, leirlistar, hönnunar og myndlýsinga. Hún var meðal ástsælustu myndlistarmanna þjóðarinnar, var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu og hlaut heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands. Menning 6.5.2026 10:37
Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Galdrakarlinn í Oz í Borgarleikhúsinu átti upphaflega að vera allt önnur sýning: barna- og fjölskyldusýning byggð á ævintýraheiminum Narníu. Óvænt útspil frá Netflix vegna nýrrar Hollywood-myndar setti hins vegar strik í reikninginn. Menning 5.5.2026 07:02
Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur og rithöfundur, var sæmdur heiðursborgaranafnbót Reykjavíkur af Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Menning 30.4.2026 16:03
Krefja Apple um íslensku Logi Einarsson menningarráðherra fundaði í síðustu viku með fulltrúum Apple í Lundúnum og óskaði eftir því að íslenska verði hluti af iOs-stýrikerfi Apple. Á fundinum sýndi Logi myndband með kveðjum frá íslenskum listamönnum sem hafa unnið með Apple þar sem þeir lýstu yfir mikilvægi íslenskrar tungu. Menning 27.4.2026 13:47
Þakklát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu „Ég hef mikla þörf fyrir það að segja sögur og ætlaði alltaf að verða rithöfundur. Ég elska bókmenntir og þegar ég var tíu ára fékk ég verðlaun frá forseta Íslands því ég var búin að lesa allt bókasafnið,“ segir listakonan Saga Sig en hún er viðmælandi í fyrsta þætti af Litlu hlutunum með Kára Sverris. Menning 27.4.2026 12:02
Íbúar furða sig á horfnu listaverki Listaverkið Sunnudagur frá 2000 eftir Guðjón Ketilsson hefur staðið í Grafarvogi í rúm tuttugu ár, eða gerði það öllu heldur. Verkið hefur að mestu leyti verið fjarlægt en á næstu vikum mega íbúar búast við því að sjá það endurbætt og í betra ásigkomulagi á sama stað og það var. Menning 25.4.2026 11:12
Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Borgarleikhúsið hefur svipt hulunni af því hver mun fara með hlutverk Trölla í fjölskyldusöngleiknum Þegar Trölli stal jólunum, sem verður frumsýndur á Stóra sviðinu í nóvember næstkomandi, en það er enginn annar en Björgvin Franz Gíslason. Menning 24.4.2026 10:27
Villi vandræðaskáld valinn bæjarlistamaður Akureyrar Vilhjálmur B. Bragason, eða Villi vandræðaskáld, er bæjarlistamaður Akureyrar 2026 þar sem hann hefru sett mark sitt á listalíf Akureyrar og landsins alls. Hann vakti einnig athygli í Kryddsíldinni síðustu áramót. Menning 23.4.2026 23:39
Ævar Þór, Birna og Jón hlutu Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar voru veitt við hátíðlega athöfn í Höfða fyrr í dag. Ævar Þór Benediktsson hlaut verðlaun í flokki frumsaminna verka fyrir Skólastjórann, Birna Daníelsdóttir í flokki myndlýsinga fyrir Ég bý í risalandi og Jón St. Kristjánsson í flokki þýðinga fyrir Undrarútuna. Menning 22.4.2026 15:53
„Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ „Það virðist vera óumflýjanlegt fyrir mig að detta niður í mesta myrkrinu. Í vetur ákvað ég að spyrna við, breyta vörn í sókn og rómantísera myrkrið,“ segir myndlistarkonan Ragnhildur Jóhanns, sem hefur vakið athygli fyrir einstök listaverk sín og eru blómin vinsælt viðfangsefni hjá henni. Blaðamaður ræddi við hana um listina, lífið og andlega heilsu. Menning 21.4.2026 20:02