Bíó og sjónvarp
Tyra Banks kærir Netflix fyrir æru­meiðingar
      <description>Tyra Banks hefur kært Netflix fyrir ærumeiðingar vegna heimildarþátta sem þau gerðu um America‘s Next Top Model. Þættirnir voru frumsýndir fyrr á árinu og vöktu mikla athygli. Í málsókn sinni segir Tyra að framleiðendur hafi klippt margra klukkustunda viðtal við hana niður í nokkra stutta búta til að búa til „falska frásögn“.</description>
Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur
      <description>Leikarinn Seth Rogen segist ekki hafa talað við sinn gamla vin, James Franco, í áraraðir og hann hafi ekki í hyggju að vinna með honum frekar. Þeir hófu ferilinn saman í sjónvarpsþáttunum Freaks and Geeks og unnu náið saman við fjölda mynda. Í MeToo-bylgjunni stigu fram fimm konur og sökuðu Franco um kynferðislega áreitni sem gerði út af við feril hans í Hollywood og greinilega einhver vinasambönd.</description>
Þórður leik­stýrir kvik­myndaút­gáfu Dead by Daylight
      <description>Leikstjórinn Þórður Pálsson hefur verið fenginn til liðs við teymi sem vinnur nú að kvikmynd sem byggð er á hrollvekju- og spennuleiknum Dead by Daylight. Hann vakti víða athygli fyrir hrollvekjuna „Hin fordæmdu“ (á ensku The Damned) sem var frumsýnd í janúar 2025. Hann hefur einnig skapað og leikstýrt fyrstu íslensku Netflix Original þáttaröðinni „Brot“ (á ensku The Valhalla Murders) sem var frumsýnd á streymisveitunni árið 2020.</description>
Margaret Kerry er látin
      <description>Margaret Kerry er látin, 97 ára að aldri. Kerry var fyrirmyndin að upprunalegu Skellibjöllu í kvikmyndinni Pétur Pan frá 1953. Á ferli sínum starfaði hún sem útvarpsmaður og lék meðal annars í tveimur þáttum af The Andy Griffith Show og þremur þáttum af The Little Rascals.</description>
Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire
      <description>Írski leikarinn Barry Keoghan hefur fundið ástina á ný eftir að hafa gengið í gegnum opinber og erfið sambandsslit við poppstjörnuna Sabrinu Carpenter árið 2024. Sú nýja er snyrtifræðingur frá Staffordshire.</description>
Harbour rýfur þögnina
      <description>Leikarinn David Harbour hefur loksins tjáð sig um plötuna West End Girl eftir Lily Allen, fyrrverandi eiginkonu hans, en þar söng hún um skilnað þeirra og framhjáhald hans. Harbour segist bera virðingu fyrir því að Allen hafi unnið úr eigin reynslu á plötunni en upplifun hans af sambandi þeirra hafi verið önnur.</description>
Sigur­jón Sig­hvats­son heiðraður í Locarno
      <description>Sigurjón Sighvatsson, kvikmynda- og sjónvarpsþáttaframleiðandi, verður heiðraður með Raimondo Rezzonico-verðlaununum á Locarno-kvikmyndahátíðinni í Sviss í ágúst. Hátíðin er ein sú elsta og virtasta í Evrópu.</description>
James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar
      <description>Leikarinn James Handy var stunginn til bana á heimili sínu Los Angeles á miðvikudag. Sonur kærustu Handy gaf sig fram á vettvangi glæpsins og var handtekinn vegna gruns um að hafa myrt leikarann. Leiklistarferill Handy spannaði hálfa öld og er hann þekktastur fyrir leik sinn í Jumanji, Arachnophobia og Top Gun: Maverick.</description>
Biðst af­sökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“
      <description>Leikarinn Ted Danson hefur aftur beðist afsökunar á því að hafa notað „blackface“ og farið ítrekað með kynþáttaníð í uppistandsgrilli á leikkonunni Whoopi Goldberg árið 1993. Goldberg, sem átti á þeim tíma í alræmdu ástarsambandi með Danson, hafði skrifað mikið af gríninu sem fór hins vegar öfugt ofan í áhorfendur.</description>
Youtube-leikstjórar kaf­færðu Stjörnu­stríði
      <description>Nýafstaðin bíóhelgi vestanhafs var söguleg. Hryllingsmyndirnar Backrooms og Obsession sem eru báðar eftir unga leikstjóra sem byrjuðu ferilinn á Youtube höfðu betur gegn stórmyndinni Mandalorian og Grogu. Stjörnustríð virðist vera að missa tak sitt á menningunni því aðsókn á Mandalorian og Grogu dróst saman um sjötíu prósent milli helga.</description>
Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin
      <description>Marcia Lucas, sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir klippingu á einni af Stjörnustríðsmyndunum í leikstjórn fyrrverandi eiginmanns síns, George Lucas, lést á miðvikudaginn, þann 27. maí, í Rancho Mirage í Kaliforníu. Hún var áttatíu ára þegar hún lést og hefur bandaríski miðillinn Variety eftir lögmanni fjölskyldunnar sem staðfesti að hún hefði látist úr krabbameini.</description>
Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni
      <description>Ástin sem eftir er hlaut sjö verðlaun á Eddunni í kvöld en hún var valin kvikmynd árins, þrír leikarar hennar voru verðlaunaðir auk þess sem Hlynur Pálmason hlaut verðlaun fyrir leikstjórn, handrit og kvikmyndatöku. Sjónvarpsþáttaröðin Vigdís hlaut sex verðlaun sem og hamfaramyndin Eldarnir. Miðaldaþættirnir King and Conqueror sem hlutu ellefu tilnefningar fengu engin verðlaun.</description>
„Þetta er búið að vera eins og ein­hver brandari“
      <description>Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari segist ekki hafa átt von á því að hreppa hlutverkið í Hollywood mynd um He-Man þegar hann tók þátt í prufu fyrir hlutverkið. Hann segist alla tíð hafa verið mikill aðdáandi ævintýraheimsins og sjálfur átt He-Man leikföng þegar hann var lítill. Hann er farinn að eiga marga aðdáendur vestanhafs, meðal annars suma sem fara yfir strikið í skilaboðasendingum.</description>
Bar­átta við fíkn, ís­lensk milli­stétt og æðavarp á Skjald­borg
      <description>Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildarmynda, hefst í nítjánda sinn á Patreksfirði föstudaginn næstkomandi. Sérhæfing hátíðarinnar eru frumsýningar íslenskra heimildarmynda og í ár eru sýndar myndir sem fjalla meðal annars um byggð í Grímsey, baráttu við fíkn, stöðu íslenskrar millistéttar, endómetríósu og æðavarp á Austfjörðum.</description>
Rick og Morty á stóra skjáinn
      <description>Teiknimyndaþættirnir Rick and Morty um geðvonda og brjálaða uppfinningamanninn Rick og taugaóstyrka afabarnið Morty eru á leið á stóra skjáinn. Framleiðsla kvikmyndar um félagana er í frumstigum. Þættirnir hófu göngu sína 2013 og fer níunda þáttaröðin í loftið um helgina.</description>
Ní­tján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn
      <description>Leikkonan Hayden Panettiere segir „mikilsvirtan“ Óskarsverðlaunahafa, sem er bæði leikari og leikstjóri, hafa berað sig fyrir framan hana og sýnt henni pung sinn þegar hún var nítján ára. Panettiere gaf nýverið út ævisögu sína þar sem hún gerir upp feril sinn í Hollywood og hafa safaríkustu kaflarnir ratað í fjölmiðla.</description>
Dóra og Glassriver náðu sam­komu­lagi
      <description>Dóra Jóhannsdóttir hefur náð samkomulagi við framleiðslufyrirtækið Glassriver vegna sjónvarpsseríunnar Húsó, sem var skrifuð af henni og byggði á hennar eigin reynslu. Dóra hefur barist fyrir því síðustu þrjú ár að höfundaréttur hennar og réttur til nafngreiningar í þáttunum yrði virtur. Greiðsla hafi farið fram en lítið standi eftir sökum lögfræðikostnaðar.</description>
Stefnir Cameron fyrir að stela and­liti hennar
      <description>Leikkonan Q’orianka Kilcher hefur stefnt leikstjóranum James Cameron og Walt Disney-samsteypunni fyrir að hafa tekið andlitsdrætti hennar í leyfisleysi til að skapa útlit Neytiri í Avatar-myndunum. Cameron hefur sjálfur lýst því yfir að Kilcher sé innblásturinn að Neytiri.</description>
Tvær þátta­raðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti
      <description>Vesturport vinnur að sjónvarpsþáttaröð upp úr gamansýningunni Á rauðu ljósi eftir Kristínu Þóru Haraldsdóttur sem verður sýnd á Rúv. Handritaskrif annarrar þáttaraðar af Verbúðinni eru jafnframt langt komin og eru tvær kvikmyndir í bígerð hjá Vesturporti.</description>
Andri Snær verð­launaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið
      <description>Fyrsta stiklan fyrir heimildarmyndina Um tímann og vatnið, sem byggir á samnefndri bók Andra Snæs Magnasonar, hefur verið frumsýnd. Andri Snær hlýtur í lok vikunnar WWF-Póllandsverðlaunin í Varsjá en þau eru veitt aðalpersónu kvikmyndar sem hvetur aðra til aðgerða fyrir náttúruna.</description>