Rice verður varafyrirliði enska landsliðsins á HM Declan Rice, miðjumaður Arsenal, hefur fengið stöðuhækkun hjá enska landsliðinu því hann verður varafyrirliði Englands á heimsmeistaramótinu sem hefst í lok vikunnar. Fótbolti 8.6.2026 22:03
FIFA: Fær ekki að dæma á HM vegna komubannsins Sómalski dómarinn Omar Artan fær ekki að vera dómari á heimsmeistaramótinu í fótbolta eftir að honum var meinað að koma inn í Bandaríkin á mánudag. Fótbolti 8.6.2026 21:23
Olise með þrennu en Mbappé náði ekki að jafna markametið Michael Olise var stjarna kvöldsins þegar Frakkar unnu 3-1 sigur á Norður-Írlandi í síðasta leik sínum fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta. Fótbolti 8.6.2026 21:08
Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Það eru ólíkar fréttir sem berast af Arsenal-leikmönnunum William Saliba og Jurriën Timber sem báðir voru í lykilhlutverki hjá Englandsmeisturunum á nýloknu tímabili Enski boltinn 8.6.2026 18:32
Gunnlaugur aðeins tveimur höggum frá toppnum eftir fyrri hringinn Dagbjartur Sigurbrandsson, GR, og Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, eru á meðal keppenda í lokaúrtökumóti fyrir U.S. Open á The Lakes Golf & Country Club-vellinum í Westerville, Ohio. Gunnlaugur Árni gerði mjög góða hluti á fyrsta hring. Golf 8.6.2026 18:11
Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega Breska ríkisútvarpið slær í dag upp sláandi frétt um að fjölmargar konur hafi sakað milljarðamæringinn og meðeiganda West Ham, David Sullivan, um að misnota vald sitt og notfæra sér þær kynferðislega, í sumum tilfellum þegar þær voru á unglingsaldri. Enski boltinn 8.6.2026 17:18
Eriksen kominn heim og einbeitir sér að fótbolta með krökkunum Danski fótboltamaðurinn Christian Eriksen er kominn heim af sjúkrahúsi og hefur það gott, eftir að hann hné niður í vináttulandsleik Danmerkur og Úkraínu í gær. Fótbolti 8.6.2026 16:26
Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Moutaz Neffati spilaði í Bestu deildinni á Íslandi fyrir tveimur árum en er nú að mæta til Mexíkó til að spila á sjálfu heimsmeistaramótinu í fótbolta í næstu viku, með Túnis. Fótbolti 8.6.2026 15:47
Van Persie rekinn frá uppeldisfélaginu Robin Van Persie hefur verið rekinn sem þjálfari Feyenoord. Hann endaði tímabilið í öðru sæti hollensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á eftir PSV. Fótbolti 8.6.2026 15:02
Svona var fundur Íslands fyrir leikinn við heimsmeistarana Fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir og þjálfarinn Þorsteinn Halldórsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi fyrir leikinn við heimsmeistara Spánar á Laugardalsvelli annað kvöld. Fótbolti 8.6.2026 14:33
Kaldur sviti er Eriksen féll til jarðar Áfallið í landsleik Danmerkur og Úkraínu í gær var strákunum í Besta sætinu ofarlega í huga í dag. Sport 8.6.2026 14:28
Missti af verðlaunapalli og endaði í sjöunda sæti Alpine eru svekktir yfir því að hafa ekki náð að fagna verðlaunapalli í Mónakókappakstrinum sem var í gær. Refsingar fyrir að keyra of hratt inn á þjónustusvæðinu gerðu það að verkum að þeir náðu ekki að fagna fyrsta verðlaunapalli liðsins síðan í Brasilíu 2024. Formúla 1 8.6.2026 13:46
Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Víkingar greindu í dag frá komu markvarðarins Ögmundar Kristinssonar sem gert hefur samning við Íslandsmeistarana sem gildir út árið 2026. Samningur við Ingvar Jónsson, sem glímir við krabbamein, var framlengdur um eitt ár. Íslenski boltinn 8.6.2026 13:01
Hetjunni haldið í yfirheyrslu í sjö tíma við komuna á HM Aymen Hussein, framherja Íraks, var haldið föstum í yfirheyrslu á O‘Hare flugvellinum í Chicago í Bandaríkjunum heilar sjö klukkustundir um helgina þegar landsliðshópur Íraka mætti á HM í fótbolta. Ljósmyndari liðsins fékk ekki að koma inn í landið. Fótbolti 8.6.2026 12:30
Andrea opnar sig eftir sjálfsniðurrrif: „Andskotinn hafi það“ Íslenska hlaupadrottningin Andrea Kolbeinsdóttir, opnar sig um mikla erfiðleika á nýafstöðnu EM í utanvegahlaupum í Slóveníu í færslu á samfélagsmiðlum. Með færslunni birtir hún myndband frá erfiðum tímapunkti í hlaupinu sem Andrea segir kennslu um hvernig eigi ekki að tala við sjálfan sig. Sport 8.6.2026 11:52
Dagbjartur og Gunnlaugur spila um sæti á risamóti Íslensku kylfingarnir Dagbjartur Sigurbrandsson og Gunnlaugur Árni Sveinsson munu í dag hefja leik á lokaúrtökumóti fyrir Opna bandaríska meistaramótið í golfi, eitt af risamótum ársins í golfheiminum. Golf 8.6.2026 11:30
Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Lionel Messi endurnýjar kynni sín við íslenska fótboltalandsliðið í Alabama annað kvöld, í síðasta leik Argentínu fyrir titilvörnina á HM en mótið hefst á fimmtudaginn. „Gott orðspor“ Íslands hefur skilað sér í flottum boðum um vináttulandsleiki í ár en ekkert toppar leik við sjálfa heimsmeistarana í generalprufu þeirra fyrir HM. Fótbolti 8.6.2026 11:02
Nítján ára með athygli heimspressunnar: „Ekki lengur bara undrabarn“ Yfirburðir ítalska ungstirnisins Kimi Antonelli, ökuþórs Formúlu 1 liðs Mercedes, halda áfram í mótaröðinni. Í stærsta íþróttamiðli Ítalíu er hann krýndur nýr konungur yfir Monte Carlo og í spænska stórblaðinu Marca segir að Kimi sé ekki lengur bara ungstirni, heldur eitthvað miklu stærra. Formúla 1 8.6.2026 10:31
Löggan þorði ekki að þiggja miða Stelpurnar okkar í íslenska fótboltalandsliðinu mæta sjálfum heimsmeisturum Spánar á Laugardalsvelli annað kvöld. Þrjár þeirra fóru á rúntinn í gær og gáfu nokkrum heppnum Íslendingum frímiða á leikinn. Fótbolti 8.6.2026 10:02
Náði loksins titlinum sem hana dreymdi um Nelly Korda náði loksins að sigra Opna bandaríska mótið á LPGA-túrnum. Þetta er fjórði sigur hennar á risamóti auk þess sem hún hefur unnið gull á Ólympíuleikunum. Golf 8.6.2026 09:31
HM-minning: Fékk ekki þrennuna sína fyrr en þrjátíu árum eftir dauða sinn Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir þrjá daga og Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur heimsmeistaramóts karla í fótbolta. Í dag minnumst við tímamótaafreks sem viðkomandi fékk aldrei staðfest á meðan hann lifði. Fótbolti 8.6.2026 09:02
Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Morten Bruun, fótboltasérfræðingur dönsku stöðvarinnar TV2 Sport, segir að Christian Eriksen hafi verið að spila sinn síðasta leik í gær. Christian Eriksen hneig niður í leik Danmerkur gegn Úkraínu í gær. Þetta er í annað skiptið sem hann hnígur niður í leik. Fótbolti 8.6.2026 08:32
Sigraði sitt fjórða PGA-mót þrátt fyrir óveður JT Poston vann sinn fjórða PGA-titil í gær þegar hann vann í umspili gegn Ryan Gerard á Memorial-mótinu sem haldið var í Ohio í Bandaríkjunum. Sport 8.6.2026 08:00
Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Litlu mátti muna að landsliðsþjálfari Englands, Thomas Tuchel, hefði verið ráðinn þjálfari Stoke á Englandi og hefði þá tekið við af Guðjóni Þórðarsyni sem þjálfari. Ásgeir Sigurvinsson var þá í stjórn Stoke og Íslendingar áttu stóran hlut í Stoke-liðinu á þessum tíma. Fótbolti 8.6.2026 07:32