Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Gunnlaugur Árni Sveinsson verður meðal þátttakenda á U.S. Open risamótinu í golfi í ár eftir að hafa komist í gegnum bráðabana í kvöld. Hann er fyrstur Íslendinga til að tryggja sig inn á Opna bandaríska meistaramótið í karlaflokki. Golf 8.6.2026 23:17
Gunnlaugur Árni í bráðabana um laust sæti á U.S. Open Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson á enn möguleika á sæti á U.S. Open risamótinu í golfi í ár eftir að seinni hringurinn kláraðist. Hann er á leiðinni í fjögurra manna bráðabana um þrjú laus sæti á risamótinu. Golf 8.6.2026 22:57
Gunnlaugur aðeins tveimur höggum frá toppnum eftir fyrri hringinn Dagbjartur Sigurbrandsson, GR, og Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, eru á meðal keppenda í lokaúrtökumóti fyrir U.S. Open á The Lakes Golf & Country Club-vellinum í Westerville, Ohio. Gunnlaugur Árni gerði mjög góða hluti á fyrsta hring. Golf 8.6.2026 18:11
Ragnhildur og Aron Snær unnu Korpubikarinn Ragnhildur Kristinsdóttir og Aron Snær Júlíusson stóðu uppi sem sigurvegarar í Korpubikarnum á GSÍ mótaröðinni í golfi í dag. Golf 31.5.2026 20:03
Mikil spenna fyrir lokahringinn Það ríkir mikil spenna í bæði kvenna- og karlaflokki fyrir lokahringinn í Korpubikarnum, á Korpúlfsstaðavelli. Golf 30.5.2026 22:32
Ragga frábær í Austurríki og náði öðru sæti Ragnhildur Kristinsdóttir byrjar golftímabilið af krafti og náði öðru sæti á móti í Austurríki í dag, á LET Access mótaröðinni, næststerkustu mótaröð Evrópu. Golf 22.5.2026 14:35
Gunnlaugur Árni náði stórum áfanga Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson bætti rós í hnappagat sitt í gær þegar hann komst með liði LSU inn á úrslitamót bandaríska háskólagolfsins. Golf 21.5.2026 14:10
Þrjár frá Íslandi jafnar í þriðja sæti Íslensku kylfingarnir á LET Access mótaröðinni áttu frábæran fyrsta hring á Allegria Ladies Open mótinu í Austurríki. Hulda Clara Gestsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir og Andrea Bergsdóttir eru jafnar í þriðja sæti. Þær komu allar í hús á 68 höggum, tveimur undir pari vallarins. Golf 20.5.2026 17:41
Rory reiður: „Grjóthaltu kjafti“ Það fauk í Rory McIlroy á lokahring PGA-meistaramótsins í gær. Golf 18.5.2026 14:01
Fyrsti Englendingurinn til að vinna PGA í 107 ár Bretinn Aaron Rai fagnaði sigri á PGA-meistaramótinu í golfi á Aronimink-vellinum í Pennsylvaníu í kvöld. Golf 17.5.2026 22:50
Aron fagnaði sigri eftir bráðabana Aron Snær Júlíusson fagnaði sigri á fyrsta móti GSÍ-mótaraðarinnar í golfi sem fram fór um helgina eftir mikla spennu. Perla Sól Sigurbrandsdóttir fagnaði sigri í kvennaflokki. Golf 17.5.2026 20:58
Aldrei unnið atvinnumannamót en er efstur fyrir lokahringinn á PGA Alex Smalley, 29 ára Bandaríkjamaður, er með tveggja högga forystu fyrir lokahringinn á PGA-meistaramótinu í golfi. Golf 16.5.2026 23:23
„Þá hefði ég tekið því og hlaupið í burtu“ „Þetta er lífið í ferðatösku, eins og hjá atvinnumönnum. En maður velur þetta og þetta er það skemmtilegasta sem maður gerir. Ég myndi ekki skipta þessu út fyrir neitt,“ segir Ragnhildur Kristinsdóttir, einn fremsti kylfingur landsins, sem verður að vanda á faraldsfæti í sumar. Golf 16.5.2026 09:01
Svíinn sjóðheitur í lokin og McIlroy stimplaði sig inn Hinn 26 ára gamli Svíi Ludvig Åberg var sjóðheitur á seinni níu holunum í dag og stimplaði sig inn í toppbaráttuna á PGA-meistaramótinu í golfi. Norður-Írinn Rory McIlroy kom sér sömuleiðis í gang eftir skelfilegan fyrsta hring en það eru tveir Bandaríkjamenn sem leiða. Golf 15.5.2026 23:45
„Ég er búin að bíða eftir þessu lengi“ „Ég er mjög spennt fyrir sumrinu. Fimm mót á dagskrá heima og svo þrjú til fjögur erlendis, svo það verður nóg að gera í sumar,“ segir kylfingurinn Perla Sól Sigurbrandsdóttir brosmild. Hún er sérstaklega spennt fyrir að spila um Íslandsmeistaratitil á sínum heimavelli. Golf 15.5.2026 22:45
Biðst afsökunar á „óafsakanlegri hegðun“ Jon Rahm hefur beðist afsökunar á því að hafa í bræði sinni slegið torfi í sjálfboðaliða á PGA-meistaramótinu. Golf 15.5.2026 16:01
„Við erum alltaf að gefa í“ Íslenska golfsumarið hófst formlega í dag með Reykjanesmótinu, fyrsta móti GSÍ-mótaraðarinnar, og framundan eru spennandi mánuðir hjá íslenskum áhuga- og atvinnukylfingum sem sjaldan hafa myndað eins breiða sveit. Golf 15.5.2026 12:03
„Hrikalegur dagur“ hjá McIlroy sem fékk fjóra skolla í röð Rory McIlroy hefur verið mikil til umræðu í aðdraganda PGA meistaramótsins og norðurírski kylfingurinn átti „hrikalegan“ fyrsta hring á Aronimink golfvellinum í Pennsylvaníu í dag. Golf 14.5.2026 18:54
Refsað fyrir að mæta mínútu of seint á PGA meistaramótið Þrátt fyrir að vera atvinnumaður í faginu mætti Garrick Higgo of seint til leiks á PGA meistaramótinu í morgun. Fyrir það fékk hann tveggja högga refsingu. Golf 14.5.2026 17:32
McIlroy klár þrátt fyrir sársauka Rory McIlroy segist hafa farið upp um skónúmer vegna verkja í hægri fæti fyrir PGA-meistaramótið í golfi sem hefst í dag. Honum tókst að spila níu holur í upphitun í gær. Golf 14.5.2026 12:16
„Svo lærir maður á þetta og byrjar að blómstra í lífinu og golfinu“ Tómas Eiríksson Hjaltested hefur keppni á GSÍ-mótaröðinni í golfi á morgun sem ríkjandi stigameistari, nýútskrifaður úr háskóla á Flórída og spenntur fyrir komandi tímum. Golf 14.5.2026 11:32
Blaðran heldur áfram að bögga McIlroy Blaðra undir tánögl Rory McIlroy hefur verið kylfingnum til mikils ama í aðdraganda PGA meistaramótsins. McIlroy hætti aftur snemma á æfingu dagsins, lokaæfingunni áður en mótið hefst. Golf 13.5.2026 23:11
Dagbjartur einu skrefi frá Opna bandaríska Dagbjartur Sigurbrandsson, Íslandsmeistari í golfi, tryggði sér í gær sæti í lokaúrtökumótinu fyrir Opna bandaríska mótið, eitt risamótanna fjögurra. Golf 13.5.2026 11:17
McIlroy þurfti að hætta eftir þrjár holur Rory McIlroy, einn besti kylfingur heims, þurfti að hætta æfingu eftir fyrir PGA meistaramótið eftir að hafa aðeins leikið þrjár holur í gær. McIlroy hefur verið að glíma við óþægindi á hægri fæti. Golf 13.5.2026 08:02