Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Það eru ólíkar fréttir sem berast af Arsenal-leikmönnunum William Saliba og Jurriën Timber sem báðir voru í lykilhlutverki hjá Englandsmeisturunum á nýloknu tímabili Enski boltinn 8.6.2026 18:32
Gunnlaugur aðeins tveimur höggum frá toppnum eftir fyrri hringinn Dagbjartur Sigurbrandsson, GR, og Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, eru á meðal keppenda í lokaúrtökumóti fyrir U.S. Open á The Lakes Golf & Country Club-vellinum í Westerville, Ohio. Gunnlaugur Árni gerði mjög góða hluti á fyrsta hring. Golf 8.6.2026 18:11
Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega Breska ríkisútvarpið slær í dag upp sláandi frétt um að fjölmargar konur hafi sakað milljarðamæringinn og meðeiganda West Ham, David Sullivan, um að misnota vald sitt og notfæra sér þær kynferðislega, í sumum tilfellum þegar þær voru á unglingsaldri. Enski boltinn 8.6.2026 17:18
Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Víkingar greindu í dag frá komu markvarðarins Ögmundar Kristinssonar sem gert hefur samning við Íslandsmeistarana sem gildir út árið 2026. Samningur við Ingvar Jónsson, sem glímir við krabbamein, var framlengdur um eitt ár. Íslenski boltinn 8.6.2026 13:01
Hetjunni haldið í yfirheyrslu í sjö tíma við komuna á HM Aymen Hussein, framherja Íraks, var haldið föstum í yfirheyrslu á O‘Hare flugvellinum í Chicago í Bandaríkjunum heilar sjö klukkustundir um helgina þegar landsliðshópur Íraka mætti á HM í fótbolta. Ljósmyndari liðsins fékk ekki að koma inn í landið. Fótbolti 8.6.2026 12:30
Andrea opnar sig eftir sjálfsniðurrrif: „Andskotinn hafi það“ Íslenska hlaupadrottningin Andrea Kolbeinsdóttir, opnar sig um mikla erfiðleika á nýafstöðnu EM í utanvegahlaupum í Slóveníu í færslu á samfélagsmiðlum. Með færslunni birtir hún myndband frá erfiðum tímapunkti í hlaupinu sem Andrea segir kennslu um hvernig eigi ekki að tala við sjálfan sig. Sport 8.6.2026 11:52
Dagbjartur og Gunnlaugur spila um sæti á risamóti Íslensku kylfingarnir Dagbjartur Sigurbrandsson og Gunnlaugur Árni Sveinsson munu í dag hefja leik á lokaúrtökumóti fyrir Opna bandaríska meistaramótið í golfi, eitt af risamótum ársins í golfheiminum. Golf 8.6.2026 11:30
Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Lionel Messi endurnýjar kynni sín við íslenska fótboltalandsliðið í Alabama annað kvöld, í síðasta leik Argentínu fyrir titilvörnina á HM en mótið hefst á fimmtudaginn. „Gott orðspor“ Íslands hefur skilað sér í flottum boðum um vináttulandsleiki í ár en ekkert toppar leik við sjálfa heimsmeistarana í generalprufu þeirra fyrir HM. Fótbolti 8.6.2026 11:02
Nítján ára með athygli heimspressunnar: „Ekki lengur bara undrabarn“ Yfirburðir ítalska ungstirnisins Kimi Antonelli, ökuþórs Formúlu 1 liðs Mercedes, halda áfram í mótaröðinni. Í stærsta íþróttamiðli Ítalíu er hann krýndur nýr konungur yfir Monte Carlo og í spænska stórblaðinu Marca segir að Kimi sé ekki lengur bara ungstirni, heldur eitthvað miklu stærra. Formúla 1 8.6.2026 10:31
Löggan þorði ekki að þiggja miða Stelpurnar okkar í íslenska fótboltalandsliðinu mæta sjálfum heimsmeisturum Spánar á Laugardalsvelli annað kvöld. Þrjár þeirra fóru á rúntinn í gær og gáfu nokkrum heppnum Íslendingum frímiða á leikinn. Fótbolti 8.6.2026 10:02
Náði loksins titlinum sem hana dreymdi um Nelly Korda náði loksins að sigra Opna bandaríska mótið á LPGA-túrnum. Þetta er fjórði sigur hennar á risamóti auk þess sem hún hefur unnið gull á Ólympíuleikunum. Golf 8.6.2026 09:31
HM-minning: Fékk ekki þrennuna sína fyrr en þrjátíu árum eftir dauða sinn Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir þrjá daga og Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur heimsmeistaramóts karla í fótbolta. Í dag minnumst við tímamótaafreks sem viðkomandi fékk aldrei staðfest á meðan hann lifði. Fótbolti 8.6.2026 09:02
Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Morten Bruun, fótboltasérfræðingur dönsku stöðvarinnar TV2 Sport, segir að Christian Eriksen hafi verið að spila sinn síðasta leik í gær. Christian Eriksen hneig niður í leik Danmerkur gegn Úkraínu í gær. Þetta er í annað skiptið sem hann hnígur niður í leik. Fótbolti 8.6.2026 08:32
Sigraði sitt fjórða PGA-mót þrátt fyrir óveður JT Poston vann sinn fjórða PGA-titil í gær þegar hann vann í umspili gegn Ryan Gerard á Memorial-mótinu sem haldið var í Ohio í Bandaríkjunum. Sport 8.6.2026 08:00
Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Litlu mátti muna að landsliðsþjálfari Englands, Thomas Tuchel, hefði verið ráðinn þjálfari Stoke á Englandi og hefði þá tekið við af Guðjóni Þórðarsyni sem þjálfari. Ásgeir Sigurvinsson var þá í stjórn Stoke og Íslendingar áttu stóran hlut í Stoke-liðinu á þessum tíma. Fótbolti 8.6.2026 07:32
Dagskráin í dag: Síðasti leikur Frakka fyrir HM Frakkland spilar sinn síðasta leik fyrir komandi heimsmeistaramót í dag og leikurinn verður í beinni hjá Sýn. Sport 8.6.2026 06:01
Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Moise Bambito mun ekki geta tekið þátt á HM með landsliði Kanada. Þar missir gestagjafaþjóð mótsins sinn besta varnarmann. Fótbolti 7.6.2026 23:15
Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Florentino Pérez fagnaði sigri í forsetakosningum Real Madrid á Spáni. Greint er frá tíðindunum í spænskum fjölmiðlum. Fótbolti 7.6.2026 23:03
Ótrúlegur lokasprettur og Aron vann þriðja mótið í röð Aron Snær Júlíusson fagnaði sigri á þriðja móti sumarsins á mótaröð GSÍ og hefur unnið öll þrjú. Hann var tveimur höggum á eftir fyrsta manni fyrir síðustu tvær holurnar. Golf 7.6.2026 22:31
„Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Katla Tryggvadóttir er klár í slaginn fyrir leik Íslands við heimsmeistara Spánar á Laugardalsvelli á þriðjudagskvöldið kemur. Hún missti af fyrri leik liðanna sökum veikinda en fær nú tækifæri til að mæta besta liði heims. Fótbolti 7.6.2026 21:46
Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Martin Ödegaard sá til þess að Noregur náði jafntefli gegn Marokkó í síðasta æfingaleik beggja liða fyrir komandi heimsmeistaramót. Fótbolti 7.6.2026 21:30
Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Orri Freyr Þorkelsson fór hamförum er Sporting Lissabon varð portúgalskur bikarmeistari eftir sigur á Benfica í úrslitaleik í dag eftir framlengdan leik. Stiven Tobar Valencia tók ekki þátt í leiknum. Handbolti 7.6.2026 20:43
Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fastlega er búist við því að Lionel Messi taki þátt í leik Argentínu og Íslands á þriðjudagskvöld. Hann spilaði ekki í leik hans manna við Hondúras í nótt. Fótbolti 7.6.2026 20:24
Valskonur styrkja sig Íslandsmeistarar Vals voru ekki lengi að styrkja sig fyrir komandi átök næsta vetrar í Olís-deild kvenna. Britney Cots kemur til liðsins frá ÍBV. Handbolti 7.6.2026 20:01