Innlent

Fréttamynd

„Þetta er hreinn upp­spuni“

Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Samherja, ætlar ekki að eyða 25 milljónum króna í úthringiver í ágúst líkt og fullyrt er í fyrirsögn ristjórnarpistilsins Orðið á götunni á DV.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum

Heilbrigðisráðuneytið og Heilbrigðisstofnun Suðurlands segja það ekki rétt sem kemur fram í frétt RÚV um að loka eigi hjúkrunardeildunum Fossheimum og Ljósheimum við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi og þannig 20 hjúkrunarrýmum. Þau segja fólk ekki þurfa að óttast að vera skilið frá maka eða flutt fjarri heimabyggð.

Innlent
Fréttamynd

Safnað fyrir for­eldra Bergs Ottós

Stofnað hefur verið til söfnunar fyrir fjölskyldu Bergs Ottós Thomsen Kárasonar. Bergur Ottó fæddist 17. febrúar síðastliðinn en lést sviplega á laugardagsmorgun.

Innlent
Fréttamynd

Gervi­greindin aukið hraða net­svika gríðar­lega

Hraði í netsvikum hefur aukist gríðarlega undanfarið og hlutir sem áður tóku netþrjóta marga mánuði taka nú aðeins nokkrar mínútur að sögn sérfræðings öryggis hjá Arion banka. Almenningur þurfi að sýna tortryggni því glæpamenn treysti á að fólk bregðist við í hugsunarleysi.

Innlent
Fréttamynd

Góður gangur í fundar­höldum um þing­lok

Enn er óvíst hvort takist að ljúka þingstörfum í vikunni líkt og gert er ráð fyrir í starfsáætlun Alþingis, þingflokksformaður Viðreisnar segir þó góðan gang í viðræðum þingflokksformanna, en meðal ásteytingsefna er frumvarp um innviðafélag.

Innlent
Fréttamynd

Jóna Árný endurráðin bæjar­stjóri

Jóna Árný Þórðardóttir hefur verið endurráðin bæjarstjóri Fjarðabyggðar  fyrir kjörtímabilið 2026-2030. Ráðning hennar var staðfest af öllum bæjarfulltrúum 3. júní síðastliðinn og ráðningarsamningur undirritaður í gær.

Innlent
Fréttamynd

„Fórnar­lambið látið borga brúsann“

Bjarni Þór Bjarnason sóknarprestur á Seltjarnarnesi lenti í klóm svikahrappa sem höfðu tæpa hálfa milljón króna af kreditkortinu hans. Hann segir farir sínar ekki sléttar eftir áratuga viðskipti við Íslandsbanka.

Innlent
Fréttamynd

Rúm­lega á­tján þúsund skiluðu ekki fram­tali

Almennur tekjuskattur nam 282 milljörðum króna og fjármagnstekjuskattur 65 milljörðum króna á síðasta ári. Samtals nam tekjuskattur til ríkissjóðs 346 milljörðum og 417 milljarðar króna runnu í útsvar til sveitarfélaga. Hlutfall tekjuskatts til ríkissjóðs var 45,4% á móti 54,6% sem rann til sveitarfélaga.

Innlent
Fréttamynd

„Það vegast þarna á mjög erfið sjónar­mið“

Þriðja umræða fer fram á Alþingi í dag um frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð. Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og meðlimur í allsherjar- og menntamálanefnd, segir brottfararstöðina eiga að tryggja mannúð í ömurlegum aðstæðum. Gert sé ráð fyrir því að fjölskyldur verði vistaðar á sérsvæði í úrræðinu en hann segist þó vona að vægari úrræði verði notuð áður. Gert sé ráð fyrir því í lögunum. 

Innlent
Fréttamynd

Vaxtaplanið sé tíma­skekkja

Rithöfundasamband Íslands telur vaxtarplan ríkisstjórnarinnar vera tímaskekkju þar ofuráhersla er lögð á störf sem tæknin er komin næst því að gera óþörf. Á sama tíma sé sneitt fram hjá verðmætustu vaxtatækifærum atvinnulífs.

Innlent
Fréttamynd

„Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“

Óvíst er hvort það takist að ljúka þingstörfum í þessari viku líkt og gert er ráð fyrir í starfsáætlun. Ekki hefur verið samið um þinglok og segir þingflokksformaður Samfylkingarinnar að það sé möguleiki þingið teygi sig yfir í næstu viku. Eldhúsdagsumræður eru fyrirhugaðar á miðvikudag.

Innlent
Fréttamynd

Aðal­steinn hleypur í skarðið

Aðalsteinn Leifsson, fyrrverandi ríkissáttasemjari, hleypur í skarðið sem ríkissáttasemjari í nokkra daga á meðan Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari sækir norrænan samráðsfund sáttasemjara. 

Innlent
Fréttamynd

„Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir for­eldra sinna“

Framkvæmdastjóri Barnaheilla gagnrýnir stjórnvöld fyrir að veita heimild til að frelsissvipta börn í sérstakri brottfararstöð vegna gjörða foreldra þeirra. Þingmaður Samfylkingarinnar segir stjórnvöld reyna að gera gott úr erfiðri stöðu. Hann vonar að úrræðið verði aldrei nýtt.

Innlent
Fréttamynd

Vil­hjálmur sagði af sér þing­mennsku

Vilhjálmur Árnason hefur gert forseta Alþingis grein fyrir afsögn sinni en hann hóf störf sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar 2. júní. Vilhjálmur hefur verið þingmaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Suðurkjördæmi frá árinu 2013 og var varaformaður þingflokksins.

Innlent