Innlent

Fréttamynd

Vaxtaplanið sé tíma­skekkja

Rithöfundasamband Íslands telur vaxtarplan ríkisstjórnarinnar vera tímaskekkju þar ofuráhersla er lögð á störf sem tæknin er komin næst því að gera óþörf. Á sama tíma sé sneitt fram hjá verðmætustu vaxtatækifærum atvinnulífs.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Konukot og börn í brottfararstöð í brenni­depli í kvöld­fréttum

Börn í brottfararstöð verða í brennidepli í kvöldfréttum Sýnar. Umræða um frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð hefur ekki verið í átakafarvegi í þinginu en utan þings hafa ýmsir gagnrýnt harðlega að börn verði vistuð í stöðinni. Í kvöldfréttum mætast þau Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, og Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, sem munu eiga opið og hreinskiptið samtal um málið.

Innlent
Fréttamynd

Séra Guðni Már kveður Ís­land

Séra Guðni Már Harðarson hefur verið ráðinn sendiráðsprestur í Danmörku og prestur við íslenska söfnuðinn þar í landi. Hann hefur verið áberandi innan kirkjunnar og jarðsöng til að mynda tónlistarmanninn Björgvin Halldórsson og Bryndísi Klöru Birgisdóttur sem lést af sárum sínum eftir hnífstunguárás á Menningarnótt árið 2024.

Innlent
Fréttamynd

Magga Frið­riks leitar til al­mennings eftir stuðningi

Margrét Friðriksdóttir leitar til almennings eftir styrkjum en hún hlaut að sögn þungt högg í héraðsdómi þegar hún var dæmd til að greiða sekt í ríkissjóð vegna ummæla um Barböru Björnsdóttur dómara þess efnis að hún væri lauslát mella.

Innlent
Fréttamynd

„Svaraðu spurningunni“

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sakaði utanríkisráðherra um Evrópumet í mótsögn þegar til umræðu var þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB. Forseti Alþingis þurfti að biðja þingmenn að halda ró sinni í umræðum

Innlent
Fréttamynd

Sérsveitaraðgerð á Eski­firði

Sérsveitarmenn voru að störfum á Eskifirði í dag. Götu í bænum var lokað í dag og sáust sérsveitarmenn fara inn í hús þar. Þá var Lögreglan á Austurlandi einnig með dróna á lofti yfir bænum um tíma.

Innlent
Fréttamynd

„Beinin af Jónasi skipta and­skotans engu máli“

Guðni Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, telur fráleitt að menn setji sig upp á móti tónleikahaldi á Þingvöllum en að sama skapi er honum mjög í nöp við að fólk sé að atast í jarðneskum leifum Jónasar Hallgrímssonar.

Innlent
Fréttamynd

Lýsingar á ó­fremdar­á­standi við Konukot komi á ó­vart

Kalla þurfti til lögreglu að Konukoti í síðustu viku og stendur til að bæta lýsingu og fjölga myndavélum vegna atviks sem þar kom upp, að sögn sviðsstjóra velferðarsviðs hjá Reykjavíkurborg, sem segir lýsingar fyrirtækjaeigenda um ófremdarástand í götunni þó koma á óvart þar sem reksturinn hafi heilt yfir gengið vel að hennar mati.

Innlent
Fréttamynd

ESB á Al­þingi, Konukot og sáttur Bubbi

Í hádegisfréttum fjöllum við um umræðurnar á þingi frá því í morgun. Þar var utanríkisráðherra meðal annars  spurð út í hvort möguleg innganga Íslands í ESB hefði áhrif á varnarsamninginn við Bandaríkjamenn. Hún segir svo ekki vera. 

Innlent
Fréttamynd

Sam­komu­lag um landaheitið Ís­land undir­ritað

Samkomulag hefur verið undirritað um samstarf vegna hagsmunagæslu landaheitisins Ísland eða Iceland. Markmið samstarfsins er að vernda ímynd Íslands og gæta hagsmuna íslenskra útflutningsgreina þegar landaheitið er notað við markaðssetningu á erlendum markaði.

Innlent
Fréttamynd

Eftir­lýstur hrækti á starfs­mann skemmti­staðar og lög­reglu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók einstakling í nótt í tengslum við líkamsárás, þjófnað og brot á lögum um útlendinga. Viðkomandi hrækti í andlitið á starfsmanni skemmtistaðar og einnig í andlit lögreglumanns við handtöku. Á lögreglustöð kom í ljós að hann var eftirlýstur.

Innlent
Fréttamynd

„Ofurnjósnaskip Pútíns“ í ís­lenskri lög­sögu

Rússneska njósnaskipið sem siglir nú í efnahagslögsögu Íslands hefur verið kallað „ofurnjósnaskip Pútíns“ en það er hluti af norðurflota rússneska sjóhersins. Íslensk varnarmálayfirvöld hafa engar sérstakar áhyggjur af skipinu enda stafar lítil sem engin hætta af sjálfu sjófarinu. Algengt er orðið að rússnesk sjó- og loftför sveimi um á norðurslóðum.

Innlent