Mikið öskufjúk hefur undanfarna daga verið víða í nágrenni Eyjafjallajökuls. Verst var ástandið undir Eyjafjöllum í gær þegar skyggni var um tíma innan við 100 metrar.
Allt virðist hafa verið með kyrrum kjörum í Eyjafjallajökli í nótt eftir að nokkrir smáskjálftar mældust í jöklinum, suðvestur af Básum í Þórsmörk í gærkvöldi. Síðan hefur allt verði rólegt í jöklinum, en kraftur er að færast í hreinsunarstarf.
Enginn gosmökkur er nú frá Eyjafjallajökli og sjást aðeins litlar gufubólstrar á toppnum.
Ferðaþjónusta og landbúnaður tvær aðalatvinnugreinarnar á Suðurlandi eru í uppnámi, vegna eldgossins undanfarnar fimm vikur. Sumstaðar hafa bókanir ferðamanna í sumar hrunið.
„Það er engin kvika að koma upp og gosið er dottið niður. Tíminn verður að leiða í ljós hvort þetta sé endir gossins eða hlé. Við vitum það ekki,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. Hann og Ómar Ragnarsson flugu yfir Eyjafjallajökul á fjórða tímanum í dag.
Verulega hefur dregið úr gosvirkni í Eyjafjallajökli en sérfræðingar segja ótímabært að segja að gosinu sé lokið. Ómar Ragnarsson flaug yfir gosstöðvarnar í morgun og varð ekki var við neinar eldhræringar.
Iceland Express hefur ákveðið að hætta við reglubundið flug milli Akureyrar og London, sem vera átti í sumar, þar til næsta ár. Ástæða þess er sú, að dregið hefur úr eftirspurn eftir ferðum, bæði hér heima og í öðrum löndum vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.
Margt bendir til að eldgosinu í Eyjafjallajökli sé að ljúka, en virknin í eldstöðinni hefur snarminnkað síðastliðinn sólahring. Ómar Ragnarsson flaug yfir eldstöðina í morgun og sá enga ösku.
Ryanair mun fara fram á skaðabætur vegna truflana sem félagið varð fyrir vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.
Mikil rólegheit virðast nú vera við Eyjafjallajökul. Að sögn lögreglumanns á Hvolsvelli gætti þar lítilsháttar öskufalls í gær en ekkert sést nú til gossins. Sérfræðingar á Veðurstofu Íslands segir að smá skot hafi verið í gosinu um hádegisbil í gær en síðan þá hafi dregið úr gosóróa á svæðinu.
Engar tilkynningar hafa borist af öskufalli í dag vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Gosmökkurinn er í um 4 kílómetra hæð samkvæmt athugun könnunarflugs sem farið var eftir hádegi. Hæg austlæg vindátt ber mökkinn til vesturs. Þetta er meðal þess sem kemur fram í stöðuskýrslu Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands.
Enn dregur úr gosinu í Eyjafjallajökli að sögn Sigþrúðar Árnadóttur starfsmanns Veðurstofu Íslands. Nokkrir litlir skjálftar mældust í nótt, flestir voru þeir grunnir en verið er að afla frekari upplýsinga um gosóróan á Veðurstofunni.
Íbúafundur verður haldinn í íþróttahúsinu á Hvolsvelli í kvöld klukkan 20:30. Farið verður yfir þróun eldgossins í Eyjafjallajökli, afleiðingar þess og stöðuna í dag.
Innanlandsflug hófst samkvæmt áætlun i morgun nema hvað ekki hefur enn verið flogið til Egilsstaða og Vestmannaeyja vegna þoku á þeim stöðum, en ekki vegna eldfjallaösku í lofti.
Eðjuflóðið sem kom niður Svaðbælisá og fór yfir varnargarða við Þorvaldseyri hefur ekki valdið skemmdum á vegamannvirkjum. Flóðið er að sjatna en vatn hefur farið yfir varnargarða á 150 metra kafla, að því er fram kemur í tilkynningu frá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Mikil eðja er í vatninu og framburður.
Mikið eðjuflóð hófst í Svaðbælisá undir Eyjafjöllum upp úr klukkan níu í morgun og vatnar yfir varnargarðana á svæðinu. Að sögn Ólafs Eggertssonar bónda á Þorvaldseyri, sem var staddur á brúnni yfir ánna fyrir stundu, sýnist þetta vera eðja frekar en vatn og að hún komi frá Eyjafjallajökli, eins og síðasta flóð þarna nýverið.
Biðstaða var í innanlandsfluginu í morgun og var öll áætlun Flugfélags Íslands og Ernis í nánari athugun. Nú er hinsvegar búið að opna Reykjavíkurflugvöll og hófst innanlandsflug upp úr klukkan átta. Ekki er þó víst hvort hægt verður að fljúga til Ísafjarðar, en búið er að opna Akureyrarflugvöll.
Biðstaða er í innanlandsfluginu þessa stundina og öll áætlun Flugfélags Íslands og Ernis er í nánari athugun. Aska er víða í háloftunum og er verið að kortleggja hana nánar. Keflavíkurflugvöllur er hinsvegar opinn og hefur millilandaumferð verið með eðlilegum hætti í morgun.
Samráðshópur stjórnvalda og ferðaþjónustu hefur verið starfandi frá upphafi goss í Eyjafjallajökli undir forystu iðnaðarráðherra. Viðbragðsteymið heimsækir í dag ferðaþjónustuaðila, forsvarsmenn sveitarfélaga og almannavarna á Hvolsvelli, í Vík og á Moldnúpi undir Eyjafjöllum.
Fyrstu vélar Flugfélags Íslands og Ernis leggja upp frá Reykjavík klukkan tíu, en völlurinn var lokaður í morgun vegna ösku í lofti. Hvorki verður þó flogið til Akureyrar eða Egilsstaða þar sem vellirnir þar eru enn lokaðir. Egilsstaðaflugvöllur gæti opnast fljótlega, en Akureyrarflugvöllur verður hugsanlega lokaður í allan dag.
Fyrstu vélar Flugfélags Íslands og Ernis hafa ekki lagt upp frá Reykjavík samkvæmt áætlun núna í morgunsárið, þar sem völlurinn hefur verið lokaður. Horfur eru á að hann opnist innan tíðar en hinsvegar eru vellirnir á Akureyri og Egilsstöðum lokaðir vegna öskufalls, en Egilsstaðaflugvöllur gæti opnast fljótlega.
Þjónustumiðstöðin að Heimalandi minnir á áður auglýstan fund í kvöld klukkan 20:30 fyrir íbúa í Rangárþingi eystra á vegum sveitarfélagsins í félagsheimilinu Heimalandi. Á fundinum verður fjallað um stöðu mála vegna eldgossins í Eyjafjallajökili og úrræði rædd, að því er fram kemur í tilkynningu.
Horfur eru á að allir millilandaflugvellir hér á landi lokist í kvöld og verður það í fyrsta sinn frá því að eldgosið í Eyjafjallajökli hófst.
Töluverð röskun verður á flugi Icelandair í dag vegna lokunar Keflavíkurflugvallar, en flug var með eðlilegum hætti í morgun. Félagið hefur fellt niður flug til Kaupmannahafnar, London, New York, Boston og Seattle síðdegis.
Bæði Icelandair og Iceland Express flýttu brottförum margra Evrópuvéla í morgun vegna óvissu um flugskilyrði hér og þar yfir meginlandinu. Sumir flugvellir í Bretlandi, Skotlandi, Írlandi og í Hollandi voru lokaðir í morgun, en búið er að opna einhverja þeirra. Flugfélag Íslands hefur aflýst öllu innanlandsflugi fram eftir degi.
Farið er að bera á lambadauða í fjárhúsum á öskufallssvæðunum og fylgjast dýralæknar grannt með framvindu mála. Ekkert bendir til að flúoreitrun sé ástæða lambadauðans, heldur sé miklum og vaxandi þrengslum í fjárhúsum um að kenna, því ekki er hægt að hleypa ám og lömbum út úr húsunum, eins og venja er.
Icelandair hefur fellt niður allt flug síðdegis í dag vegna lokunar Keflavíkurflugvallar, en ekkert var flogið í morgun vegna þess að vellinum var lokað í nótt. Ekkert innanlandsflug er heldur um Reykjavíkurflugvöll og tólf farþegaþotur eru innilokaðar á Keflavíkurflugvelli.
Síðustu daga hafa Mýrdælingar fengið að kenna á öskufalli frá Eyjafjallajökli og er ástandið víða orðið nokkuð þrúgandi, sérstaklega meðal bænda og ferðaþjónustuaðila. Nú auglýsa heimamenn eftir sjálfboðaliðum til þess að aðstoða við hreinsun.
Öskufallið frá Eyjafjallajökli berst nú í vesturátt og var aska tekin að falla á Hvolsvelli á sjötta tímanum í morgun og um sjöleitið hófst öskufall á Selfossi. Samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar er ekki útilokað að lítilsháttar öskufall geti orðið á höfuðborgarsvæðinu síðar í dag.
Fleiri hundruð manns eru nú strandaglópar á Keflavíkurflugvelli eftir að vellinum var óvænt lokað í nótt vegna öskufalls frá Eyjafjallajökli. Reykjavíkurflugvelli var lokað um leið.
Mikið öskufall var undir Eyjafjöllum í gærkvöldi og fram á nótt. Skyggni fór allt niður í tvo metra þegar verst var, og yfirgáfu nokkrar fjölskyldur heimili sín og gistu annarsstaðar. Undir morgun færðist öskufallið yfir Fljótshlíðina og þar er nú meira öskufall en orðið hefur frá upphafi gossins.
Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja hefur í tvígang kallað til þyrlu Landhelgisgæslunnar til að flytja sjúklinga til lands, fremur en að kalla til Mýflug, sem í síðustu viku tók við sjúkraflutningum þaðan af Flugfélagi Vestmannaeyja.
Mjög mikið öskufall er nú undir Eyjafjöllum. Varðstjóri hjá lögreglunni segir að um klukkan átta hafi nánast verið kolniðamyrkur frá Holtsá og austur fyrir Skóga. Lögreglumenn sem voru á ferð á svæðinu sögðu að skyggni hefði aðeins verið um tveir metrar þegar verst lét.
Gosvirknin í Eyjafjallajökli virðist nokkuð stöðug núna en mökkurinn er þó nokkuð hærri í dag en í gær. Í stöðuskýrslu frá Veðurstofunni segir að ekkert bendi til þess að gosinu sé að ljúka. Óróinn er nokkuð stöðugur og hefur verið svipaður síðustu sólarhringa og um klukkan fjögur í dag mældust fjórir skjálftar undir jöklinum.
Icelandair hefur tilkynnt breytingar á flugáætlun sinni í ljósi þess veðurspá gefur til kynna að Keflavíkurflugvöllur gæti lokast hluta morgundagsins vegna gossins í Eyjafjallajökli.
Bílaleigur hafa lítið sem ekkert keypt af notuðum bílum í vor eins og vonir stóðu til eftir að lög voru samþykkt sem heimiluðu þeim að fá virðisaukaskattinn endurheimtan við kaup á notuðum bílum. Ástæðan er samdráttur í bókunum sem rakin er til eldgossins í Eyjafjallajökli.
Öskufall í Skaftártungum suðaustur af Eyjafjallajökli var hið mesta í nótt frá upphafi gossins í Eyjafjallajökli. Heybanki verður stofnaður til að tryggja bændum á öskufallssvæðunum fóður fyrir skepnur þeirra í vetur.
Skjálftahrina varð undir Eyjafjallajökli upp úr klukkan sex í morgun en skjálftarnir voru allir vægir, eða innan við tvo á Richter. Gosið hélt ámóta styrk í nótt og var í gærdag en vindur er hægur á slóðum gossins þannig að öskufall er mest í næsta nágrenni eldstöðvarinnar.
Sjö flugvöllum hefur verið lokað á Spáni í morgun vegna ösku sem borist hefur úr Eyjafjallajökli til Vestur-Evrópu. Um er að ræða þrjá flugvelli í suðurhluta meginlandsins og fjóra á Kanarí. Því er ljóst að eldgosið á Eyjafjallajökli mun áfram hafa áhrif á ferðalög þúsundir manna.
Öskufallið frá Eyjafjallajökli gæti haft áhrif á Kvikmyndahátíðina í Cannes, sem gert er ráð fyrir að hefjist á miðvikudaginn. Um 20 flugferðum til flugvallarins í Nice, sem er næstur Cannes, var aflýst í gær og fleiri flugferðum var frestað.
skjálftahrina varð undir Eyjafjallajökli um klukkan ellefu í morgun, en virðist vera að hjaðna á ný. Nokkrir skjálftar mældust rúmlega tveir á Richter.
Félagið BAA, sem rekur tvo af stærstu flugvöllum Bretlands, Heathrow og Stansted, segir að flugfarþegum um þessa velli hefði fækkað um tæp 23% í apríl miðað við sama mánuði í fyrra. Ástæðan er askan frá gosinu í Eyjafjallajökli.
Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins, var á ferð undir Eyjafjöllum um helgina og myndaði það sem fyrir augun bar. Nokkrar myndanna má sjá í myndasafni hér fyrir neðan. Í safninu má meðal annars smá sjá myndir af dýrum, mönnum, bílum og Eyjafjallajökli.
Keflavíkurflugvöllur verður opnaður eftir rúma klukkustund og innanlandsflug um Reykjavíkurflugvöll hefst um og upp úr klukkan tíu, en völlurinn var lokaður í morgun vegna ösku í háloftunum. Fjöldi flugfarþega er á leið til Akureyrar og þangað eru einhverjar vélar komnar eða a leiðinni þangað.
Millilandaflugvélar komu og fóru frá Akureyrarflugvelli fram á nótt, en hlé varð undir morgun. Umferðin er aftur að fara í fullan gang og er reiknað með töluverðri umferð um völlinn í dag. Verulegt álag hefur verið á starfsliði vallarins og aukaliði frá Reykjavík og Keflavík, en engin alvarleg vandamál hafa komið upp, að sögn starfsmanna í morgun.
Flugsamgöngur víðs vegar um Evrópu komust í uppnám vegna eldgossins í Eyjafjallajökli um helgina. Flugvöllum var meðal annars lokað um tíma í Frakklandi, Sviss, Þýskalandi, Spáni, Ítalíu og Írlandi í gær. Um 24.500 flug fóru um Evrópu í gær, en það er 500 færri flug en venja er.
Öllum flugferðum til og frá Keflavíkurflugvelli hefur verið aflýst vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli. Þá er truflun á öllu innanlandsflugi og er athugun klukkan 11:15. Nokkrar vélar fóru af stað frá Keflavíkurflugvelli í morgun en nú hefur brottför fimm véla í dag og komu níu véla síðdegis og í kvöld verið aflýst.
Loftrými umhverfis Keflavíkurflugvöll fyrir blindflugsumferð lokast eftir hádegi á morgun. Spár gera ráð fyrir að öskuský vegna eldgossins í Eyjafjallajökli verð komið að vesturströnd Íslands um hádegi á morgun. Iceland Express hefur ákveðið að flýta flugi sem átti að fara síðdegis á morgun til Alicante.
Töluverðar breytingar hafa orðið á gosinu í Eyjafjallajökli á síðustu dögum. Hraunrennsli hefur minnkað verulega og sprengivirkni aukist til muna. Svartur gosmökkur steig upp beint frá gosstöðvunum í gær.
Sérfræðingar telja að Eyjafjallajökull muni halda áfram að gjósa af fullum krafti næstu daga. Órói í dag var svipaður og í gærdag.
Eyjafjallajökull heldur áfram að gjósa af fullum krafti næstu daga að því er sérfræðingar segja en ný kvika virðist vera að þrýsta sér upp neðst í kvikurásinni. Á heimasíðu Veðurstofunnar er bent á að aukin jarðskálftavirkni hafi verið undir jöklinum frá því á mánudag.
Veðurskyrðin sem verið hafa á landinu undanfarna daga og rakinn í loftinu virðast hafa gert það að verkum að drunurnar úr Eyjafjallajökli hafa borist mun víðar en áður. Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að fólk hafi haft samband frá Vesturlandi, Suðurlandi og frá Mýrum og sagt frá drununum.
Erlendir ferðamenn voru 16,9% færri nú í apríl en í apríl á síðasta ári. Þannig fóru rúmlega 23 þúsund erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð í mánuðinum samanborið við tæp 28 þúsund á sama tíma í fyrra.
Litlar breytingar hafa orðið á gosinu í Eyjafjallajökli frá því í gær, samkvæmt upplýsingum sem fengust frá Veðurstofu Íslands í morgun. Gosmökkurinn sást vel í gær en hann var töluvert dekkri en áður. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var greint frá því að ástæðuna mætti rekja til aukinnar sprengivirkni í gosinu.
Flugvellir á Írlandi og í Skotlandi eru lokaðir áfram í dag vegna öskunnar frá gosinu í Eyjafjallajökli. Samkvæmt frétt um málið á BBC er líklegt að
Sérfræðingar miðla upplýsingum til íbúa á áhrifasvæði Eyjafjallajökuls þessa dagana. Fundirnir með sérfræðingum fara fram í hádeginu í þjónustumiðstöðinni í Heimalandi.
Almannavarnir vöruðu í dag við hættu á lífshættulegum gusthlaupum sem gætu farið hratt niður með Gígjökli og náð niður á Markarfljótsaura. Slík eiturský geta orðið 300 stiga heit og drepa allt kvikt sem í vegi þeirra verða.
Eldgosið í Eyjafjallajökli ógnar heilli atvinnugrein. Þetta kom fram í ræðu iðnaðar- og ferðamálaráðherra, á Ferðamálaþingi í dag en þar var kynnt stærsta kynningarátak fyrir ferðaþjónustuna sem ráðist hefur verið í sögu þjóðarinnar.
Mikil átök hafa verið við Gígjökul síðastliðinn sólarhring, eins og fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2. Glóandi hrauneðjan er við það að steypast undir snarbrattan skriðjökul. Ís og eldur takast á með feiknarlegum fljóðbylgjum.
Eyjafjallajökull hefur nú lagt fyrsta flugfélagið að velli. Það er lítið sænskt flugfélag Flyglinjen sem stofnað var í febrúar.
Rennsli í Markarfljót vegna eldgossins í Eyjafjallajökli jókst tímabundið síðdegis í gær og varð þá svipað og í fyrri flóðum þann 30. apríl. Um klukkan hálfátta í gærkvöldi sýni vefmyndavél síðan gufuský við jaðar Gígjökul sem gefa til kynna heitt bræðsluvatn.
Kvikustreymi og gosmökkur á Eyjafjallajökli hefur verið með svipuðum hætti og undanfarna sólarhringa og hraun heldur áfram að renna til norðurs í upptökum Gígjökuls. Sprengivirknin og öskuframleiðsla er aðeins brot af því sem hún var í byrjun gossins en engin merki sjást um að gosi sé að ljúka.
Talið er að kvikuflæðið upp úr gosrásinni í Eyjafjallajökli, sé allt að 50 tonn á sekúndu, sem er meira en haldið hefur verið, en minna en við upphaf gossins. Þetta flæði jafngildir þyngd fimmtíu lítilla fólksbíla á sekúndu.
Vatnsrennsli undan Gígjökli í Eyjafjallajökli jókst nokkuð undir morgun og er að berast út í Markarfljót. Þetta er þó ekki neitt stórhlaup og tala vísindamenn frekar um gusu. Annars hélt gosið ámóta krafti í nótt og verið hefur síðasta sólarhringinn. Engin merki er um að gosinu sé að ljúka.
Allir alþjóðaflugvellir á landinu hafa verið opnir síðan í gærkvöldi og millilandaflugið fer nú um Keflavíkurflugvöll. Allt bendir til að innanlandsflug verði samkvæmt áætlun í dag eftir tveggja daga röskun. Fyrstu innanlandsvélarnar fóru frá Reykjavík í gærkvöldi til Akureyrar og Egilsstaða.
Kvikustreymi og gosmökkur í Eyjafjallajökli hefur verið með svipuðum hætti og undanfarna sólarhringa og hraun heldur áfram að renna til norðurs í upptökum Gígjökuls. Af gufu sem leggur upp af Gígjökli má ráða að hraunið sé komið í hallann til norðurs.
Bændur á öskufallssvæðinu undir Eyjafjöllum huga nú að sumarbeit fyrir sauðfé og öflun heys, að sögn Katrínar Andrésdóttur héraðsdýralæknis. Hún er þessa dagana á ferð um svæðið ásamt Þorsteini Ólafssyni, sérgreinadýralækni sauðfjár og nautgripa. Þau ræða við bændur og taka stöðuna.
Kvikustreymi og gosmökkur í Eyjafjallajökli hefur verið með svipuðum hætti og undanfarna sólarhringa og hraun heldur áfram að renna til norðurs í upptökum Gígjökuls. Í stöðumati Veðurstofunnar segir að sprengigos og gjóskumyndun sé aðeins lítið brot af því sem var þegar gosið var mest þó gjóskufalls gæti 40 km vestan gosstöðvanna.
Flugvellirnir á Akureyri og á Egilsstöðum verða opnir áfram í kvöld og í nótt en útlit var fyrir að þeim yrði að loka sökum öskufalls frá Eyjafjallajökli. Flugvellirnir í Keflavík og í Reykjavík eru hinsvegar enn á svokölluðu svörtu svæði miðað við spá um öskudreifingu og verða því lokaðir áfram.
Þjóðvegur 1 er opinn undir Eyjafjöllum en vegfarendur eru beðnir um að fara með gát þar sem bráðabirgðaviðgerðir eru á veginum.
Sex milljónum króna verður varið til kaupa og uppsetningar á sjálfvirkum mæli til að mæla svifryk á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli. Ríkisstjórnin samþykkti tillögu Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra þess efnis á fundi í morgun.
Flugfélag Íslands hefur aflýst öllu flugi í dag sökum gjóskuskýja sem takmarka flugumferð. Innanlandsflug klukkan 7:15 í fyrramálið er í athugun.
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að leggja allt að 350 milljónir króna í kynningarátak á íslandi, vegna fyrirsjáanlegrar fækkunar ferðamanna til Íslands.
Smá sprengingar hafa verið í morgun í gosinu í Eyjafjallajökli, en að öðru leyti er gosórói svipaður og undanfarna sólarhringa. Aska stígur upp í rösklega þriggja kílómetra hæð og leggur til norðvesturs, en öskufall í byggð er sára lítið og greinist varla, þar sem það er á annað borð.
Ekkert innanlandsflug hefur verið í morgun vegna eldfjallaösku í lofti, en Flugfélag Íslands og Ernir ætla að kanna skilyrði eftir hádegi. Flugi Icelandair og Iceland Express frá landinu var flýtt un nokkrar klukkustundir í morgun, en loftrými yfir Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvöllum eru lokuð.
Icelandair stefnir að því færa tengibanka sinn frá Glasgow til Íslands á morgun og fljúga samkvæmt áætlun frá og með fimmtudagsmorgni. Vegna takmarkana á flugi um Keflavíkur- og Akureyrarflugvelli næsta sólarhringinn er gert ráð fyrir töluverðum seinkunum fram að þeim tíma.
Öllu flugi Flugfélags Íslands hefur verið frestað fram yfir hádegi, vegna eldfjallaösku í lofti. Athugað verður nánar með flug upp úr klukkan eitt. Flugfélagi Ernir hefur líka frestað öllu sínu morgunflugi, sem átti að vera til Sauðárkróks, Hafnar og Bíldudals. Aðstæður verða endurmetnar í hádeginu.
Kvikustreymi og gosmökkur frá eldgosinu í Eyjafjallajökli hefur verið með svipuðum hætti og undanfarna sólarhringa og hraun heldur áfram að renna til norðurs í upptökum Gígjökuls.
Ekki hefur orði vart við öskufall frá gosinu í Eyjafjallajökli í morgun, en rennsli hefur aukist í Markarfljóti, án þess þó að jarðvísindamenn reikni með flóði.
Hundruð erlendra ferðamanna hafa afbókað gistingu á hótelum borgarinnar í apríl og maí vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Hótelstjórar eru uggandi og segja fólk helst óttast að verða innlyksa hér á landi.
Iceland Express vonast til að flug komist í eðlilegt horf í dag. Framan af degi má þó búast við einhverjum seinkunum, að fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. Reiknað er með að allt flug Iceland Express verði svo komið í samt lag frá Keflavík í fyrramálið.
Gosið í Eyjafjallajökli er enn í gangi en heldur minni drunur heyrðust frá því niður á Hvolsvöll í nótt en verið hefur. Engar fregnir hafa borist af öskufalli í nótt, en í fyrrinótt varð þess vart, meðal annars á Selfossi.
Bandaríska hagkerfið tapaði 813 milljón dollara eða ríflega 100 milljörðum kr. vegna öskunnar frá Eyjafjallajökli. Hér er átt við fyrstu sex dagana sem gosið stóð og lamaði meir og minna flugsamgöngur í norðurhluta Evrópu.
Tvær vélar frá Icelandair komu til Akureyrar frá Glasgow í nótt og eru báðar farnar út aftur. Komu þeirra seinkaði í nótt vegna óvissu um ösku í lofti. Þá er vél væntanleg frá Glasgow laust fyrir klukkan tíu. Millilandaflug félagsins verður áfram á milli Akureyrar og Glasgow í dag og allt Ameríkuflugið fer beint á milli Bandaríkjanna og Glasgow.
Farþegaþota flaug í gær í fyrsta sinn í tvo áratugi milli Íraks og Bretlands. Eldgosið í Eyjafjallajökli olli því að fresta þurfti fluginu um níu daga.
Ráðast þarf í miklar aðgerðir til að fá erlenda ferðamenn aftur til landsins. Þetta er mat framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar, Ernu Hauksdóttur.
Ekkert sást til gosmökksins úr Eyjafjallajökli í gærdag, hvorki ofan né neðan frá, að sögn sérfræðinga Veðurstofunnar og Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands.
Vonast er til að sú breyting verði á dreifingu ösku frá Eyjafjallajökli að hægt verði að taka innanlandsflug upp að nýju í dag. Innanlandsflugið lá niðri um helgina.
Það sem stefndi í að verða mesta ferðamannasumar í manna minnum er aðeins svipur hjá sjón eftir eldgosið. Salan er aðeins fjórðungur af því sem var fyrir gos. Þetta segir Matthías Imsland forstjóri Iceland Express. Hann vonar þó að hægt verði að lenda á Keflavíkurflugvelli á morgun.
Lögreglan á Hvolsvelli vill minna á að lokað er um Emstruveg og hafa núna verið sett upp sérstök umferðarskilti til að vekja athygli á því. Mjög hart verður tekið á brotum gegn banni við umferð á þessum vegi.
Miklar drunur hafa heyrst frá Eyjafjallajökli í allan dag, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli.
Enn liggur innanlandsflug hjá Flugfélagi Íslands niðri og er ekki búist við því að það verði neitt flogið í dag.
Iceland Express flýgur til Kaupmannahafnar og London frá Akureyri núna eftir hádegið. Vélin til Kaupmannahafnar fer klukkan þrjú og vélin til London klukkustund síðar eða klukkan fjögur. Sætaferðir fyrir farþega eru frá BSÍ .
Miklar drunur heyrðust frá Eyjafjallajökli í gærkvöldi, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. Hraun rennur nú hægt til norðurs og bræðir ís en ekki er talin flóðahætta á svæðinu. Karen Kjartansdóttir ræddi við jarðfræðing á Veðurstofu Íslands.
Nóttin var róleg í grennd við gosstöðvarnar á Eyjafjallajökli. Lögreglan á Hvolsvelli á í dag von á hátt í hundrað manns, félögum björgunarsveita, jeppaklúbbnum 4x4, félögum Fésbókarsíðu og öðrum sem vilja aðstoða við hreinsun og störf á bæjum undir Eyjafjöllum.
Gosmökkur stendur upp frá gígnum í Eyjafjallajökli til suðvesturs upp í 4 kílómetra hæð. Gjóskufall er lítið og ekki hefur frést af öskufalli á láglendi. Gróflega áætlað er vatnsrennsli frá Gígjökli um 100 til 120 rúmmetrar á sekúndu, samkvæmt tilkynningu sem send var frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjórans nú á áttunda tímanum.
Órói er enn í Eyjafjallajökli, samkvæmt upplýsingum sérfræðinga Veðurstofu Íslands á fjölmiðlafundi í Skógarhlíð í morgun. Öskuframleiðsla er enn í gangi en gosmökkurinn er undir 3 km hæð og mælist því ekki á ratsjá.
Mistur liggur yfir höfuðborgarsvæðinu nú og segir sérfræðingur frá Veðurstofunni að það sé af völdum gossins í Eyjafjallajökli. Dökkan mökk leggur nú frá eldstöðvunum og einhver öskumyndun er enn til staðar.
Kristján Guðmundsson býr að Steinum undir Eyjafjöllum og er því í nágrenni eldgossins í jöklinum. Hann kippir sér ekkert upp við eldsumbrotin, enda öllu vanur þar sem þetta er þriðja gosið sem hann sér í návígi.
„Ég hef fulla trú á að grasið spretti upp úr öskunni í sumar því hér er rigningasamt og hlýtt en ég óttast að erfitt verði að heyja á túnunum þar sem askan rótast upp undan vélunum.“ Þetta segir Guðni Þorvaldsson, doktor í gróðurfræðum og einn þeirra sem nú sinnir kindum sínum og klárum við erfiðar aðstæður austur undir Eyjafjöllum.
Þegar hefur verið hafist handa við hreinsum á bænum Önundarhorni undir Eyjafjöllum, en jörðin varð sérstaklega illa úti þegar Svaðbælisá hljóp skömmu eftir að gosið hófst í Eyjafjallajökli.
Flugumferð Finnair, ríkisflugfélags Finna, færist í eðlilegt horf um helgina eftir að hafa farið mjög úr skorðum í vikunni vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Í tilkynningu félagsins í gær var haft eftir Mika Vehviläinen, forstjóra Finnair, að farþegar sem orðið hefðu fyrir röskunum yrðu aðstoðaðir eftir megni. Enn voru þá nokkur þúsund strand.
Heimsmeistarinn Viswanathan Anand og Búlgarinn Veselin Topalov hefja einvígi um heimsmeistaratitilinn í skák í dag.
Icelandair gerir ráð fyrir lokun Keflavíkurflugvelli verði lokað fram yfir helgi og hefur sett upp flugáætlun fyrir mánudaginn sem tekur mið af áframhaldandi lokun Keflavíkurflugvallar vegna spár um dreifingu ösku frá gosinu í Eyjafjallajökli.
Flugumferð um Akureyrarflugvöll verður takmörkuð í kvöld og nótt vegna nýrrar öskufallsspár. Þar verður ekki gefin svokölluð blindflugsheimild, að sögn Hjördísar Guðmundsdóttur upplýsingafulltrúa Flugstoða. Von er á næstu öskufallspá á miðnætti.
Lögreglan á Hvolsvelli minnir á að öll almenn umferð er bönnuð nærri eldstöðinni á Eyjafjallajökli. Bannsvæðið nær yfir jökulinn og hlíðar hans, Fimmvörðuháls og Mýrdalsjökul. Einnig er vegurinn í Þórsmörk lokaður allri umferð. Fólk er beðið um að virða þessar lokanir.
Allt flug, til og frá landinu, fer nú um Akureyrarflugvöll á meðan Keflavíkurflugvöllur er lokaður af völdum eldgossins. Mikið álag hefur verið á starfsfólkinu fyrir norðan en allt hefur gengið áfallalaust fyrir sig.
Grunnskólabörn á Hvolsvelli þurfa að bera rykgrímur til að verja sig fyrir öskunni úr Eyjafjallajökli sem nú er tekin að fara yfir þéttari byggðir. Almannavarnir vara foreldra og skólayfirvöld við því að leyfa börnum að vera úti að leik á meðan öskufall er.
Iceland Express flýgur frá Akureyri til Varsjár í Póllandi klukkan 6 í fyrramálið. Sætaferðir verða frá BSÍ á miðnætti. Þá fer önnur vél félagsins frá Akureyri til Alicante klukkan 15:30 á morgun og verða sætaferðir frá BSÍ klukkan 9:30 í fyrramálið.
Samkvæmt upplýsingum Veðurstofu hefur heldur dregið úr öskufalli frá eldgosinu í Eyjafjallajökli en spáð er suðaustlægri átt í dag og vaxandi vindi. Eitthvað öskufall er nú í átt að Fljótshlíð og verður líklega áfram norðvestur af eldstöðinni næstu daga.
Vélar Iceland Express til Kaupmannahafnar og Berlínar, sem áttu að fara í dag, verða sameinaðar í einu flugi frá Akureyri í dag. Farþegarnir eru nú á leið til Akureyrar og fóru rútur frá BSÍ áleiðist norður klukkan tvö. Vél félagsins til London Gatwick, sem fara átti snemma í fyrramálið verður frestað um 24 tíma.
Ekki verður neitt öskufall í Reykjavík þótt búið sé að loka flugvöllum á suðvesturhorninu.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur kynnt þá ákvörðun í samráði við stjórn Bjargráðsjóðs að heimila að hafist verði handa við hreinsun túna á bænum Önundarhorni undir Eyjafjöllum.
Engar breytingar urðu á eldgosinu í Eyjafjallajökli frá því sem hefur verið í rúmann sólarhring. Vindur hefur hinsvegar snúist í austurátt þannig að líitlsháttar öskufall er nú vestur af eldstöðinni.
Fjölgað verður í slökkviliðinu á Akureyrarflugvelli í dag og liðsauki landamæravarða af Keflavíkurflugvelli verður sendur þangað til að mæta þar stór aukinni alþjóðaflugumferð, eftir að Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvöllum var lokað undir morgun vegna hættu á eldfjallaösku í lofti.
Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur segir ljóst að flúorinnihald gjósku hafi aukist eftir að kvika hætti að fara í gegnum vatn í gosgígnum í Eyjafjallajökli.
Flugbannið í Evrópulöndum stóð í tæpa viku og varð til þess að fella þurfti niður meira en 100 þúsund flugferðir.
Líkur eru á að tveimur stærstu flugvöllum landsins í Keflavík og Reykjavík verði lokað í fyrramálið vegna öskufalls. Þar með raskast ferðaáætlanir þúsunda manna í millilanda- og innanlandsflugi. Flugvellirnir á Egilsstöðum og á Akureyri taka við millilandaflugi og Icelandair flytur miðstöð sína til Glasgow í Skotlandi.
Flugi Iceland Express til London Gatwick hefur verið flýtt til klukkan 23 í kvöld, en vélin átti að fara í loftið í fyrramálið klukkan 7. Ástæðan er væntanleg lokun Keflavíkurflugvallar í fyrramálið. Farþegar sem eiga bókað flug með félaginu eru beðnir að fylgjast vel með, því áætlun getur breyst með stuttum fyrirvara.
Allar líkur eru á að Keflavíkurflugvöllur og Reykjavíkurflugvöllur lokist í fyrramálið vegna öskustróks frá Eyfjallajökli en spáð er suðaustan átt á morgun.
Samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar reis gufumökkurinn í eldstöðinni á Eyjafjallajökli í um 18.000 feta 6 km hæð seinnipartinn í dag. Aska féll bæði norðan og sunnan við eldstöðina og náði öskumökkurinn í um 14.000 feta (4,5–5 km) hæð, að fram kemur í tilkynningu frá samhæfingarstöð almannavarna.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, heimsótti í morgun Samhæfingarstöðina í Skógarhlíð. Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri. og Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra tóku á móti forsetanum sem sat síðan upplýsingafund með fulltrúum ýmissa aðila sem manna samhæfingarstöðina.
Eldgosið á Eyjafjallajökla hefur flýtt fyrir einkavæðingu járnbrauta í Svíþjóð. Líkt og víða annars staðar lág flug niðri í nokkra daga vegna eldgossins hér á landi og olli það miklum truflunum og auknu álagi á lestakerfi Svíþjóðar.
Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur, segir ljóst að flúorinnhald gjósku hefur aukist eftir að kvikan hætti að fara í gegnum vatn í gosgígnum á Eyjafjallajöli. Gosaska í grennd við eldstöðvarnar á getur haft í för með sér ertingu og særindi í hálsi, sérstaklega fyrir fólk með astma.
Að sögn Kristínar Þórðardóttir, staðgengils sýslumanns á Hvolsvelli, eru 25 teymi með 120 félögum björgunarsveita Slysavarnarfélagsins Landsbjargar víðs vegar að af landinu að aðstoða bændur á um 20 bæjum undir Eyjafjöllum með ýmsum hætti.
Öll flugumferð frá Íslandi hefur verið samkvæmt áætlun í morgun en svo gæti farið að flugvöllum yrði lokað í Danmörku í kvöld.
Á upplýsingafundum sérfræðinga í Skógarhlíð og á Hvolsvelli í morgun kom fram að lítil aska féll úr gosinu í Eyjafjallajökli í gær og gosvirkni var róleg á yfirborðinu.
Suðurlandsvegur er opinn almennri umferð en vegfarendur eru engu að síður beðnir að sýna fyllstu aðgát, bæði vegna ösku og vegna þess að aðeins er um bráðabirgðaviðgerð á veginum að ræða. Vegagerðin biður vegfarendur um að sýna aðgát á öskusvæðinu. Ef blotnar í ösku á yfirborði vegar getur myndast hálka eða jafnvel fljúgandi hálka.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hvetur stjórnvöld í Evrópu
Öll flugumferð frá Íslandi er samkvæmt áætlun og er flogið til Kaupmannahafnar, Oslóar og Stokkhólms. Að öllu óbreyttu verður flogið á alla áfangastaði íslensku flugfélaganna í dag. Vélarnar þurfa þó að fara lengri leiðir í sumum tilfellum vegna öskufalls.
Að sögn vettvangsstjórnar á Hvolsvelli hefur nóttin verið mjög róleg í grennd við gosstöðvarnar. Rétt fyrir klukkan eitt í nótt varð örlítil aukning á vatnsrennsli í Markarfljóti og barst nokkur krapi með en þegar leið að morgni hafði vatnsmagn ekki aukist frekar í ánni. Frá eldstöðvunum má þó enn finna markvissan takt umbrotanna.
Búast má við öskufalli í grennd við eldstöðina og vestur af henni á morgun, samkvæmt spá Veðurstofunnar sem birt var klukkan tíu i kvöld á vef Veðurstofunnar.
Byggðin undir Eyjafjöllum varð fyrir miklu áfalli í dag þegar oddviti héraðsins, bóndinn á Þorvaldseyri, játaði sig sigraðan gagnvart náttúruöflunum og lýsti því yfir að hlé yrði á búskap um óákveðinn tíma á þessu eina glæsilegasta býli landsins.
Eldgosið í Eyjafjallajökli hefur sett hluta af heiminum á aðra hliðina. Við tókum saman nokkrar af þeim fréttum sem hafa verið efst á baugi síðustu daga.
Rólegt var á gosstöðvunum í Eyjafjallafjökli í nótt og er talið að kraftur gossins sé nú aðeins brot af því sem var á fyrstu dögum þess. Þá bendir allt til þess að nú gjósi aðeins úr einum gíg.
Þjóðvegurinn á milli Markarfljóts og Skóga var opnaður í gærkvöldi, en hann hefur verið lokaður síðan gosið hófst í Eyjafjallajökli og vegurinn var rofinn við Markarfljótsbrú.
Fyrstu farþegaflugvélarnar í Norður-Evrópu hófu sig til flugs í morgun eftir nær algert fimm daga flugbann vegna Eldgossins í Eyjafjallajökli.
Búist er við að öskufall úr Eyjafjallajökli dreifist umhverfis jökulinn í dag, en ekki aðeins til suðurs og suðausturs, eins og verið hefur. Nú er réttur mánuður síðan gos hófst í Fimmvörðuhálsi, sem flutti sig svo í Eyjafjallajökulinn.
Gera má ráð fyrir að flugumferð geti verið komið í eðlilegt horf á fimmtudaginn eftir gríðarlega röskun frá því í síðustu viku. Þetta er mat Loftferðaeftirlits Evrópu, eða Eurocontrol, að því er AFP greinir frá.
Lögreglan á Hvolsvelli hefur ákveðið að hleypa þeim, sem eiga brýnt erindi, áfram veginn milli Markarfljóts og Skóga fram til klukkan 10 í kvöld. Tekið skal fram að skyggni er slæmt undir Eyjafjöllum og á Mýrdalssandi og þar er nú mjög hvasst.
Gosmökkurinn yfir Eyjafjallajökli er talsvert lægri en hann hefur verið að undanförnu, sem talið er vita á að farið sé að draga úr öskugosinu og að gosið sé að verða hraungos. Gosvirkni jókst i gærkvköldi, dalaði aðeins í nótt en óx aftur í morgun.
Íbúafundir verða haldnir á næstunni með íbúum, sem hafa orðið fyrir búsifjum vegna eldgossins. Sá fyrsti verður að Gunnarshólma klukkan hálf ellefu í dag. Þar munu almannavarnanefndir í héraði, dýralæknar, jarðvísindamenn og fleiri sérfærðingar, ásamt fulltrúum frá stofnunum, fara yfir stöðuna og fjalla um aðgerðir.
Efnahagsleg áhrif öskunnar úr gosinu í Eyjafjallajökli gætu orðið víðtæk í Evrópu. Hagfræðingar telja að ef gosið stendur mánuðum saman muni það valda samdrætti í hagvexti um 1-2% í álfunni. Áður en gosið hófst var því spáð að hagöxtur í Evrópu yrði á bilinu 1-1,5% í ár.
Það snjóaði víða á norðan- og austanverðu landinu í nótt og er víða hálka, einkum á fjallvegum. Það var til dæmis al hvít jörð og hálka á Akureyri í morgunsárið.
Gosórói jókst í Eyjafjallajökli í gærkvöldi og er enn kraftur í gosinu. Gosmökkurinn er hinsvegar margfalt lægri en áður, hann stígur rétt upp fyrir jökulinn. Þetta staðfesta ratsjár og myndir úr gerfihnöttum.
Staðan á flugi frá Íslandi er sú að flug Icelandair til Kaupmannahafnar sem fara átti í dag hefur verið fellt niður en í stað þess er boðið upp á aukaflug til Osló. Einnig hefur flugi sem fara átti til Helsinki verið breytt og verður nú flogið til Tampere þess í stað.
Askan úr eyjafjallajökli heldur áfram að hrella evrópubúa og lama flugsamgöngur. Þó hafa flugvellir verið opnaði í Noregi og Svíþjóð þótt það gæti verið tímabundið.
„Það er leiðindalykt og allt á kafi í grári drullu,“ segir Berglind Hilmarsdóttir, ábúandi á Núpi undir Eyjafjöllum. Í gær birti til eftir að öskunni hafði kyngt niður og skildi eftir sig svart teppi yfir sveitinni. Berglind finnur til í öndunarfærunu og segir þungt að anda. „Eins og maður sé alltaf með ryk í nefinu.
Mikill fjöldi lagði leið sína austur á Hvolsvöll á laugardag til að berja gosstrókinn úr Eyjafjallajökli augum. Ökumenn fengu ekki að fara inn í Fljótshlíð eða að Markarfljóti samkvæmt fyrirmælum frá Almannavörnum.
Ný eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar hefur leikið aðalhlutverk við gagnaöflun við gosstöðvarnar á Suðurlandi. Upplýsingarnar hafa gagnast við hættumat og veitt jarðvísindamönnum ómetanleg tækifæri til rannsókna.
Sunnudagur: Vestanátt beinir gosmekki yfir Mýrdalsjökul. Búast má við öskufalli í Meðallandi og á Mýrdalssandi. Snýst í norðanátt í nótt, með öskufalli suður af Mýrdalsjökli.
Milljónir flugfarþega eru enn strandaglópar vegna ösku frá eldstöðinni í Eyjafjallajökli. Askan hafði engin áhrif á þotur sem flugu tilraunaflug yfir meginlandi Evrópu í gær. Mikill þrýstingur er á flugmálayfirvöld að aflétta flugbanni.
Gosvirkni í eldstöðinni á Eyjafjallajökli var minni í gær en áður og fór gosmökkurinn ekki jafn hátt og síðustu daga. Gosóróinn óx hins vegar, og er mjög erfitt að ráða í þýðingu þessara breytinga, segir Páll Einarsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands.
Verktakar luku í gær við bráðabirgðaviðgerð á þjóðvegi 1, hringveginum, við Markarfljótsbrú en ekki hefur verið ákveðið hvenær vegurinn verður opnaður fyrir almennri umferð. Einnig var gert við varnargarða sem verja veginn og brúna yfir Markarfljót.
Icelandair hefur ákveðið að fella niður flug til Kaupmannahafnar á morgun, mánudag en hefur sett þess í stað upp aukaflug til Osló þar sem veittar hafa verið flugheimildir.
Töluvert hefur dregið úr virkni eldstöðvarinnar undir Eyjafjallajökli. Ekki er hins vegar orðið tímabært að spá fyrir um endalok þess. Meira en 700 tonn af gosefni ruddust upp úr gígnum á hverri einustu sekúndu fyrstu þrjá sólarhringana.
Átta fundir verða haldnir með íbúum í grennd við Eyjafjallajökul næstu daga. Á fundunum verða yfirvöld og almannavarnanefnd í héraði, ásamt dýralækni, veðurfræðingi, jarðvísindamanni og fleiri sérfræðingum og fulltrúum stofnana sem koma að málum.
Gosvirkni í Eyjafjallajökli hefur verið minni í dag en áður. Gosmökkurinn fer lægra, öskumyndun er minni og litlar fréttir af hafa borist af öskufalli. Mökkur er bæði yfir Mýrdals- og Eyjafjallajökli en aska nær ekki niður í byggð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð.
Iceland Express stefnir að flugi til Kaupmannahafnar, Berlínar, Tenerife og Alicante á morgun, mánudag. Stefnt er að því, að Kaupmannahafnarvélin fari í loftið í fyrramálið, og Alicante, Tenerife og Berlín eftir hádegið. Félagið hefur hins vegar aflýst öllu flugi til London á morgun.
Fyrstu niðurstöður Hafrannsóknarstofnunar benda til þess að hrygningarsvæðum þorsks og annarra mikilvægra fisktegunda stafi ekki hætta af hlaupvatninu við ósa Markarfljóts vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.
Icelandair stefnir að flugi til og frá Skandinavíu og Bandaríkjunum á morgun, en aflýsir flugi til Bretlands og meginlands Evrópu.
„Það er náttúrulega allt grátt og það var skelfilegt að koma út," segir Heiða Björg Scheving, á bænum Steinum, þegar hún lýsir því hvernig var að koma út í morgun. Frá því að eldgosið hófst í Eyjafjallajökli í síðustu viku hefur mikið öskufall verið á svæðinu.
Stefnt er að því að opna Hringveginn við Markarfljót í kvöld. Vinna síðustu daga við viðgerðina á veginum og varnargörðum hefur gengið vel og styttist í að hægt verði að flytja neyðarakstur af gömlu brúnni yfir á þá nýju og þar með um Hringveginn. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.
Dýralæknar hafa í morgun farið á bæi og kanna ástandið á skepnum sem hafa verið úti í öskufallinu vegna eldgossins í Eyjafjallajökli og segja ástandið ótrúlega gott, samkvæmt samhæfingarmiðstöð almannavarna.
Nokkrar breytingar hafa orðið á gjóskufalli, óróa og gosmekki á gossvæðinu á Eyjafjallajökli en ekki sést til gosstöðvanna. Flugvél Landhelgisgæslunnar flýgur nú yfir svæðið og berast upplýsingar frá vísindamönnum síðar í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð.
Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur, segir vissulega líkur á því að gos hefjist í Kötlu í kjölfarið á gosinu í Eyjafjallajökli en ekkert sé hægt að fullyrða í þeim efnum.
Fundur með íbúum undir Eyjarfjöllum verður haldinn í dag á Heimalandi klukkan 13. Á fundinum verða fulltrúar almannavarnarnefndar og sveitarstjórnar. Farið verður yfir ástand og horfur á svæðinu. Íbúar eru hvattir til að mæta.
„Það standa sig allir mjög vel,“ segir Berglind Hilmarsdóttir, á bænum Núpi undir Eyjafjöllum, og vísar til aðgerða björgunarsveitarmanna, Rauða krossins og sveitunga hennar vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Hún tekur sem dæmi að björgunarsveitarmenn séu vel skipulagðir og fari á milli bæja og gangi þar í öll verk. „Þetta er samstillt átak.“
Vegna mikillar eftirspurnar hefur Icelandair ákveðið að efna til fjögurra aukafluga í dag til Þrándheims í Noregi. Áður hafði verið tilkynnt að farin yrðu tvö flug. Fyrsta flugið er klukkan 13, tvær flugvélar fara klukkan 14 og fjórða flugið er klukkan 15.
Í Evrópu og víðar eru milljónir strandaglópa vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli. Um 20 lönd lokuðu fyrir alla flugumferð nú um helgina og sum þeirra hafa framlengt bannið fram á morgundaginn, að sögn BBC, meðal annars Belgía, Búlgaría, Tékkland, Danmörk, Finnland, Lettland, Lúxemborg, Bretland og Slóvakía.
Frá Vegagerðinni koma þær upplýsingar að óvíst sé hvenær hringvegurinn við Markarfljót opnast fyrir almenna umferð. Ef frá eru talin vandamálin á gossvæðinu er greiðfært um allt sunnanvert landið. Annars eru hálkublettir sum staðar á heiðum, og með norðausturströndinni, á Möðrudalsöræfum og fjallvegum á Austurlandi.
Talsverður órói mældist við eldgosið í Eyjafjallajökli á miðnætti, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Auk þess voru miklar drunur og aukinn kraftur.
Pjetur Sigurðsson, ljósmyndari Fréttablaðsins, var á slóðum eldgossins á Eyjafjallajökli í gærkvöld og myndaði það sem fyrir augun bar. Nokkrar myndanna má sjá í myndasafni hér fyrir neðan.
Iclelandair hefur fengið heimild til flugs til Þrándheims í Noregi og efnir Icelandair til tveggja aukafluga þangað. Brottför fyrra flugsins er kl. 13 og brottför seinna flugsins er klukkustund síðar. Brottför frá Þrándheimi til Íslands verður síðan klukkan 18:50 og 19:50 að staðartíma.
Gosmökkurinn úr Eyjafjallajökli sést í allt að níu kílómetra hæð. Nokkuð rofaði til yfir gosstöðvunum í gærkvöldi. Jarðeðlisfræðingur býst við að draga taki úr gosinu á næstu dögum.
Sala á rykgrímum hefur margfaldast í verslunum og apótekum á höfuðborgarsvæðinu og fyrir austan undanfarna tvo daga vegna öskufallsins í Eyjafjallajökli. Sóttvarnalæknir fullyrðir að engin hætta stafi af öskufallinu fari fólk eftir varúðarráðstöfunum landlæknis.
Icelandair hefur tilkynnt að allt flug félagsins til Evrópuborga, þ.e. London, Kaupmannahafnar, Stokkhólms, Osló, Amsterdam, Frankfurt og Parísar á morgun, 18. apríl, verði fellt niður, líkt og raunin var um flugið til Evrópu í dag. Öskufallið frá eldgosinu í Eyjafjallajökli hefur lokað fyrir alla flugumferð í norðan- og vestanverðri Evrópu.
„Það er stafalogn og óloft sem hefur leitað inn í húsin til okkar," segir Sigurgeir L. Ingólfsson á bænum Hlíð undir Eyjafjöllum. Þar hefur líkt og víða annars staðar verið mikið öskufall vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. „Ég hef ekki séð það svartara. Hér er mun meira myrkur en nokkurn tíma verður á venjulegri vetrarnóttu," segir Sigurgeir.
Lögreglan á Hvolsvelli vill ítreka að Fimmvörðuháls og Eyjafjallajökull eru skilgreind bannsvæði, einnig er öll umferð á Mýrdalsjökli bönnuð. Veður er að breytast á svæðinu og vindur að færast til vesturs.
Eldgosið hefur verið stöðugt í dag, mökkurinn rís í 6-9 km hæð og leggur til suðurs. Það gýs úr eins km langri sprungu sem liggur frá norðri til suðurs í suðvesturhluta toppgígsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð.
Samráðshópur stjórnvalda og hagsmunaaðila í ferðaþjónustu hittist í dag í utanríkisráðuneytinu til að ræða samstarf og aðgerðir til að bregðast við erlendri fjölmiðlaumfjöllun um Ísland vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.
Á svæðinu í grennd við Eyjafjallajökul eru meira en 160 björgunarsveitarmenn að störfum frá 12 björgunarsveitum, samkvæmt upplýsingum frá samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð. Meðal verkefna þeirra hefur meðal annars verið að til að athuga með fólk á bæjum.
Íslendingar hafa eiginlega fært Bretum ekkert annað en tóm leiðindi að mati bresks blaðamanns. Við fórum í stríð við þá vegna þorsks, stálum sparifé þeirra og núna eru allar samgöngur lamaðar vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.
Undanfarna daga hefur mikil eftirspurn verið eftir flugi frá Íslandi með leiguflugi, að sögn Sigurðar Bjarna Jónssonar, stjórnarformanns Mýflugs. Um er að ræða útlendinga sem eru fastir hér á landi og vilja komast til meginlands Evrópu. Mýflug íhugar að fljúga til norðurhluta Noregs.
Flugfélagið British Airways hefur aflýst öllu flugi frá London að minnsta kosti fram á mánudag. Um er að ræða áætlað flug frá Heathrow og Gatwic, að fram kemur á vef Sky-fréttastofunnar. Vonast er til þess að hægt verði að fljúga eitthvað innanlands í Skotlandi og á Írlandi seinnipartinn í dag.
Umhverfisstofnun hefur komið upp svifryksmæli við Kirkjubæjarklaustur í því skyni að fylgjast með áhrifum gjóskufalls á loftgæði austur af Eyjafjallajökli, í jaðri og utan við mesta áhrifasvæði gjóskufallsins.
Almannavarnir ítreka að Eyjafjallajökull og hlíðar hans utan jökuls eru bannsvæði. Vindátt þurfi lítið að breytast til að öskufall verði þar. Í öskufalli svo nálægt eldstöðinni og í hæð jökulsins sé, auk mikilla áhrifa af öskunni sjálfri, mikil hætta af eldingum. Almannavarnir vara sterklega við öllum ferðum á Mýrdalsjökul.
Iceland Express hefur aflýst flugi félagsins í dag til London, Kaupmannahafnar og Varsjár. Flugi til Alicante, sem fara átti eftir hádegi í dag, hefur verið frestað til morguns.
Red Cross mass care centres in Heimaland, Vík and in Kirkjubæjarklaustur have been opened for those residents in the areas affected by the ash fall and who wish to temporarily evacuate their homes.
Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var staddur í grennd við Eyjafjallajökul í gærkvöldi og í nótt og fylgist með sjónarspilinu þar. Í meðfylgjandi myndum má meðal annars sjá stórkostlegar myndir af eldingum í gosmökkinum.
Mikill öskumökkur er til suðurs yfir byggð undir Eyjafjöllum frá Sauðhúsvöllum austur fyrir Skóga og eins á söndunum þar fyrir austan. Eldingar eru í mekkinum, að fram kemur frá yfirvöldum.
Mikið öskufall er frá Núpi undir Eyjafjöllum og að Vík. Líkur eru á að öskufall færist vestar og nái hugsanlega til Vestmannaeyja.
Nær allir stærstu flugvellir Evrópu verða áfram lokaðir í dag vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Milljónir flugfarþega er nú strandaglópar en samkvæmt breska ríkisútvarpinu þurfti að aflýsa um 16 þúsund áætlunarferðum vegna öskufallsins í gær.
Stöðugur kraftur var í gosinu í nótt til kl. 04:30 en fór þá heldur að draga úr því. Gossúlan fór í 8,5 km hæð. Stöðugur mökkur var uppúr gosstöðvunum og öskufall töluvert undir Eyjafjöllum. Mjög dimmt var sunnan undir jökli. Öskufallið er mjög þétt frá Núpi í vestri austur í Vík en er heldur minna á Mýrdalssandi.
Icelandair hefur tilkynnt að allt flug félagsins til London, Manchester/Glasgow, Kaupmannahafnar, Stokkhólms, Osló, og Amsterdam í dag,17. apríl, verður fellt niður. Öskufallið frá eldgosinu í Eyjafjallajökli hefur lokað fyrir alla flugumferð í norðan- og vestanverðri Evrópu.
Tvær finnskar herþotur urðu fyrir skemmdum eftir að hafa flogið í gegnum öskuna frá Eyjafjallajökli á fimmtudag.
Fjölskyldan á Þorvaldseyri má hafa sig alla við að svara fyrirpurnum erlendra fjölmiðla vegna heimsfrægrar ljósmyndar bóndans Ólafs Eggertssonar. Hann kveðst vona að greiðslur fyrir myndina dugi til að byggja nýjan flóðvarnargarð.
Annan daginn í röð var nánast ekkert flogið í Norður-Evrópu. Mat samtaka áætlunarflugfélaga er að tap flugfélaga sé 200 milljónir dollara á dag. Meira en helmingur fluga í evrópskri lofthelgi var felldur niður.
Hópur fjörutíu breskra skólakrakka þurfti að rjúka frá heitu lambalærinu á kvöldverðarborðinu á Hellishólum í Fljótshlíð á fimmtudagskvöld þegar kallið kom um rýmingu. Maturinn fór þó ekki til spillis heldur var slegið upp veislu í fjöldahjálparmiðstöðinni á Hellu.
Margar sagnir eru til um berdreymi, allt aftur til Íslendingasagnanna. Ef marka má Svein Runólfsson landgræðslustjóra, lifa þær góðu lífi í nútímanum.
„Nú vitum við að þetta er yfir hættumörkum,“ segir Gunnar Þorkelsson, héraðsdýralæknir á Kirkjubæjarklaustri, um flúormengunina í öskunni sem fallið hefur úr gosinu.
Heilbrigðisyfirvöld mæla eindregið með því að þeir sem búa á svæðum þar sem öskufalls gætir geri viðeigandi varúðarráðstafanir. Askan er afar fínkornótt og á greiða leið niður í öndunarfæri og það getur valdið fólki lungnaskaða. Fólk sem á við öndunarfærasjúkdóma að stríða ætti að fara sérstaklega varlega. Það sama á við um börn.
„Við eigum ein sjö tonn af ferskum flökum á Keflavíkurflugvelli sem bíða þess að komast í flug en staðan er vægast sagt mjög óljós. Við erum í stöðugu sambandi við viðskiptavini okkar í Evrópu.
Nýtt hlaup hófst úr Eyjafjallajökli laust fyrir klukkan þrjú í dag. Hlaupið var minniháttar að sögn lögreglumanna á Hvolsvelli.
Þessi magnaða mynd sem tekin var með sérstakri myndavél um borð í vél Landhelgisgæslunnar TF-SIF í gær. Myndin sýnir þrjú megin gosop eldgossins á Eyjafjallajökli. Gosopin eru 200 til 500 metrar í þvermál.
Jón Bjarnason Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra boðaði til fundar í ráðuneytinu í dag um möguleg áhrif eldgossins í Eyjafjallajökli á landbúnað og sjávarútveg og viðbrögð við því.
Flugvél frá Iceland Express fer til Glasgow klukkan sex í dag, en flugheimild hefur fengist þangað. Flugið nýtist einkum þeim, sem áttu bókað til London Gatwick eða London Stansted, samkvæmt fréttatilkynningu frá Iceland Express.
Það er nýtt flóð á leiðinni úr Eyjafjallajökli, segir Kjartan Þorkelsson, sýslumaður á Hvolsvelli. Flóðið er rétt að byrja og ekki ljóst á þessari stundu hversu stórt það er.
„Þetta var alveg svakalegt hérna í gær. Það var bara myrkur eins og þegar maður er að fara að sofa á kvöldin, segir Bjarney Sigvaldadóttir, bóndi á Bakkakoti við Kirkjubæjarklaustur. Hún og Torfi Jónsson eiginmaður hennar voru með barnabörnin hjá sér þegar að gosið hófst í Eyjafjallajökli og
Rauði kross Íslands vill vekja athygli á að Hjálparsími Rauða krossins 1717 gegnir hlutverki upplýsingasíma fyrir almenning þegar náttúruhamfarir verða.
Allur viðbúnaður almannavarnakerfisins hefur reynst afar traustur og samvinna verið góð og áreiðanleg á milli allra viðbragðsaðila, segir ríkisstjórn Íslands í sameiginlegri yfirlýsingu í dag.
Vegurinn á milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs er lokaður, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Á Kirkjubæjarklaustri búast menn við miklu öskufalli á næstu mínútum. Verið er að útbýtta grímum niðri í sveitum.
Gosstrókar fóru upp fyrir 8 km hæð þrisvar í morgun en er að jafnaði í um 5 kílómetra hæð. Óróatoppar komu fram á svipuðum tíma á skjálftamælum. Þeir voru þó orkuminni en púlsar sem komu fram fyrir hlaupið í gær. Óróatopparnir sjálst á jarðskjálftamælum frá Kaldárseli í Hafnarfirði að Kálfafelli í Suðursveit.
Þrír stórir mjólkurbílar fóru yfir gömlu brúnna á Markarfljóti klukkan hálf tíu í morgun og eru byrjaðir að safna mjólk af bæjum fyrir austan fljótið. Hún verður svo selflutt á léttum bíl vestur yfir brúnna.
Öskulag hefur lagst á bíla á vesturhluta Jótlands í Danmörku, samkvæmt frétt Jyllands Posten. Á vefútgáfu blaðsins segir að burtséð frá þeirri röskun sem hafi orðið á flugi ætti það að vera ómögulegt að Danir upplifi öskufall frá gosinu í Eyjafjallajökli. Þetta hafi nú samt gerst.
Icelandair efnir til aukaflugs til Glasgow í Skotlandi, og verður brottför frá Keflavíkurflugvelli kl. 14.00. Í tilkynningu frá félaginu segir að heimild hafi fengist til flugsins. Í ljósi þess hversu margir farþegar eru staðsettir hér á landi sem strandaglópar vegna eldgossins hefur verið ákveðið að bjóða upp á flug þangað.
Ljóst er að hringvegurinn við Markarfljót verður ekki opnaður á hádegi eins og stefnt var að. Á heimasíðu Vegagerðarinnar segir að vegna flóðanna í gærkvöldi og í nótt hafa skapast nýjar aðstæður. Gamla brúin yfir Markarfljót hefur þó verið opnuð, með takmörkunum þó.
Nær öll hótel í Kaupmannahöfn voru yfirfull af gestum í nótt vegna öskunnar úr Eyjafjallajökli. Gestirnir voru flugfarþegar sem eru strandaglópar í borginni þar sem allt flug til og frá Danmörku leggur niðri. Svipuð staða hefur eflaust verið upp á teningnum í fleiri stórborgum um norðanverða Evrópu.
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Víðir Reynisson, yfirmaður almannavarnadeildar, mæta á fund ríkisstjórnarinnar sem hófst klukkan hálftíu í morgun. Þar munu þeir kynna stöðu mála vegna náttúruhamfaranna í Eyjafjallajökli.
Icelandair hefur tilkynnt að flugi félagsins í dag til sex Evrópuborga hefur verið aflýst. Flugi FI318 til Osló, og flugi FI436 til Manchester/Glasgow hefur verið seinkað til kl. 16.00 í dag í þeirri von að heimildir til flugs til þessara staða verði veittar þegar líður á daginn.
Hundruð þúsunda farþega hafa orðið að fresta eða aflýsa ferðum sína víðsvegar um Norður Evrópu og í gær var fimm þúsund flugferðum aflýst í gær vegna gossins.
Flóð hljóp í Markarfljót upp úr klukkan tvö í nótt og aftur klukkustund síðar, en þau voru bæði minni en flóðið, sem varð um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Annað þeirra virðist þó hafa verið litlu minna en kvöldflóðið.
Anna Runólfsdóttir, bóndi í Fljótshlíðinni, varð innlyksa í hlaupinu núna í kvöld. „Ég heyrði miklar drunur og ályktaði svo að það væri að koma nýtt flóð,“ segir Anna.
„Fólk er ótrúlega rólegt. Það er rólegt og þakklátt," segir Árný Hrund Svavarsdóttir, starfsmaður fjöldahjálpamiðstöðvar Rauða krossins.
Hlaupið úr Eyjafjallajökli fer senn að nálgast efri brúna samkvæmt upplýsingum frá Kjartani Þorkelssyni, sýslumanni á Hvolsvelli.
Flóðið sem er á leiðinni niður Eyjafjallajökul sem er að koma niður Gígjökul vegna gossins í Eyjafjallaökli er stærra en flóðið í gær að sögn Rögnvalds Ólafssonar hjá Almannavörnum.
Ökumenn verða að passa bíla sína séu þeir á slóðum þar sem búast má við öskufalli. Vélarnar eru líklegar til að soga að sér öskuna þannig að hún stífli bílana. Það gæti valdið umtalsverðu tjóni fyrir bifreiðaeigendur.
Flóðið lamdi duglega á varnargörðunum við efri brúna að sögn Ásgeirs Árnasonar, bónda við Stórumörk 3, sem er nærri Þórsmörk. Hann fylgist með flóðinu og lýsti því þannig að það virtist minna í því heldur en í gær en það væri þó allt öðruvísi. Vatnið væri fullt af ís auk krapa og eðju.
„Ég vona bara að varnargarðarnir haldi,“ segir Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður sem býr á Hvolsvelli. Þar er nú fólk úr Landeyjum og Fljótshlíðinni að safnast saman í fjöldahjálparmiðstöðinni í Hvolsskóla vegna hlaupsins sem nú rennur úr Eyjafjallajökli.
Vegna upplýsinga um að stórt vatnsflóð sé að koma niður Gígjökul þá verða áhrifasvæði Eyjafjallajökuls rýmd strax.
Aldrei í sögunni hafa orðið aðrar eins truflanir á flugsamgöngum í norðanverðri Evrópu og með gosinu í Eyjafjallajökli. Sjö lönd hafa alveg lokað lofthelgi sinni og leyfa ekkert flug. Gosið truflar raunar flugsamgöngur um allan heim.
Eins og gefur að skilja hefur Netið bókstaflega logað í allan dag með fréttum af eldgosinu og afleiðingum þess.
Vegurinn að Markarfljóti verður sennilegast ekki opnaður fyrr en á morgun, segir Sveinn Rúnarsson yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli. Vegagerðamenn eru byrjaðir að vinna á fullu að viðgerð á veginum en hann rofnaði á fjórum stöðum vegna vatnavaxta frá eldgosinu í gær.
Það verður vestanátt áfram í dag þannig að öskufall heldur áfram á sömu slóðum, samkvæmt upplýsingum frá sérfræðingi á Veðurstofu Íslands. Öskufallið er mest á Mýrdalssandi, Álftaveri, Meðallandi og í Skaftártungum.
Icelandair hefur fellt niður flug til og frá Osló og Stokkhólmi og tvö flug til og frá Kaupmannahöfn í dag, en þessu flugum hafði áður verið seinkað vegna áhrifa gossins í Eyjafjallajökli.
Vísi.is bárust þessar myndir af öskufallinu frá Meðallandi við Kirkjubæjarklaustur. Myndirnar voru teknar klukkan 11 í morgun og sýna hve þykkt öskulagið er í nágranni við gosið.
Askan úr Eyjafjallajökli mun valda gífurlegu tapi hjá flugfélögum og flugvöllum í norðurhluta Evrópu og víðar um heiminn. Þess sjást m.a. merki í kauphöllum þessa stundina og sem dæmi má nefna að hluti í SAS hafa fallið um 7% í kauphöllinni í Kaupmannahöfn í dag.
Eldgosið í Eyjafjallajökli í gær og hlaupið úr Gígjökli sem fylgdi á eftir hefur vakið athygli um allan heim. Um mikið sjónarspil er að ræða eins og starfsmenn Landhelgisgæslunnar komust að í gær þegar flogið var yfir svæðið.
Rannsóknaskipið rs. Bjarni Sæmundsson fer í dag að ósum Markarfljóts til að kanna áhrifasvæði hlaupsins. Í frétt á vef Hafrannsóknarstofnunar kemur fram að athyglin beinist að því hvað verði af efnum í hlaupvatningu bæði er varði þau uppleystu og gruggið.
Almannavarnir hafa gefið út tilkynningu þar sem mælt er með notkun rykgríma vegna öskufallsins úr gosinu á Eyjafjallajökli.
Eftir því sem askan úr Eyjafjallajökli færist yfir Evrópu aukast áhrifin á flugumferð. Flugmálayfirvöld í Danmörku miða nú við að loka Kastrup flugvelli í Kaupmannahöfn klukkan þrjú að íslenskum tíma. Ennfremur verður sett bann við öllu flugi í danskri lofthelgi klukkan fjögur .
Veðurstofan gerir ráð fyrir því að vindátt haldist að mestu óbreytt í dag og fram eftir degi á morgun. Gosmökkurinn sem blæs nú yfir Skandinavíu og Norður Evrópu virðist því ekki á förum enn um sinn.
Afmælisveisla Danadrottningar gæti verið í töluverðu uppnámi sökum öngþveitis sem skapast hefur á flugvöllum Evrópu vegna ösku úr Eyjafjallajökli.
„Það er öskusnjór sem liggur yfir öllu og grátt lag á rúðunum," segir Fanney Jóhannsdóttir, sem er bóndi á Efri Ey II við Kirkjubæjarklaustur. Hún segir að á jörðinni við bæinn líti askan út fyrir að vera mjög dökk. Um sé að ræða síðbúinn og dökkan jólasnjór.
Öskufall á ekki að ógna öryggi og heilsu búfjár, ef bændur bregðast rétt við. Það kann þó að verða þröngt á þingi í mörgum fjárhúsum yfir sauðburðinn, sem er að hefjast.
Til stendur að loka allri lofthelginni yfir Bretlandi klukkan ellefu. Eftir því sem Vísir kemst næst hefur þetta valdið töluverðri skelfingu hjá flugmálayfirvöldum þar í landi vegna þess að ekki hefur fengist á hreint hvert eigi að senda þær vélar sem fyrirhugað var að yrði flogið um lofthelgina.
Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Fréttablaðisins náði að fanga myndir af aðstæðum fyrir austan fjall eftir að þegar að hlaupið gekk yfir. Eins og fram hefur komið þurfti að rjúfa þjóðveginn til þess að taka þungann af nýju brúnni yfir Markarfljót. Það tókst sem betur fer.
Það var árið 1982 sem menn gerðu sér grein fyrir því að eldgos gætu verið hættuleg flugvélum.
Eldingar leiftra í gosmekkinum á Eyjafjallajökli. Fordæmi er fyrir því hér á landi að fólk hefur látist af völdum eldinga í 30 kílómetra fjarlægð frá gosi. Þórður Arason, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir alltaf hættu af eldingum í eldgosum.
Vegagerðarmenn eru þegar farnir að undribúða viðgerð á þjóðvegi eitt, sem rofnaði á fjórum stöðum vegna vatnavaxta frá eldgosinu í gær.
Um 1100 manns bíða eftir flugi á Keflavíkurflugvelli, samkvæmt upplýsingum frá Friðþóri Eydal, upplýsingafulltrúa Keflavíkurflugvallar.
Eldar í jökli, þykkur öskumökkur, þrumur og eldingar - svona eru lýsingarnar á gosinu í Eyjafjallajökli árið 1821. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur skrifar um eldgosið í Eyjafjallajökli á bloggsíðu sinni. Hann lýsir þróun gossins í Eyjafjallajökli árið 1821 - 1823 en finna má lýsingu á því gosi í bók Þorvaldar Thoroddsen náttúrufræðings.
Aska frá gosinu Í Eyjafjallajökli hefur haft mikil áhrif á flugumferð í norðanverðri Evrópu. Flugvöllum í London, Heathrow, Gatwick og Stansted hefur verið lokað. Sama má segja um Belfast og Newcastle. Algert flugbann er nú í gildi í Noregi og hefur Gardemoen vellinum í Osló þar með verið lokað.
Búið er að loka fyrir alla þyrluflugsumferð á olíuvinnslusvæðunum í Norðursjó og meðfram ströndum Noregs vegna öskufallsins frá gosinu í Eyjafjallajökli. Norska olíuöryggisráðið er nú að meta stöðuna en fyrir liggur að ef draga verður úr olíuframleiðslu á svæðinu muni slíkt hækka heimsmarkaðsverð á olíu.
Í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Hvolsvelli kemur fram að verið sé að loka Mýrdalsjökli vegna öskufalls. Þar er nú öskufall austast á sandinum og skyggni lítið sem ekkert.
Gosið í Eyjafjallajökli var ámóta kraftmikið í alla nótt og það var í gær. Þar hefur gengið á með sprengingum og töluverðu öskufalli sem hefur borist með vindi til austurs í Skaftártungurnar, Meðallandið og Landbrotið.
Hlaupið úr Eyjafjallajökli er í rénun þessa stundina, bæði Markarfljótsmegin og Svaðbælisármegin. Lögreglan á Hvolsvelli gerir ráð fyrir því að jarðvísindamenn og fulltrúar frá almannavörnum muni fljúga yfir svæðið innan skamms og meta stöðuna.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra var staddur nærri Markafljótsbrú þegar vatnsflaumurinn kom að brúnni. Hann segir að það hafi verið magnað að upplifa þetta. Sem betur fer hafi brúin bjargast. „Þetta var mikill flaumur á meðan þetta kom og fór nokkuð hátt undir brúna um tíma,“ segir Steingrímur.
Þáttastjórnendur hins geysivinsæla bandaríska morgunþáttar Good Morning America eru væntanlegir hingað til lands en til stendur að senda út hluta þáttarins á mánudaginn kemur frá Eyjafjallajökli. Þættinum er stjórnað af þeim Robin Roberts og George Stephanopoulos og er hann á dagkskrá á hverjum virkum degi á ABC sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum.
Að svo stöddu er ekki gert ráð fyrir teljandi skemmdum á mannvirkjum í og við Landeyjahöfn en til að svo yrði þyrftu að verða náttúrhamfarir á borð við Skeiðarárhlaup. „Hinsvegar er ljóst að lagerinn í Markarfljóti, um 50 þúsund rúmmetrar af efni, muni rýrna.
Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir gosið nú vera mun stærra en gosið á Fimmvörðuhálsi. Fréttamaður slóst í för með vísindamönnum og landhelgisgæslunni í morgun og flaug yfir svæðið.
Vatn rennur nú undir brúna við Markarfljót og framhjá henni en brúin stendur heil, segir Kjartan Þorkelsson sýslumaður á Hvolsvelli. Hann segir að skarð hafi verið rofið í veginn til þess að taka þungann af brúnni. Auðveldara sé að laga vegi en brú. Kjartan segir vatnsrennslið ekki vera enn að aukast heldur sé komið jafnvægi á það.
Vestmannaeyingar hafa verið uggandi um rafmagn og vatn eftir að gos hófst í Eyjafjallajökli og hlaup hófst í Markarfljóti. Drykkjarvatn eyjarskeggja kemur með leiðslu úr Stóru-Mörk og liggur leiðslan undir Markafljót og er grafin á fimm metra dýpi undir árbotninum.
Lítið er vitað um gossögu Eyjafjallajökuls og er einungis vitað um tvö gos á sögulegum tíma í jöklinum. Það fyrra varð árið 1612 og það seinna 1821 til 1823. Gosið sem hófst 20. mars á Fimmvörðuhálsi var austan við jökulinn.
Rögnvaldur Ólafsson, stjórnandi í samhæfingarmiðstöð almannavarna, segir að gosið sé margfalt stærra en gosið á Fimmvörðuhálsi og að vísindamenn telji að gossprungan sé um tveir kílómetrar að lengd. Hún liggur norður-vestur. Það flæðir bæði til norðurs og suðurs ofan af jöklinum en sínu meira til norðurs, að sögn Rögnvalds.
Flóðið úr norðurhlíð Eyjafjallajökuls hefur nú náð að nýju Markarfljótsbrúnni. Sveinn Rúnarsson yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli segir að það hafi verið komið að brúnni rétt eftir klukkan tólf. Brúin heldur enn að sögn Sveins en tvö rof voru gerð í þjóðveginn til þess að létta álagið á brúnni.
Bannað er að fljúga um stóran hluta landsins vegna hættu sem gæti stafað af öskufalli. Svæðið er miðað við ríkjandi vindáttir og allt eins líklegt a það geti breyst. Eins og sést á meðfylgjandi mynd frá Flugstoðum er gula svæðið í flughæð 35 þúsund fet og yfir græna frá 20 þúsund upp í 35 þúsund fetum og rauða er undir 20 fetum.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er stödd í samhæfingarmiðstöðinni í Skógarhlíð að kynna sér stöðu mála þar. Ásamt henni eru þau Ragna Árnadóttir og Steingrímur J. Sigfússon á staðnum.
Ólafur Eggertsson bóndi á Þorvaldseyri óttast um tún sín og ræktarlönd en flóð úr suðurhlíðum Eyjafjallajökuls er komið niður undir þjóðveg. Flóðið kom niður jökulinn og fór aðallega í Svaðbælisá að sögn Þorvalds. Á skammri stundu hljóp vatnið niður fyrir þjóðveginn og varnargarðar umhverfis bæjinn eru við það að bresta.
Unnið er að því að gera skarð í þjóðveginn skammt frá Markarfljótsbrú. Dofri Eysteinsson, framkvæmdastjóri Suðurverks, segir að þetta sé gert til að reyna að verja Markafljótsbrú fyrir hlaupinu sem nú kemur niður vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.
Vatnsrennsli frá Gígjökli er enn vaxandi. Göngubrúin er alveg farin og fylgir flóðinu í átt til sjávar, samkvæmt upplýsingum frá almannavarnadeild lögreglunnar. Flóð er að byrja koma niður suðurhlíðar Eyjafjallajökuls segir bóndinn á Þorvaldseyri í samtali við lögregluna og Jón Ársæll Þórðarsson tekur undir það.
Gosið í Eyjafjallajökli mun hafa áhrif á millilandaflug en flug til og frá Íslandi mun þó ekki liggja niðri. Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Flugstoða, segir að miðað við veðurspár mun öskusvæðið ná alla leið til Noregs. Flugleið Icelandair til Noregs muni breytast en flugið ekki falla niður.
Jarðskjálfti upp á 3,5 á Richter mældist í Vatnajökli laust eftir klukkan 10 í dag samkvæmt sjálfvirkri mælingu Veðurstofunnar. Það á eftir að yfirfara niðurstöðurnar. Upptök skjálftans virðast vera um 2,6 kílómetrum austnorðustur af Grímsfjalli.
Það er búist við stóru flóði úr Gígjökli, segir Kjartan Þorkelsson, sýslumaður á Hvolsvelli, í samtali við Vísi.
Liðsmenn Landhelgisgæslunnar og vísindamenn um borð í vél Gæslunnar sem flugu yfir gosstöðvarnar í morgun hafa staðsett gosopið og að það sé rétt norð-vestan við Goðastein, eða Guðnastein, sem er sami steinninn.
Hér má sjá myndir úr vefmyndavél sem staðsett er á Dufþaksbraut á Hvolsvelli. Nú er talið fullvíst að gos sé hafi í Eyjafjallajökli sem eigi upptök sín í miðbungu jökulsins.
Vatnshæð við Gígjökul fer áfram vaxandi og hefur hún nú hækkað án afláts um 125 sentimetra frá því gosið hófst að því er sérfræðingur Veðurstofunnar segir. Fyrir framan Gígjökul er lón sem hækkar stöðugt í og eru vatnavextir þegar hafnir í Markarfljóti.
„Ég er að fylgjast með gosinu í beinni," segir Jón Ársæll Þórðarson fjölmiðlamaður sem staddur er á Stóru Borg undir Eyjafjöllum.
Blaðamönnum var snúið við um kílómeter frá Moshvoli vegna umbrotanna í Eyjafjallajökli. Blaðamenn hafa fylgst grannt með umbrotunum en hætta fylgir gosi af þessu tagi. Fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis var á leiðinni inn í Þórsmörk í fylgd með lögreglunni. Lögreglumennirnir tóku hins vegar enga áhættu og sneru þeim við.
Gríðarleg aukning á vatnsmagni hefur mælst við Gígjökul og má segja að þar sé komið flóð. Vatnsmagn hefur aukist um 20-30 sentimetra síðarn rétt fyrir sjö.
Tvær tilkynningar hafa borist um gufubólstra fyrir ofan Eyjafjallajökul frá flugvélum. Önnur vélin var 40 mílur í suðri og sá bólstra í hánorðri. Hin var 60 mílur fyrir norðaustan jökul og sá bólstra í suðvestur átt.
Að óbreyttu munu flugsamgöngur haldast samkvæmt áætlun þrátt fyrir að merki hafi sést um að gos sé hafið í Eyjafjallajökli. Þrátt fyrir að merkin hafi sést á mælum Veðurstofunnar hafa menn ekki séð gosið. Þá bendir heldur ekkert til að hlaup sé hafið í ám.
Since it now considered to be highly likely that there is a volcanic eruption under the south western side of the summit of Eyjafjallajökull glacier, the Department of Civil Protection and Emergency Management, has decided to evacuate all areas in the immediate vicinity of the glacier.
Enn sést ekkert til gossins í Eyjafjallajökli. Skjálftahrina hófst í jöklinum um ellefuleytið í gærkvöld og um fjögurleytið í nótt bárust þær upplýsingar frá Veðurstofunni að mælar bentu til þess að gos væri hafið.
Zarejestrowano aktywnosc wulkanu pod powierzchnia lodowca Eyjafjallajökull w poludniowej czesci Islandi. Instytucja odpowiedzialna za bezpieczenstwo ludnosci w konsultacji z geologami Glownej Stacji Meteorologicznej podjela decyzja o ewakuoawaniu ludnosci zamieszkalej na poludnie od lodowca.
Um 100 manns eru komnir í fjöldahjálparstöðina í Hvolsskóla, að því er Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins telur.
Um fimmtíu manns eru nú staddir í fjöldahjálparmiðstöðinni að Heimalandi, miðja vegu á milli Hvolsvallar og Skóga. Fólkið er rólegt en þreytt að sögn en nokkur börn eru í hópnum, þar á meðal þriggja mánaða barn. Fjórtán útlendir ferðamenn eru einnig í hópnum.
Verið er að bera teppi og annan nauðsynjabúnað inn í Hvolsskóla á Hvolsvelli. Þar hefur verið opnuð fjöldahjálparstöð sem tekur á móti fólki úr Fljótshlíðinni. Fólk sem býr í Heimalandi er beðið um að vera kyrrt heimafyrir.
Um 45 manns eru staddir í Langadal og eru þeir allir sofandi, segir Broddi Hilmarsson hjá Ferðafélagi Íslands. Af þeim eru 30 manns frá Ferðafélaginu.
Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis hvetur fólk sem tekur ljósmyndir eða myndskeið af eldgosinu í Eyjafjallajökli sem hófst í nótt eða af hlaupi af þess völdum til þess að senda þær til Fréttastofunnar.
Tekin hefur verið ákvörðun um rýmingu í Fljótshlíð og í Landeyjum þar sem eldgos virðist hafið í Eyjafjallajökli. Víðir Sigurðsson hjá Almannavörnum segir að verið sé að koma skilaboðum til fólks á svæðinu. Um 700 manns eru búsettir á svæðinu sem rýma skal en um sömu áætlun er að ræða og virkjuð var þegar gaus á Fimmvörðuhálsi.
Mælingar benda til þess að eldgos sé hafið undir suðvesturhluta Eyjafjallajökuls. Að sögn Veðurstofunnar benda mælingar til þess að órói fari vaxandi og allar líkur á því að gos sé hafið.
Lögregla hefur lokað veginum frá Hvolsvelli að Skógum vegna jarðskjálftahrinunnar í Eyjafjallajökli. Ef gos hefst undir jökli má búast við hlaupi í Markarfljóti.
Íbúar á Þorvaldseyri eru að yfirgefa húsnæðið sitt og ætla að fara í Varmahlíð, ásamt fleirum sem búa undir Eyjafjöllum.
Jarðskjálftahrina hófst undir Eyjafjallajökli um ellefuleytið í kvöld. Lögreglan á Hvolsvelli hefur hafið rýmingu á svæðinu og eru hús rýmd alveg að Skógum.
Skjálftarnir sem mælst hafa eru grunnir að sögn Kjartans Þorkelssonar sýslumanns á Hvolsvelli og því var ákveðið að rýma byggð austan Markarfljóts og að Skógum.
Magnús Tumi Guðmundsson, hjá Veðurstofu Íslands, segir að upptök skjálftanna sem hófust í nótt mælist undir toppi Eyjafjallajökuls. Það kunni að vera að um gosóróa sé að ræða þannig að skjálftarnir marki upphaf að nýju eldgosi.
Rýmingu er að ljúka milli Hvolsvallar og Skóga. Svæðinu þar á milli er algerlega lokað.
Hraunið frá eldstöðinni á Fimmvörðuhálsi hefur ekkert nálgast sléttlendið í Þórsmörk undanfarnar tvær vikur. Þess í stað hleðst það upp innst í Hvannárgili. Hraunrennslið úr gígunum er að meðaltali fimmtán rúmmetrar á hverri sekúndu, að mati jarðvísindamanna Háskóla Íslands, eða sem samsvarar þrjátíu til fjörutíu tonnum á sekúndu.
Ásókn almennings í skoðunarferðir á slóðir eldgoss hefur aldrei verið meiri en að gosinu sem hófst á Fimmvörðuhálsi 20. mars síðastliðinn. Þetta skýrist einna helst af eðli gossins og betra aðgengi en áður hefur þekkst, að mati Ármanns Höskuldssonar eldfjallafræðings.