Lífið

Secret Solstice: St. Germain mætti ekki, GusGus spilar í staðinn

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Enginn veit hvað varð um St. Germain en Gusgus hlaupa í skarðið í kvöld.
Enginn veit hvað varð um St. Germain en Gusgus hlaupa í skarðið í kvöld. Vísir
Breyting verður á dagskrá Secret Solstice hátíðarinnar í kvöld en hinn franski St. Germain mætti ekki í flugið sem átti að flytja hann til landsins. St. Germain átti að mæta í hljóðprufu í Laugardalnum í morgun með öll sín tæki og tól en lét hvergi sjá sig.

Brugðið var á það ráð að fá íslensku rafsveitina GusGus til að hlaupa í skarðið. Þau munu því spila á stóra sviðinu, eða Valhalla eins og það er kallað á hátíðarsvæðinu, klukkan 22:30 í kvöld.

Gusgus spilar því beint á eftir diskósveitinni Sister Sledge sem var tilkynnt í vikunni sem leynigestir hátíðarinnar. Systurnar eru mættar til landsins og ómaði tónlist þeirra um Laugardalinn í morgun þegar þær stigu á svið ásamt hljómsveit sinni og tóku stutta hljóðprufu.

Helstu dagskráliðir í kvöld

Miðað við þessar breytingar ætti því helstu atriði á dagskrá kvöldsins að vera sem hér segir;

Dj Henrik – Askur kl. 17



Gervisykur – Valhalla kl. 17

Ylja – Gimli kl. 17

Snorri Helgason – Gilmi kl. 17:50

Dj Kári B2b sonur sæll – ASKUR kl. 18

Shades of Reykajvík – Valhalla kl. 18

Flatbush Zombies – Valhalla kl. 19

Yamaho – Askur kl. 19

Dikta – Gimli kl. 19:30

Bensol – Askur kl. 20

Gísli Pálmi – Valhalla kl. 20:10

Hjaltalín – Gimli kl. 20:30

Sisters Sledge – Valhalla kl. 21:10

Bang Gang – Gimli kl. 21:30

Serge Devant – Askur kl. 21:30

GusGus – Valhalla kl. 22:30

Art Department – Hel kl. 02:15


Tengdar fréttir

Stærsta Solstice hátíðin til þessa

Nú þegar sólin snertir vart sjóndeildarhringinn og sumarsólstöður í nánd, verður Secret Solstice tónlistarhátíðin haldin í þriðja sinn og er þetta stærsta hatíðin til þessa en skipuleggjendur hafa leyfi fyrir 15 þúsund manns í Laugardalnum og fljótlega stefnir í að miðar verði uppseldir.

Secret Solstice hefst í dag

Mælt er með því að gestir sæki passa sína snemma til þess að koma í veg fyrir stórar raðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×