Lífið

Secret Solstice: Mugison býður Radiohead á tónleika sína í gegnum Facebook

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Mugison treystir á krafta Facebook til þess að beina meðlimum Radiohead á tónleika sína í Kassanum.
Mugison treystir á krafta Facebook til þess að beina meðlimum Radiohead á tónleika sína í Kassanum. Vísir/Getty
Tónlistarmaðurinn Mugison keypti auglýsingu á Facebook í dag þar sem skrifar opið bréf til liðsmanna Radiohead og býður þeim á tónleika í kvöld eða á morgun.

Mugison hefur í sumar haldið út tónleikaröð í Kassanum í Þjóðleikhúsinu þar sem hann kemur fram á hverju fimmtudags-, föstudag-, laugardags- og sunnudagskvöldi. Þar kynnir hann á ensku á milli laga í von um að ná til ferðamanna.

„Mér líður eins og þið hafið verið draugavinir mínir síðastliðin 24 ár,“ segir hann í færslunni. „Þið hafið verið það fastur hluti af stórri tónlistarfjölskyldu. Ég verð ykkur ævinlega þakklátur fyrir að skapa þessi lög, og ýta þeim áfram til útgáfu."

Í lok færslunnar segist Mugison hafa bætt þeim Thom, Jonny, Colin, Ed, Philip og Nigel á gestalistann fyrir báða tónleika og segir að ef þeir komi á föstudaginn geti þeir allir deilt fari á Secret Solstice hátíðina þar sem Radiohead spilar annað kvöld.

Lesa má færslu Mugison í heild sinni hér fyrir neðan;


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×