Lífið

Secret-Solstice: Die Antwoord þurfti að endurskipuleggja tónleika kvöldsins vegna seinkunarinnar

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Yolandi Visser alveg ótrúlega töff á tónleikum síðasta sumar.
Yolandi Visser alveg ótrúlega töff á tónleikum síðasta sumar. Vísir/EPA
Tónleikum suður-afrísku hljómsveitarinnar Die Antwoord á Secret Solstice tónleikahátíðinni í kvöld var seinkað vegna tafa í flugsamgöngum til og frá landinu líkt og fram hefur komið á Vísi. Tónleikarnir munu hefjast klukkan 11 og fara fram innanhús í tónleikasalnum Hel.

Hel tekur um fimm þúsund standandi gesti en um sjö þúsund höfðu sett tónleikana í sína eigin persónulegu dagskrá áður en þeir voru færðir frá aðalsviðinu sem kallast Valhalla. Því er ljóst að færri komast að en vilja.

Ósk Gunnarsdóttir, einn skipuleggjenda hátíðarinnar, segir að verið sé að reyna gera það besta úr óviðráðanlegum aðstæðum. Ekki hefði verið um annan tónleikastað en Hel að ræða, ella hefði þurft að sleppa tónleikunum alveg sökum þess að leyfi til þess að hafa útitónleika gildir einungis til miðnættis.

Yolandi Visser og félagar í Die Antwoord stíga á svið seinna en auglýst var.Vísir
Málið veldur nokkrum vandræðum fyrir hljómsveitina en hún þarf nú að endurskipuleggja fyrirhugaða tónleika sína hvað varðar ljós og annað. Þegar Vísir náði tali af Ósk voru hljómsveitarmeðlimir í svokölluðu sound-checki. Hljómsveitin hefur verið starfrækt frá árinu 2008 og því má fastlega gera ráð fyrir því að meðlimir láti málið ekki slá sig út af laginu. 

Nokkrar breytingar á dagskrá

Ósk hvetur aðdáendur til þess að koma sér snemma fyrir í röð vilji þeir tryggja sér pláss á Die Antwoord. Hún bendir þó á að Of Monsters and Men verði á stóra sviðinu, Valhalla, á sama tíma og því ætti fólksfjöldinn að dreifast á þessi tvö stóru nöfn. 

„Þetta er bara eins og á Airwaves, tónleikagestir þurfa að velja hvað þeir vilja sjá. Stundum er ekki hægt að sjá allt,“ útskýrir hún. 

Hel verður opið í nótt eftir tónleika Die Antwoord en þá stígur á svið listamaðurinn Kerri Chandler. „Nokkrar breytingar á dagskránni voru nauðsynlegar til þess að láta nýjan tíma rappsveitarinnar ganga upp,“ segir í tilkynningu. 

„Plötusnúðurinn Apollonia hefur verið færður í danstjaldið Ask klukkan 23:00 og plötusnúðarnir Stephane Ghenacia og Voyeur hafa verið færðir síðar um nóttina í Hel. Kerri Chandler kemur fram klukkan 00:30 eftir að Die Antwoord hafa klárað. Breski plötusnúðurinn Artwork kemur fram klukkan 18:50 á stærsta sviði hátíðarinnar Valhalla á sama tíma og Die Antwoord áttu að koma fram.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×