Formúla 1

Sebastien Buemi vann Formúlu E í Hong Kong

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Sebastien Buemi hóf titilvörnina af krafti.
Sebastien Buemi hóf titilvörnina af krafti. Vísir/Getty
Sebastian Buemi, ríkjandi heimsmeistari og ökumaður Renault e.dams vann fyrstu keppni þriðja tímabilsins í Formúlu E.

Lucas di Grassi á ABT Audi varð annar eftir að hafa ræst næst aftastur í 19. sæti og Nick Heidfeld á Mahindra varð þriðji.

Nelson Piquet á NextEv bílnum var á ráspól fyrir fyrstu keppni þriðja tímabilsins í Formúlu E. Oliver Turvey einnig hjá NextEv liðinu, varð annar í tímatökunni.

Piquet var fljótur að byggja upp forskot sitt. Hann hélt góðri stöðu á brautinni. Sam Bird á DS Virgin náði hins vegar öðru sætinu af Turvey á sjöunda hring. Bird var fjórum sekúndum á eftir Piquet og hóf að sækja á Piquet.

Piquet kom inn á þjónustusvæðið rétt fyrir miðja keppni eftir að José Maria Lopez klessti DS Virgin bíl sinn fyrir framan Piquet. Bird lenti svo í smá bilun þegar hann skipti um bíl á 26. hring og tapaði heilum hring á keppinautana sína. Bird var þó sjóðheitur og tókst að afhringa sig á 35. hring.

Eftir að ökumenn höfðu skipt um bíla var ríkjandi heimsmeistari, Buemi fremstur eftir að hafa komist fram úr Lucas di Grassi. Buemi vann sér inn forskot á di Grassi og þegar 31 hringur var búin var bilið á milli þeirra þrjár sekúndur. Di Grassi var hástökkvari dagsins enda ræsti di Grassi af stað í 19. sæti.

Á meðan var Piquet orðinn áttundi á NextEv bílnum og Turvey orðinn fimmti. Robin Frijns á Andretti tók fram úr Piquet á 38. hring. Frijns var grimmur undir lokin og endaði á að taka sjötta sætið.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×