Enski boltinn

Scott Sinclair lánaður til Villa - Spilað þrjár mínútur á tímabilinu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Scott Sinclair með treyju Aston Villa í dag.
Scott Sinclair með treyju Aston Villa í dag. vísir/getty
Scott Sinclair, vængmaður Englandsmeistara Manchester City, hefur verið lánaður til Aston Villa sem er í 15. sæti deildarinnar.

Sinclair hefur lítið sem ekkert komið við sögu hjá City síðan hann var keyptur til félagsins fyrir tveimur árum síðan frá Swansea.

Hann var lánaður til West Bromwich Albion á síðustu leiktíð og kom við sögu í fyrstu fjórunum leikunum eftir það. Þá meiddist hann og kom lítið við sögu hjá liðinu á seinni hluta tímabilsins.

Hann hefur í heildina spilað þrjár mínútur fyrir Manchester City á yfirstandandi leiktíð, en vistaskipti hans til City voru mistök og rúmlega það þegar litið er til spiltíma leikmannsins undanfarin ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×