Bílar

Scion merki Toyota endanlega aflagt

Finnur Thorlacius skrifar
Nú hefur þessu merki verið lagt af hendi Toyota.
Nú hefur þessu merki verið lagt af hendi Toyota.
Dagurinn í dag markar þau tímamót hjá Toyota að vera síðasti dagur Scion merkisins sem Toyota stofnaði árið 2003. Merki Scion var stofnað til að höfða til yngri kynslóðarinnar í Bandaríkjunum en líklega er hægt að segja að það hafi aldrei tekist.

Alls seldust bílar Scion í 1,2 milljónum eintaka í Bandaríkjunum, en Scion bílar voru einungis markaðssettir þarlendis. Mest seldist af Scion bílum árið 2006, eða 173.000 bílar. Salan var komin niður í ríflega 45.000 bíla árið 2010, en var 56.000 bílar í fyrra. Toyota reyndi að blása í glæðurnar með nýjum Scion tC bíl árið 2011, en salan tók engan veginn við sér og því var ákvörðun Toyota auðveld.

Alls hafa 5 bílgerðir Scion bíla verið framleiddir en þeir sem enn eru í framleiðslu munu nú fá Toyota merkið. Það eru bílarnir FR-S, iA og iM og munu þeir héðan á frá bera nöfnin Toyota 86, Yaris iA og Corolla iM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×