Enski boltinn

Schweinsteiger heldur vestur um haf

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Schweinsteiger hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Manchester United.
Schweinsteiger hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Manchester United. vísir/getty
Bastian Schweinsteiger er á förum til bandaríska MLS-liðsins Chicago Fire frá Manchester United.

Schweinsteiger, sem er 32 ára, hefur gert eins árs samning við Chicago Fire sem færir honum 3,6 milljónir punda í árslaun.

Schweinsteiger kom til United frá Bayern München sumarið 2015. Hann spilaði 31 leik fyrir United á síðasta tímabili þegar Louis van Gaal var við stjórnvölinn.

Á þessu tímabili hefur Schweinsteiger fengið afar fá tækifæri en José Mourinho, knattspyrnustjóri United, hélt honum lengi fyrir utan aðalliðið.

Þjóðverjinn hefur komið við sögu í fjórum leikjum í vetur og skorað eitt mark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×