Enski boltinn

Schweinsteiger gæti spilað í kvöld

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Schweini í rauða búningnum.
Schweini í rauða búningnum. vísir/getty
Sky Sports greinir frá því í dag að Bastian Schweinsteiger gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Jose Mourinho, stjóra Man. Utd, í dag.

Man. Utd er að spila gegn West Ham í deildabikarnum og Mourinho er sagður vera að íhuga að gefa Þjóðverjanum sitt fyrsta tækifæri undir hans stjórn.

Er Mourinho tók við liðinu var Schweinsteiger tjáð að hann ætti enga framtíð hjá félaginu. Honum var svo skipað að æfa með unglinga- og varaliði félagsins.

Þessi reyndi þýski landsliðskappi hefur æft með aðalliðinu upp á síðkastið og komst á bekkinn í síðasta leik. Nú gæti hann fengið að spreyta sig í alvöru leik í kvöld.

Bæði Paul Pogba og Marouane Fellaini eru meiddir og því er hugsanlega komið að Þjóðverjanum að láta ljós sitt skína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×