Enski boltinn

Schweinsteiger færist nær United

Anton Ingi Leifsson skrifar
Schweinsteiger í leik með þýska landsliðinu.
Schweinsteiger í leik með þýska landsliðinu. vísir/getty
Bastian Schweinsteiger, miðjumaður Bayern München, færist nær og nær Manchester United, en þetta fullyrðir Steve Bates, blaðamaður á Sunday People.

Louis van Gaal, stjóri Manchester United, hefur látið Ed Woodward, innkaupastjóra á Old Trafford, vita að hann eigi að gera allt sem í hans valdi stendur til þess að koma Schweinsteiger til rauðu djöflanna.

Van Gaal stýrði Schweinsteiger hjá þýsku meisturunum árin 2009-2011 og vill Hollendingurinn fá þann þýska til liðs við sig fyrir næstu leiktíð. Verðmiðinn á miðjumanninum er talinn í kringum sjö milljónir punda.

„Scweinsteiger þarf þjálfara sem mun spila honum þar sem hann er hvað sterkastur og Van Gaal mun gera það,” sagði þýska goðsögnin, Lothar Matthaus.

Schweinsteiger, sem verður 31 árs í ágúst, á einungis eitt ár eftir af samningi sínum við Bæjara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×