Formúla 1

Schumacher getur ekki gengið

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Michael Schumacher eftir að hann lauk síðustu Formúlu 1 keppni ferilsins.
Michael Schumacher eftir að hann lauk síðustu Formúlu 1 keppni ferilsins. Vísir/Getty
Umboðsmaður Michael Schumacher hefurblásið á sögusagnir þess efnis að ökumaðurinn sé farinn að ganga.

Þýska blaðið Bunte hélt því fram að það hefði heimildir frá einhverjum sem væri náin Schumacher. Heimildirnar áttu að vera þess efnis að Schumacher væri farinn að ganga með aðstoð og gæti lyft annari hendi.

Umboðsmaður Schumacher, Sabine Kehm hafnar þessari sögu og segir hana ósanna og að hún sé líkleg til að vekja falskar vonir hjá aðdáendum ökumannsins.

„Því miður neyðumst við til að bregðast við frétt til að undirstrika að Michael er ekki farinn að hreyfa sig aftur,“ segir í yfirlýsingu Kehm.

„Slíkar sögusagnir eru óábyrgar með tilliti til alvarleika meiðslanna sem hann hlaut, friðhelgi einkalífs Michael se honum mjög mikilvægt. Því miður vekja sögusagnir á borð við þessar falskar vonir hjá mikið af fólki sem þekkir hann,“ bætti Kehm við.

Bunte stendur fast við fréttina um að Schumacher sé farinn að ganga studdur.


Tengdar fréttir

Ferrari hótar að hætta í Formúlu 1

Forseti Ferrari, Sergio Marchionne hefur sagt að hann íhugi að draga Ferrari úr keppni í Formúlu 1, verði að hugmyndum um einfaldari vél frá óháðum framleiðanda.

Red Bull og Ferrari með auga á McLaren

McLaren gæti ógnað Red Bull á næsta tímabili ef marka má helsta hönnunargúrúið í Formúlu 1, Adrian Newey. Ferrari gæti líka fundið fyrir McLaren samkvæmt liðsstjóra Ferrari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×