Formúla 1

Schumacher fjölskyldan stofnar góðgerðarsamtök

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Michael Schumacher.
Michael Schumacher. vísir/getty
Fjölskylda Michael Schumacher, sjöfalda heimsmeistarans í Formúlu 1, hefur sett á laggirnar góðgerðarsamtök í hans nafni. Samtökin bera heitið Keep Fighting á ensku eða Berjumst áfram á íslensku.

Nú eru liðin næstum tvö ár síðan Schumacher slasaðist illa í skiðaslysi. Hann var marga mánuði á spítala eftir slysið en dvelur nú á heimili sínu. Upplýsingar um ástand hans eru afar litlar og einungis veittar fólki í innsta hring.

Eiginkona Schumacher, Corrina segist vona að samtökin verði „hvetjandi fyrir aðra til að gefast aldrei upp.“

Umboðsmaður heimsmeistarans fyrrverandi, Sabina Kehm sagði: „Þetta er fyrsta skrefið í átt að samtökum sem geta gert góðverk í framtíðinni.“

„Markmið samtakanna er að dreifa þeim boðskap og þeirri trú að uppgjöf sé ekki möguleiki, skilaboðin tengjast ekki aðeins akstursíþróttum. Með stofnun samtakanna viljum við snúa skelfilegum atburði sem hefur áhrif á alla Schumacher fjölskylduna í eitthvað jákvætt,“ bætti Kehm við.

Kehm ítrekaði að engar upplýsingar yrðu veittar um ástand Schumacher.

„Heilsa Michael varðar ekki almenning og við munum því halda ástandi hans leyndu áfram. Það er að sumu leyti vegna þess að við viljum vernda nærumhverfi hans,“ hélt Kehm áfram.

Heimasíða samtakanna er: www.keepfighting.ms


Tengdar fréttir

Symonds: Brotthvarf Bottas hefði mikil áhrif á Williams

Tæknistjóri Williams, Pat Symonds telur að það myndi hafa mikil áhrif á liðið að missa ökumanninn Valtteri Bottas til Mercedes. Bottas þykir líklegastur til að taka laust sæti hjá heimsmeisturunum.

Segir Schumacher bregðast við meðferð

Fyrrum stjórnarformaður Ferrari, Luca Cordero de Montezemolo, segir að ökuþórinn fyrrverandi, Michael Schumacher, sé loksins farinn að bregðast við meðferð.

Schumacher getur ekki gengið

Litlar upplýsingar hafa fengist um ástand Michael Schumacher síðan hann meiddist alvarlega í skíðaslysi fyrir tæpum þrem árum síðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×