Enski boltinn

Schmeichel: Markverðirnir sem komu til United á eftir mér voru ekki nógu góðir

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Peter Schmeichel vann ótal titla með Manchester United.
Peter Schmeichel vann ótal titla með Manchester United. vísir/getty
Peter Schmeichel, fyrrerandi markvörður Manchester United og danska landsliðsins segir að Sergio Romero, argentínski markvörðurinn sem nýverið gekk í raðir United, þurfi að aðlagast úrvalsdeildinni fljótt verði hann markvörður númer eitt hjá liðinu.

Peter Schmeichel er einn af bestu markvörðum sögunnar, en hann vann ensku úrvalsdeildina fimm sinnum með Manchester United, bikarinn þrívegis, Meistaradeildina einu sinni auk þess sem hann varð Evrópumeistari með Danmörku árið 1992.

De Gea gæti verið á förum.vísir/getty
Enn er óvíst hvort Spánverjinn David De Gea verji mark United á næstu leiktíð, en hann þráir að komast til Real Madrid sem vill þó ekki borga uppsett verð fyrir hann.

Það yrði vont fyrir United að missa De Gea loksins þegar hann er talinn einn af bestu markvörðum heims, en það tók félagið sex ár að finna arftaka Peter Schmeichel þegar hann yfirgaf United eftir þrennutímabilið 1999.

„Markvarðastaðan hjá Manchester United hefur alltaf verið mikilvæg. Hún er það vegna leikstíls liðsins. Manchester United er mjög sókndjarft lið sem er alltaf að reyna að vinna leiki og skora mörk,“ segir Schmeichel í viðtali við Goal.com.

Van der Sar kom hlutunum í lag á Old Trafford.vísir/getty
„Þegar lið sækja á jafnmörgum mönnum og raun ber vitni þarf það að vera með sterka varnarmenn og góðan markvörð sem skilja hvað liðið er að gera og geta lesið það sem gerist næst. Ákveðnir markverðir sem voru fengnir til United á eftir mér höfðu það ekki.“

Það var ekki fyrr en Sir Alex Ferguson keypti Hollendinginn Edwin Van der Sar að markvarðastaðan komst almennilega í lag aftur. Hann vann fjóra Englandsmeistaratitla og Meistaradeildina einu sinni á sex árum með Manchester United.

„Markverðirnir á undan honum höfðu ekki sjálfstraustið sem til þarf og þeir gerðu liðsfélaga sína ekki betri. Sem betur fer komst þetta í lag þegar Edwin kom. Þá voru gæðin í markvarðastöðunni hjá United eins og þau eiga að vera,“ segir Peter Schmeichel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×