Bíó og sjónvarp

Scarlett Johansson er ómannleg

Lucy
Lucy
Kvikmyndaverið Universal gaf út fyrstu stikluna fyrir kvikmynd Lucs Besson, Lucy, með Scarlett Johansson í aðalhlutverki, sem burðardýr með ofurkrafta.

Kvikmyndin gerist í höfuðborg Taívan, Taipei, og fjallar um karakter Johansson sem óvart innbyrðir eiturlyf sem hún er að smygla. Áhrif lyfsins eru þau að hún öðlast ofurgreind og -krafta.

Myndin er væntanleg í kvikmyndahús vestanhafs í ágúst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×