SBV mátti auglýsa könnun á þjónustugjöldum 31. október 2007 15:20 Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri SFF, sem áður var SBV. MYND/Hari
Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur fellt úr gildi úrskurð Neytendastofu frá í sumar þess efnis að Samtök banka og verðbréfafyrirtækja hefðu brotið lög með því að auglýsa í sjónvarpi niðurstöður könnunar á þjónustugjöldum norrænna banka.Málið má rekja aftur til ársins 2004 en þá kvörtuðu Neytendasamtökin til Samkeppnisstofnunar undan sjónvarpsauglýsingu Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja þar sem fullyrt var að þjónustugjöld banka væru lægst á Íslandi af öllum norrænu ríkjunum. Auglýsingin byggðist á könnun sem SBV, sem nú heitir Samtök fjármálafyrirtækja, lét gera. Neytendasamtökin töldu auglýsingarnar villandi og ósanngjarnar gagnvart neytendum og könnunin sem vísað var í hefði verið gölluð.Samkeppnisstofnun var hins vegar lögð niður og verkefni hennar færð til Samkeppniseftirlitsins og Neytendastofu. Þremur árum eftir kæruna, eða í sumar, komst Neytendastofa svo að því að auglýsingin bryti í bága við lög um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins.Samtök fjármálafyrirtækja leituðu með málið til áfrýjunarnefndar neytendamála sem sneri úrskurði Neytendastofu. Fram kemur í úrskurði áfrýjunarnefndar að í auglýsingunum hafi neytendur verið hvattir til að kynna sér könnun SBV.Fyrir hafi legið að Neytendasamtökin hefðu ítrekað á árunum 2002 og 2003 fullyrt að þjónustugjöld banka á Íslandi væru hærri en þjónustugjöld erlendra fjármálafyrirtækja. SBV hefði því látið vinna fyrir sig umrædda könnun og auglýsingarnar byggðust á þeim upplýsingum sem þar var að finna. Þá hafi efni skýrslunnar og forsendur verið birtar með aðgengilegum hætti. Ekki yrði því talið að auglýsingarnar hafi verið ósanngjarnar gagnvart neytendum.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira