Fótbolti

Saviola orðinn samherji Emils

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Javier Saviola.
Javier Saviola. vísir/getty
Argentínski framherjinn Javier Saviola er genginn í raðir ítalska A-deildarliðsins Hellas Verona, en með því spilar íslenski landsliðsmaðurinn EmilHallfreðsson.

Saviola, sem er 32 ára gamall, skrifaði undir eins árs samning við félagið sem einnig fékk til sín Rafael Marquez fyrr í sumar.

Argentínumaðurinn var síðast á mála hjá Olympiacos í Grikklandi þar sem hann skoraði tólf mörk í 25 leikjum, en hann hefur einnig spilað með liðum á borð við Barcelona, Real Madrid, Benfica og Málaga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×