Erlent

Sautján þúsund flýja heimili sín

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Vísir/AFP
Átökin á milli Ísraela og Palestínumanna harðna enn og virðast stigmagnast frá degi til dags. Hundrað sjötíu og tveir liggja nú í valnum og yfir þúsund eru særðir. Þá hafa um sautján þúsund Palestínumenn flúið frá norðurhluta Gaza, sem er vígvöllur mestu blóðsúthellinga sem átt hafa sér stað á milli Palestínu og Ísraels í tvö ár.

Ísraelsher varaði í íbúa í gær við yfirvofandi árásum og eru þúsundir ísraelska hermanna komnir að landamærum Gaza. Gerðar voru árásir á yfir fjörutíu staði á Gazaströndinni í gær og sprengdar voru þrjár bækistöðvar Hamas, sem notaðar voru til að þjálfa liðsmenn samtakanna. Yfirvöld í Ísrael segja markmið árásanna vera að hæfa vígamenn og stjórnendur Hamas samtakanna, en talið er að um 77 þeirra föllnu séu almennir borgarar.  Talið er að Palestínumenn hafi skotið um þúsund flugskeytum á Ísrael síðustu daga, enn hefur ekkert manntjón hlotist af því. Nokkrir hafa þó særst.


Tengdar fréttir

Íslendingar fari ekki til Gaza

Utanríkisráðuneytið ræður Íslendingum frá ferðalögum til Gaza vegna ótryggs ástands þar.

Minnst 156 fallnir í átökunum

Ísraelsher sendi hermenn á Gaza svæðið í nótt í fyrsta sinn síðan átökin byrjuðu fyrir viku.

Sá hættir lífi sínu sem ekki flýr í burt

Ísraelsher hefur dreift tilkynningu um að hver sá sem ekki flýr svæðin í norðurhluta Gasa sé að hætta lífi sínu. Um 160 Palestínumenn hafa látist.

Öryggisráð SÞ kallað saman vegna átaka á Gaza

Ban Ki-Moon, aðalframkvæmdastjóri SÞ, fordæmir árásirnar og biður Ísraelsforseta að virða alþjóðlegar skuldbindingar um vernd óbreyttra borgara en þau linnulausu átök sem geisa nú á Gazasvæðinu virðast ætla að stigmagnast frá degi til dags.

Ísraelsher sprengir upp endurhæfingardeild

Meirihluti þeirra rúmlega hundrað manns sem fallið hafa á Gaza frá því á þriðjudag eru óbreyttir borgarar. Skriðdreki skaut á endurhæfingardeild þar sem tvær fatlaðar konur féllu.

Tugir liggja í valnum eftir loftárásir

Spennan heldur áfram að magnast á milli Ísraelsmanna og Palestínumanna á Gazasvæðinu, en tuttugu og sjö liggja nú í valnum og yfir hundrað eru særðir eftir hernaðaraðgerðir Ísraelsmanna í dag.

Fordæmir allt ofbeldi og beitingu vopnavalds á svæðinu

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur lýst yfir þungum áhyggjum af átökum fyrir botni Miðjarðarhafs og harmar að almennir borgarar, þar á meðal fjöldi barna, hafi látið lífið í árásum Ísraela á Gaza.

Dráp fyrir auga, morð fyrir tönn

Fólk er yfirleitt heldur gott – svona þegar því er sjálfrátt og það er óbrjálað af lygum og hóprógi. Manneskjur eru upp til hópa forvitnar, óáreitnar og greiðviknar, hafi þær á annað borð óskerta hæfileika til samlíðunar;

Öryggisráðið kallar eftir vopnahléi

Þetta er í fyrsta sinn sem ráðið sendir frá sér yfirlýsingu vegna átakana, en Palestínumenn segja 133 hafa fallið á fimm dögum.

Obama vill stilla til friðar

Rúmlega níutíu hafa fallið í aðgerðum Ísraelshers á Gaza síðustu daga. Ekki hafa borist neinar fregnir af mannfalli í Ísrael.

Landhernaður Ísraela hafinn

Þúsundir Palestínumanna flýja nú norðurhluta Gaza-strandarinnar eftir að Ísraelsstjórn varaði við að herinn myndi ráðast gegn stöðum á svæðinu í tilraun til að stöðva eldflaugaárásir á landið.

Hrikalegt ástand á Gazaströndinni

Sextán Palestínumenn hið minnsta féllu í loftárásum Ísraelshers í nótt og hafa nú utanríkisráðherrar arabaríkja ákveðið að boða til fundar vegna deilunnar milli Ísraelsstjórnar og Hamas á Gazaströndinni.

Ísraelar boða hertar árásir á Gaza

Að minnsta kosti 35 hafa fallið í árásum ísraelshers á Gaza undanfarna daga, þeirra á meðal konur og börn. Enginn hefur fallið í árásum Hamas á Ísrael.

Flytja hermenn að Gaza

Spenna hefur verið mikil í Ísrael og Palestínu eftir morð þriggja ísraelskra pilta og 17 ára drengs frá Palestínu.

Átján bornir til grafar á Gaza í dag

Yfir 160 hafa fallið í loftárásum Ísraelsmanna á Gaza síðast liðna fimm daga. Sautján manns úr einni og sömu fjölskyldunni féllu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×