Sautján settir í nálgunarbann 8. febrúar 2012 09:00 Lögreglustöð Lögreglan getur tekið ákvörðun um nálgunarbann og ber það síðan undir dómara. fréttablaðið/anton
Tíu voru úrskurðaðir í nálgunarbann í fyrra og sjö árið á undan. Árin á undan var úrræðið nánast ekkert notað, en er að sanna gildi sitt að mati aðstoðarlögreglustjóra. Sambúðarslit eru oft bakgrunnur málanna. Sautján nálgunarbönn hafa verið sett á síðastliðin tvö ár. Notkun úrræðisins hefur aukist mikið en tveir höfðu í heildina verið úrskurðaðir í nálgunarbann fjögur ár á undan. Samkvæmt bráðabirgðatölum frá ríkislögreglustjóra voru nálgunarbönn tíu talsins í fyrra. Þau voru sjö árið 2010 og eitt nálgunarbann var í gildi árin 2008 og 2006. Árin 2007 og 2009 voru engin nálgunarbönn úrskurðuð. „Þetta eru í mjög mörgum tilvikum erfið samskipti fólks eftir aðskilnað – skilnað eða sambúðarslit,“ segir Jón H. B. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Hann segist telja að nálgunarbann sem úrræði hafi smátt og smátt verið að sanna sig og sé nú talin lausn í málum. Það skýri líklega þá miklu fjölgun nálgunarbanna sem orðið hefur. „Nálgunarbannið er úrræði sem hægt er að grípa til ef einstaklingur eða einstaklingar verða fyrir áreiti og jafnvel brotum,“ segir Jón. Ekki þarf að vera um brot að ræða. „Þetta er líka mögulegt sem úrræði ef einhver ónáðar viðkomandi með því að koma að heimili eða vinnustað og skirrist ekki við þó að hann fái skilaboð um að ekki sé óskað eftir nærveru hans.“ Ný lög um nálgunarbönn og brottvísun af heimili tóku gildi um mitt síðasta ár. Jón segir nýmæli hvað varðar nálgunarbönn að nú geti lögregla tekið ákvörðun um að beita úrræðinu og ber það síðan undir dómara. Áður þurfti að bíða eftir að dómari fjallaði um málið svo bann tæki gildi. „Nú kemur úrræðið til framkvæmdar strax. Þetta er skilvirkara úrræði.“ - þeb
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira