Erlent

Sautján létust í bruna á dvalarheimili

Samúel Karl Ólason skrifar
MYnd/Almannavarnir Úkraínu.
Sautján manns létu lífið í eldsvoða á dvalarheimili í Úkraínu í nótt. 35 bjuggu á heimilinu sem er staðsett í þorpi nærri Kænugarði. Slökkviliðsmenn eru sagðir hafa bjargað átján úr húsinu.

Fimm þeirra sem bjargað var eru á sjúkrahúsi vegna brunasára, samkvæmt BBC.

Fjölmargir komu að slökkvi- og björgunarstarfinu, en um mikinn eld var að ræða. Tæpa fjóra tíma tók að ráða niðurlögum hans, samkvæmt Almannavörnum Úkraínu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×