Innlent

Sautján ára á 163 kílómetra hraða

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Sá sem ók hraðast var 17 ára piltur og mældist hann á 163 kílómetra hraða á Reykjanesbraut.
Sá sem ók hraðast var 17 ára piltur og mældist hann á 163 kílómetra hraða á Reykjanesbraut. VÍSIR/VILHELM
Fimm ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglustjórans á Suðurnesjum á síðustu dögum.

Sá sem ók hraðast var 17 ára piltur og mældist hann á 163 kílómetra hraða á Reykjanesbraut. Þar er hámarkshraði 90 kílómetrar á klukkustund. Foreldrum hans var tilkynnt um afskipti lögreglunnar af syni þeirra og sömuleiðis barnaverndarnefnd.

Hinir ökumennirnir fjórir mældust allir vel yfir 100 kílómetra hraða. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×