Innlent

Sautján ára á 144 km hraða

vísir/vilhelm
Sautján ára piltur mældist á 144 kílómetra hraða á Reykjanesbraut um helgina, þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar. Sex aðrir voru teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina og voru þeir allir kærðir.

Þá rannsakar lögreglan á Suðurnesjum þjófnað  sem átti sér stað í Flugstöð Leifs Eiríkssonar nýverið. Fingralöngum er gefið að sök að hafa stolið sólgleraugum og tösku  úr tveimur verslunum í flugstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×