Tíska og hönnun

Saumar alíslensk barnaföt

Adda Soffia Ingvarsdóttir skrifar
Erna Marín er komin á fullt í framleiðsluna á Snjóberi.
Erna Marín er komin á fullt í framleiðsluna á Snjóberi. Vísir/Ernir
„Þetta er bara allt saman íslenskt. Ljósmyndirnar, framleiðslan og saumaskapurinn,“ segir Erna Marín Baldursdóttir.

Hún var í fæðingarorlofi þegar hún sá fallegar myndir eftir íslenskan ljósmyndara og fékk þá hugmynd að nota þær á prent. Úr því varð barnafata- og heimilislínan Snjóber.

„Ég hafði samband við ljósmyndarann, bauð honum í kaffi og keypti af honum nokkrar myndir.“ Þær hefur Erna látið prenta á bómullarsatín og úr því hefur hún saumað fatnað og fleira. „Mér fannst vanta eitthvað litaglatt, hresst og svolítið sérstakt, ekki bara eldfjöll og snjó og þannig.“

Myndirnar frá ljósmyndaranum Helga Skúlasyni eru skrautlegar og litríkar sem setur sterkan svip á vörurnar, en Erna lætur prenta þær á efni hér heima. „Þetta er vistvæn prentun, litirnir eru vatnslitir sem eru gufuprentaðir á efnin.“

Myndunum raðar hún nokkrum saman og vinnur í heildarmynd. „Ég set þær í svokallað símunstur, þá er myndin margföld. Það kemur mjög skemmtilega út,“ segir Erna. Snjóber verður til sýnis á Handverki og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur 14.-18.maí. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×